Hvað er þessi svínaflensa? Jón Hákon Halldórsson skrifar 27. apríl 2009 12:10
Svínaflensa er smitandi öndunarsjúkdómur sem herjar yfirleitt á svín og orsakast af vissri gerð af inflúensuveiru. Reglulega gengur um faraldur í svínum. Margar ólíkar gerðir eru til af sjúkdómnum og sú gerð sem núna gengur á milli er svokölluð H1N1 týpan. Hvernig smitast menn af sjúkdómnum? Menn geta sýkst ef þeir hafa verið í nálægð við svín. Það afbrigði af vírusnum sem núna gengur getur líka smitast á milli manna. Sérfræðingar telja að svínaflensan breiðist út með sama hætti og venjuleg flensa, með hósta og nefrennsli. Hver eru einkennin? Einkennin í fólki eru svipuð og einkenni venjulegrar flensu og geta falið í sér hita, þreytu, lystarleysi, hósta og særindi í hálsi. Sumir sem hafa smitast hafa einnig ælt og fengið niðurgang. Hver er munurinn á svínaflensu, fuglaflensu og venjulegri flensu? Flensuveira gengur reglulega um í umhverfi manna og dýra og veldur veikindum í mönnum fuglum og svínum. Venjuleg flensa orsakast af vírusi sem breiðist meðal manna. Menn hafa ákveðnar náttúrulegar varnir til að verjast vírusnum. Fuglaflensa orsakast af flensuvírus sem er þannig gerður að hann smitast í fuglum. Svínaflensa er hins vegar þannig að hún smitast í svín. Þessir sjúkdómar orsaka allir sömu öndunareinkenni. Hversu hættulegur er sjúkdómurinn? Meira en 80 manns hafa látist og þúsundir hafa veikst, einkum í Mexíkó, en jafnframt í Bandaríkjunum og Nýja Sjálandi. Þó virðast lyfin Tamiflu og Releza virka gegn H1N1 afbrigðinu. Hvers er að óttast? Alþjóðaheilbrigðisstofnunin hefur varað við líkum á heimsfaraldri og ráðlagði ríkjum heims að auka eftirlit vegna sjúkdómsins. Flensuveirur geta stökkbreyst hratt og gert lyfjafyrirtækjum erfitt fyrir að tryggja aðgang að viðeigandi lyfjum. Nýjasta afbrigði H1N1 veirunnar er sambland af ólíkum útgáfum sjúkdómsins. Slíkt sambland getur leitt til þróunar á afbrigði sem menn hafa litlar varnir gegn. Heimild: Sky fréttastofan. Viðbót skrifuð 28. apríl 2009. Á vef Landlæknisembættisins má finna ítarlegar upplýsingar um svínaflensu
Mest lesið Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Jákvætt ef stjórnvöld séu loksins farin að horfast í augu við stöðuna Innlent Fleiri fréttir Ekkert lát á árásum Bandaríkjanna og Íran Minnst 15 látnir í árásum Rússa Vilja refsiaðgerðir til að sporna gegn „vistmorði“ Kínverja Vopnaframleiðendur reyna að koma til móts við Evrópu Eldar brenna á Spáni og í Frakklandi Vilja tryggja að hægt sé að óvirkja gervigreindina Viðurkenndu mistök og drógu stefnur gegn blaðamönnum til baka Southport-morðinginn fluttur á geðdeild Nýir tollar lagðir á yfir 80 ríki með vísan til vinnuþrælkunar Óttast að hin leiðin lokist með miklum afleiðingum Sádar verði að viðurkenna tilvist Ísrael Slapp naumlega frá hlébarða í vínbúð Hótar Hútum vegna árása á flutningaskip Hútar réðust á olíuflutningaskip frá Sádi Arabíu Réttarhöld yfir Maduro hefjast í júní á næsta ári Bandaríkin og Sádi-Arabía undirrita kjarnorkusaming „Dr. Jihad“ sem talinn var dáinn vill aftur til Ástralíu Gervigreindarlíkan framkvæmdi netárás óumbeðið Rústa brú eða orkuveri fyrir hverja árás á Hormússundi Fyrirsætuveiðari Epsteins fannst látinn Vill að Infantino stýri Sameinuðu þjóðunum Rýnt í deilurnar: Hver er nýr yfirherforingi Úkraínu? Vill billjónir vegna stríðsins og reifst við þingmenn Frakkar lögleiða samfélagsmiðlabann barna Eigandi Michelin-staðar ákærður fyrir notkun maura í mat Undirrita samkomulag sem opnar á úranauðgun Sáda Utanríkisráðherrann lýsir árásunum sem urðu Khamenei að bana Yfirhershöfðingja Úkraínuhers vikið úr embætti Minnst tólf létust í árásum Ísraelshers Handtakan þyrfti að byggja á alþjóðalögum Sjá meira