Erlent

Nas­ista­krot í her­manna­kirkju­garði

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Skemmdarvargarnir krotuðu allskonar níðorð í kirkjugarðinum.
Skemmdarvargarnir krotuðu allskonar níðorð í kirkjugarðinum. epa/ ROB ENGELAAR
Skemmdarvargar krotuðu meðal annars hakakross í seinni heimsstyrjaldar kirkjugarði breska samveldisins í Hollandi. Frá þessu er greint á vef breska ríkisútvarpsins.

Handahófskenndir stafir voru spreyjaðir á marga legsteinanna í Mierlo kirkjugarðinum, nærri Eindhoven í suðurhluta Hollands. Stríðsgrafaumboð samveldisins (CWGC) sagðist „blöskra“ vegna skemmdarverkanna, en aðeins nokkrir dagar eru síðan önnur skemmdarverk voru unnin í kirkjugarðinum.

Síðar í mánuðinum mun Karl Bretaprins vera viðstaddur minningarathafnar í Hollandi vegna Bardagans af Arnhem sem fór fram árið 1944. Minningarathöfnin mun marka 75 ára afmæli frelsunar Hollands undan oki nasistanna.

Krotað var nærri á hvern einasta flöt í kirkjugarðinum.EPA/ROB ENGELAAR
Í Mierlo kirkjugarðinum hvíla 664 hermenn breska samveldisins og einn hollenskur hermaður.

Meðal þess sem var krotað í garðinum er „MH17 lygin,“ sem vísar til hraps flugvélar flugfélags Malasíu í austurhluta Úkraínu í júlí 2014 sem varð 298 manns að bana, þar á meðal 193 Hollendinga.

Alþjóðlegir rannsakendur komust að þeirri niðurstöðu að flugvélin hafi orðið fyrir rússneskri Buk eldflaug, sem skotið var af svæði sem var undir yfirráðum aðskilnaðarsinna sem nutu stuðning Rússa.

Spreyjað var á nærri hvern einn og einasta legstein í kirkjugarðinum.epa/ ROB ENGELAAR
CWGC sagði það „erfitt að sjá skemmdarverkin sem unnin voru á legsteinunum sjálfum og að baki hverrar einnar og einustu grafar væri saga manneskju sem fórnaði sér.“

Hollenska fréttastofan Omroep Brabant sagði hollensku þjóðina vera í áfalli og reiða vegna skemmdarverkanna.

Einn fréttamanna Omroep Brabant sagði þetta ekki smákrot, krotað hafi verið nærri alls staðar.

„Stafir hafa verið krotaðir á nærri hvern einn og einasta legstein. [Þetta er] ótrúlegt.“

Kona sem talað var við sagðist vera sorgmædd og í áfalli og sagði foreldra sína hafa hjálpað til við að sjá um kirkjugarðinn í áraraðir.



„Hjarta mitt grætur. Hér eru grafnir 17 og 18 ára gamlir drengir sem frelsuðu okkur.“

Hollenska lögreglan tísti ákalli til almennings um að hafa samband ef einhver hefði upplýsingar sem gætu upplýst um hverjir gerendurnir væru.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×