Innlent

Heilsu­gæslan gefur út leið­beiningar vegna lús­mýs

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Fjölmargir hafa lent í því að vera illa bitnir af lúsmý.
Fjölmargir hafa lent í því að vera illa bitnir af lúsmý. vísir/vilhelm
Eins og fjallað hefur verið um í fjölmiðlum undanfarnar vikur hefur lúsmý herjað á landsmenn, ekki hvað síst á Suður- og Vesturlandi.

Fjölmargir hafa lent í því að vera bitnir af þessari litlu flugu og hefur Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins nú gefið út leiðbeiningar um fyrirbyggjandi ráð og meðhöndlun á bitum eftir lúsmý.

Á vef Heilsugæslunnar segir að bitin séu oftast meinlaus en þau geti þó valdið óþægindum og kláða þar sem þau virkja ofnæmisviðbrögð líkamans.

Eftirfarandi eru fyrirbyggjandi ráð:

•    Lúsmý bítur inni í húsum og á nóttunni. Það þarf því að koma í veg fyrir að það komist inn og verja sig á nóttunni:

•    Þéttriðið flugnanet í glugga getur komið í veg fyrir að lúsmýið berist inn.

•    Gott að vera í náttfötum og sokkum. Sokkarnir eru þá settir yfir buxnaskálmarnar og skyrtan ofan í buxnastrenginn. Best er ef ermarnar eru þröngar og liggja þétt að húðinni.

•    Lúsmý þolir ekki vind, því gætu viftur í svefnherbergjum hjálpað.

•    Skordýravörn sem sett er á húð og föt getur hjálpað. Vörn sem inniheldur 50% DEET (diethyltoluamide) er áhrifaríkust. Fyrir börn má skordýravörn ekki innihalda meira en 10% af DEET.

Meðhöndlun á bitum eftir lúsmý:

Allskonar húsráð eru í gangi varðandi meðhöndlun á bitum. Hafa skal í huga að sum efni geta valdið enn frekari ertingu í húðinni og því ekki til bóta. Hér koma nokkur ráð sem þykja á rökum reist:

•    Kældu bólgið svæði í um 10 mínútur.

•    Verkjalyf t.d. parasetamól slær á óþægindin og óhætt að nota skv. ráðleggingum á pakka.

•    Hafðu hærra undir höndum og fótum ef bit eru þar, það getur dregið úr bólgumyndun.

•    Ekki klóra í húðina þar sem það getur aukið líkur á sýkingum. Stutt kæling dregur úr kláða.

•    Ofnæmistöflur fást án lyfseðils í apótekum. Þessi lyf hindra áhrif histamíns í líkamanum og geta minnkað kláða og útbrot.

•    Sterakrem til dæmis Mildison fæst án lyfseðils í apótekum. Kremið minnkar bólgur og kláða. Sterakrem ætti ávallt að bera á í þunnu lagi og í stuttan tíma í einu. Forðast ætti að bera sterakrem í andlit eða á sár.

•    Steratöflur, eingöngu ef um svæsin útbrot er að ræða. Þá skal leita á næstu heilsugæslustöð og fá frekari ráðleggingar.

Ef útbrot eru svæsin og ná yfir stór svæði á líkamanum er fólki ráðlagt að leita til næstu heilsugæslustöðvar.

„Einnig ef útbrotin og bólgan vex í stað þess að dvína á nokkrum dögum.

Ef um alvarlegri einkenni er að ræða svo sem öndunarfæraerfiðleika, bólgu í hálsi, andliti eða munni, hraðan hjartslátt og skerta meðvitund, getur það bent til bráðaofnæmis. Þá skal leita strax á bráðamóttöku eða hringja í 112.

Á heilsuvera.is er að finna leiðbeiningar um skordýrabit. Einnig er þar hægt að hafa samband við hjúkrunarfræðing á netspjallinu og við heilsugæslustöðina sína í gegnum Mínar síður eða símleiðis og fá ráðgjöf,“ segir á vef Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.


Tengdar fréttir

Lúsmýið skynjar útöndun fólks og leitar uppi bera útlimi sofandi blóðgjafa

Lúsmýið, bitvargurinn sem herjað hefur á Íslendinga síðan að minnsta kosti sumarið 2015, hefur að öllum líkindum verið lengur hér á landi en margur telur, að því er fram kemur í pistli skordýrafræðinganna Erlings Ólafssonar og Matthíasar Alfreðssonar sem var birtur nýlega á vef Náttúrufræðistofnunar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×