Leikir spilaðir í ensku úrvalsdeildinni í fyrirhuguðu vetrarfríi Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 28. febrúar 2018 08:30 Snjókoma á Gylfa og félaga í leik Everton og Liverpool í vetur. Vísir/Getty
Allt bendir til þess að enska úrvalsdeildin taki upp vetrarfrí í fyrsta sinn tímabilið 2019 til 2020 og verður fyrsta vetrarfríið þá í febrúar 2020. Viðræður eru langt komnar og menn nokkuð sáttir við þá hugmynd sem er verið að vinna með. Þetta verður hinsvegar mjög óvenjulegt vetrarfrí í samanburði við aðrar stóru deildarinnar í Evrópu. Sky Sports segir frá. Liðin fá að minnsta kosti þrettán daga frí í febrúar 2020 en það verða samt spilaðir leikir í ensku úrvalsdeildinni allar helgar.WINTER BREAK The Premier League are happy in principle with a two-week break from 2020. Is it the right call after all these years of discussion?https://t.co/JpPwpMfaKZpic.twitter.com/2HG5daA9vb — Sky Sports PL (@SkySportsPL) February 27, 2018 Fyrirkomulagið er þannig að tíu lið af tuttugu eru að spila á þessum helgum í vetrarfríinu. Tíu spila fyrri helgina en fá frí þá síðari. Þau sem frá frí á fyrri helginni spila síðan á þeirri síðari. Þetta býr til að minnsta kosti þrettán daga frí fyrir öll liðin en á móti kemur að fimmta umferð enska bikarsins (16 liða úrslitin) mun vera færð yfir í miðja viku og þar verður hér eftir spilað til þrautar eins og í átta liða úrslitunum, undanúrslitunum og úrslitaleiknum. Sky bendir á það að þetta sé ekki mikil breyting fyrir lið eins og Everton, Newcastle, Crystal Palace, West Ham og Watford á þessu tímabili. Þau duttu öll snemma út úr bikarnum og fengu öll þrettán daga frí í þessum febrúarmánuði. Vetrarfríið í enska boltanum verður líka styttra en það er í öðrum löndum. Það er 19 daga frí í Skotlandi, 24 daga frá í Frakklandi, 18 daga frí á Spáni og 16 daga frá á Ítalíu. Þýska úrvalsdeildin er í fríi í einn mánuð.
Enski boltinn Mest lesið Guðjóni Val líkt við íslenskt eldfjall eftir eldræðu á blaðamannafundi Handbolti Laun Infantino meira en þrefaldast á áratug Fótbolti Guardiola léttur: „Slakir þjálfarar og skítaleikmenn“ Enski boltinn Fanney og Thelma Evrópubikarmeistarar Fótbolti Grindavík - Njarðvík 68-72| Njarðvík tryggði sér oddaleik Körfubolti Heimsmeistarinn fremstur í sprettinum Formúla 1 Njarðvíkingar rændir marki og þurfa að bíða lengur eftir sigri Íslenski boltinn Haukur allt í öllu hjá Löwen Handbolti Skellt í lás eftir afhroðið Íslenski boltinn Laglegt hjá Leeds sem forðast fall Enski boltinn Fleiri fréttir Guardiola léttur: „Slakir þjálfarar og skítaleikmenn“ Laglegt hjá Leeds sem forðast fall Færði tíðindi af Salah á blaðamannafundi í morgun Mainoo áfram í Manchester næstu árin Parker hættur hjá Burnley | Tekur Gerrard við? Salah ekki sagt sitt síðasta hjá Liverpool Mudryk áfrýjaði fjögurra ára banni Sú sigursælasta setur skóna á hilluna Guardiola sá langþráða endurkomu Benonýs Breka Gremja í City-mönnum sem spila þrjá leiki á sjö dögum Ipswich sigri frá sæti í ensku úrvalsdeildinni Stones rifar seglin hjá City Knattspyrnukona missti fóstur á æfingu: „Þeir björguðu líklega lífi mínu“ Fernandes nálgast stoðsendingametið eftir sigur United Fá leyfi til að leika sér í fríinu Fékk sér tebolla með Ratcliffe Frá út leiktíðina og missir af HM Fernández kom Chelsea í bikarúrslit Vill skrúfa fyrir lekann eftir að rakarinn birti byrjunarliðið Mörkin úr enska: Skaut Arsenal á toppinn og dramatíkin allsráðandi á botninum Salah gæti hafa spilað sinn síðasta leik fyrir Liverpool Eze skaut Arsenal aftur á toppinn Manchester City tryggði sér farmiða í úrslitaleikinn Þriðji sigur Liverpool í röð Tottenham vann loksins en er enn í fallsæti Fulham vann og Liverpool getur komist upp fyrir Villa Andlát Jota notað sem barefli á leikmenn Liverpool Allt slökkt á Leikvangi ljóssins Hákon hefur bætt sig á öllum sviðum og framlengir við Brentford Segir Fabregas að halda sig fjarri „martröðinni“ hjá Chelsea Sjá meira