Þjálfari Harðar Björgvins hvergi banginn fyrir City leikinn: Þeir eru mannlegir Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. janúar 2018 10:30 Lee Johnson og Hörður Björgvin Magnússon. Vísir/Getty
Lee Johnson, knattspyrnustjóri Bristol City, var með augun á undanúrslitaleik enska deildabikarsins þegar liðið mætti Watford í enska bikarnum um helgina. Hörður Björgvin Magnússon og félagar mæta Manchester City á Etihad-leikvanginum annað kvöld og í boði er sæti í úrslitaleik enska deildabikarsins á Wembley. Lee Johnson hvíldi fullt af leikmönnum í bikartapinu á móti Watford og hann er hvergi banginn þegar kemur að því að mæta liðinu sem er löngu búið að stinga af í ensku úrvalsdeildinni. Bristol City sló Manchester United út úr átta liða úrslitunum og hafði áður slegið út úrvalsdeildarfélögin Stoke, Crystal Palace og Watford. Það er búist við því að 7680 stuðningsmenn Bristol City ferðist norður til Manchester til að styðja liðið og það snýst allt um þennan leik á móti Manchester City. Johnson hafði betur gegn Jose Mourinho síðast og núna er komið að leik á móti liði Pep Guardiola. „Það er stórkostlegt að fá strax að reyna sig aftur á móti heimsklassa stjóra. Það er frábært fyrir mig sem ungan stjóra að fá að ræða aðeins við þessa toppstjóra,“ sagði Lee Johnson við Telegraph. „Við þessir ungu viljum læra og það er alltaf áhugavert að fá að eyða smá tíma með þessum köppum. Ég væri alveg til í að sitjast niður með þjálfaratöfluna og fara yfir nokkrar hugmyndir með þeim,“ sagði Lee Johnson. „Þetta er risastór leikur. Manchester City er eitt af bestu liðum sem England hefur séð. Þegar allt kemur til alls þá eru þeir bara mannlegir. Við höfum staðið okkur vel á móti bestu liðunum og það gaf okkur sjálfstraust að hafa unnið Manchester United. Strákarnir hafa sýnt að þeir óttast engan og við ætlum að sjá hvað við getum gert,“ sagði Johnson.
Enski boltinn Mest lesið „Ég trúði ekki að þetta væri að gerast“ Sport Hefur eignast barn en þarf samt að sanna að hún sé kona Sport Mourinho grét á blaðamannafundi Fótbolti Fótboltamaður drukknaði Fótbolti Liverpool búið að samþykkja tilboð en nú veltur allt á Darwin Nunez Enski boltinn Dramatík í Barcelona: Félagið í mál við eigin leikmann Fótbolti Ratcliffe-mótmæli á leik Manchester United og Arsenal Enski boltinn Segir að þeir hafi notað Newcastle í pókerleik Enski boltinn Sjáðu Pedersen bæta metið og Skagamenn jafna með skrýtnum mörkum Íslenski boltinn Lars sendi kveðju til Íslands Fótbolti Fleiri fréttir Segir að þeir hafi notað Newcastle í pókerleik Ratcliffe-mótmæli á leik Manchester United og Arsenal Liverpool búið að samþykkja tilboð en nú veltur allt á Darwin Nunez Tölvuleikurinn Grand Theft Auto boðar mjög gott fyrir Man. United Lyon krækir í leikmann Liverpool Partey laus á skilorði Son verður sá dýrasti í sögunni Man. United bauð 74 milljónir punda í Sesko Shearer með skilaboð til Newcastle: Losið ykkur við Isak Sjáðu guttann skora geggjað mark fyrir Liverpool: Ný stjarna fædd á Anfield Eigandi Newcastle gæti hjálpað Liverpool að kaupa Isak Hinn óendanlegi leikmannahópur Chelsea Liverpool vann Athletic tvívegis á Anfield „Við erum Newcastle United“ Everton að ganga frá kaupum á miðjumanni Chelsea Áhorfendum vísað út af Anfield Barist um undirskrift Nunez „Augljóslega þurfum við fleiri leikmenn“ Gott silfur gulli betra en hvað nú? Hato mættur á Brúnna Palhinha mættur til Lundúna á ný eftir stutt stopp hjá Bayern Vill vera hjá Man United næstu tvo áratugina Maddison meiddist aftur og „þetta lítur ekki vel út“ Sjáðu tilfinningaþrungna kveðjustund Son United tilbúið að tapa miklu á Højlund Fær ekki nýjan samning eftir fótbrotið Þessir þurfa að heilla Amorim Kom ekkert annað til greina en West Ham hjá Wilson Ramsdale mættur til Newcastle Isak snýr aftur til æfinga með Newcastle Sjá meira