Allardyce: Rooney og Gylfi geta ekki spilað saman Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. janúar 2018 08:38 Gylfi Þór Sigurðsson og Wayne Rooney. Vísir/Getty
Sam Allardyce, knattspyrnustjóri Everton, segir að þeir Gylfi Þór Sigurðsson og Wayne Rooney séu hæfileikaríkir leikmenn en vandamálið sé að hann geti ekki notaða þá báða á sama tíma. Ástæðan er að það er ekki pláss fyrir tvo leikmenn sem fara ekki hraðar yfir. Gylfi Þór Sigurðsson var kominn í sína uppáhaldsstöðu, fremst á miðjunni, í 1-1 jafntefli Everton og West Bromwich Albion í ensku úrvalsdeildinni um helgina en Wayne Rooney þurfti að sætta sig við setu á bekknum. Wayne Rooney kom inn á sem varamaður, lífgaði upp á sóknarleikinn og átti þátt í jöfnunarmarkinu. Það mun samt ekki breyta skoðun Allardyce sem vill ekki nota þá Gylfi Þór Sigurðsson og Wayne Rooney saman inn á vellinum.Allardyce: Everton cannot play Wayne Rooney and Gylfi Sigurdsson together | @NickAmes82https://t.co/cSwNG7CyGx — Guardian sport (@guardian_sport) January 21, 2018 „Í síðustu viku sagði ég að við þyrftum meiri hraða í liðið. Við náðum að auka hraðann með því að fá Theo [Walcott] til okkar og það gerum við líka þegar Yannick [Bolasie] kemst aftur í sitt besta form á miðjunni. Við verðum að geta komist um völlinn,“ sagði Sam Allardyce í viðtali við Guardian. „Rooney og Gylfi eru mjög klárir og klókir fótboltamenn með mikla hæfileika en það er ekki þeirra styrkur að komast hratt um völlinn. Ég þarf því að taka stóra ákvörðun um hvor þeirra spilar og hvor þeirra situr á bekknum. Gylfi hefur verið út á kanti en nú vildi ég spila honum í stöðunni sem hann vill spila og sjá hvað hann gæti,“ sagði Allardyce. Gylfi er fjórum árum yngri en Rooney og hefur verið að spila betur eftir sem liðið hefur á tímabilið. Það fylgir því hinsvegar mikil pressa að vera að halda manni eins og Wayne Rooney út úr byrjunarliðinu.
Enski boltinn Mest lesið Kári reynir að hjálpa HK upp um deild Íslenski boltinn Liverpool vann Athletic tvívegis á Anfield Enski boltinn „Þeir standa fyrir eitthvað annað“ Fótbolti Áhorfendum vísað út af Anfield Enski boltinn „Báðir endar vallarins mættu vera betri“ Íslenski boltinn „Skemmtilegra þegar vel gengur“ Íslenski boltinn Tíu af bestu kylfingum landsins lögðu Minningarsjóð Bryndísar Klöru lið Golf Uppgjörið: Valur - Breiðablik 0-3 | Létt verk fyrir meistarana Íslenski boltinn Risaskjár og stuðsvæði á Íslandsmótinu í golfi Golf Mark Kolbeins svo gott sem gulltryggði sigurinn Fótbolti Fleiri fréttir Liverpool vann Athletic tvívegis á Anfield „Við erum Newcastle United“ Everton að ganga frá kaupum á miðjumanni Chelsea Áhorfendum vísað út af Anfield Barist um undirskrift Nunez „Augljóslega þurfum við fleiri leikmenn“ Gott silfur gulli betra en hvað nú? Hato mættur á Brúnna Palhinha mættur til Lundúna á ný eftir stutt stopp hjá Bayern Vill vera hjá Man United næstu tvo áratugina Maddison meiddist aftur og „þetta lítur ekki vel út“ Sjáðu tilfinningaþrungna kveðjustund Son United tilbúið að tapa miklu á Højlund Fær ekki nýjan samning eftir fótbrotið Þessir þurfa að heilla Amorim Kom ekkert annað til greina en West Ham hjá Wilson Ramsdale mættur til Newcastle Isak snýr aftur til æfinga með Newcastle Newcastle býður í Sesko Son spilar sinn síðasta leik fyrir Tottenham á morgun „Erfið og flókin staða“ „Úrvalsdeildarliðum verður ekki fækkað niður í 18“ Er Donnarumma svarið frekar en nýr framherji? Reynsluboltinn Coady til liðs við Hollywood-lið Wrexham Liverpool tilbúið að hætta eltingaleiknum við Isak Newcastle hafnar tilboði Liverpool Sagðir vilja borga helminginn fyrir Isak í ár og hinn helminginn ári síðar Netverslun Liverpool hrundi vegna álags Er Liverpool að styrkja rangan enda vallarins? Paquetá hreinsaður af ásökunum um veðmálasvindl Sjá meira