Prestur kennir kollegum að vopnast Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar 10. janúar 2018 06:00 Greg Abbott, ríkisstjóri í Texas, faðmar íbúa eftir skotárásina á kirkju í Sutherland Springs. vísir/afp „
Sjáið hvað ég geri. Ég skýt undir kirkjubekkina.“ Þetta hrópar baptistapresturinn Barry Young, sem ferðast vítt og breitt um Bandaríkin og heldur námskeið í öryggismálum um leið og hann boðar guðs orð. Söfnuðurinn í lítilli timburkirkju úti á landsbyggðinni í Suður-Dakóta hafði boðið Young að halda tveggja daga námskeið í því hvernig best er að verja kirkjur gegn árásum. Um 80 prestar komu til að hlýða á Young sem lét eins og hann héldi á byssu, að því er kom fram í heimildarþætti danska ríkisútvarpsins. Vopnavæðing í bandarískum guðshúsum er ekki ný af nálinni. Eftir fjölda árása á bænahús gyðinga, moskur og hof veitti Barack Obama, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, skattfé til trúfélaga til að þau gætu varið sig. Síðastliðið haust tilkynnti stjórn Donalds Trump Bandaríkjaforseta að veita ætti enn meira fé í þessu skyni. Haft er eftir Barry Young að í fyrstu hafi fjöldi presta verið mótfallinn því að vopnast. Nú horfist þeir hins vegar í augu við raunveruleikann. Í kjölfar skotárásarinnar í kirkju í Sutherland Springs í Texas í fyrra, þar sem á þriðja tug manns lét lífið, og í kjölfar annarra skotárása hafa starfsmenn baptistaprestsins verið önnum kafnir við námskeiðahald. Young kennir á milli 70 og 500 manns um hverja helgi og hann er bókaður langt fram á þetta ár. Önnur öryggisfyrirtæki hafa sömu sögu að segja.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Innlent Rútum ekið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina Innlent Slysið austan við Vík var alvarlegt Innlent Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Innlent Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum Innlent Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Innlent Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Innlent „Þetta er stórmerkilegur áfangi“ Innlent Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Innlent Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Innlent Fleiri fréttir Meloni segir Trump skrökva upp á sig Witkoff stefnir til Sviss Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Fuglaflensan stráfelldi kópa á suðurskautinu Trump undirritaði samkomulag við Írani Spá allt að fjörutíu stiga hita Rex Heuermann fær lífstíðardóm Eins árs gamalt barn skotið til bana af lögreglumanni Rex Heuermann leiddur fyrir dómara í dag Mette-Marit krónprinsessa fékk ný lungu í vel heppnaðri aðgerð Skopmyndateiknari skotinn til bana Rússnesk freigáta skaut varúðarskotum að skútu í Ermarsundi Rússar skipulögðu íkveikjur gegn forsætisráðherra Bretlands Segjast hafa sprengt olíuhreinsistöð nærri Moskvu Stefna á að hafa ný aðildarríki í styttri ól Öll áhöfnin talin af Samkomulag um samkomulag undirritað og klárt Erfiðir tímar fyrir norsku konungsfjölskylduna Sonur krónprinsessunnar áfrýjar dómi Hrapaði til bana eftir að kennari gleymdi að festa reipi Sjá meira