Tvíburabræður handteknir í New York vegna gruns um sprengjuframleiðslu Atli Ísleifsson skrifar 16. febrúar 2018 08:49 Bræðurnir neita sök í málinu. Myndin tengst málinu ekki beint. Vísir/Getty
Fyrrverandi kennari og tvíburabróðir hans voru handteknir í New York í gær vegna gruns um sprengjuframleiðslu. Rannsókn lögreglu á málinu hófst í desember eftir að sprengjuhótun barst skóla á Manhattan. New York Times greinir frá því að mennirnir hafi verið handteknir af fulltrúum alríkislögreglunnar. Bræðurnir, sem eru 27 ára gamlir, voru handteknir í borgarhlutanum Bronx og fundust ýmis efni og tól til sprengjugerðar á sameiginlegu heimili þeirra bræðra. Að sögn saksóknara höfðu að minnsta kosti tveir nemendur úr skóla í Harlem heimsótt mennina á heimili þeirra. Höfðu nemendurnir fengið greitt tímakaup fyrir að taka flugeldasprengjur í sundur og safna saman sprengiduftinu.Hótaði að sprengja skólann Bræðurnir neita sök í málinu, en þeir hafa ekki komið áður við sögu lögreglu. Þeir gætu átt yfir höfði sér allt að tíu ára fangelsi. Rannsókn alríkislögreglu hófst í desember á síðasta ári þegar annar bræðranna lét af störfum í skólanum í Harlem. Nemandi hafði þá verið handtekinn eftir að hafa hótað að sprengja skólann í loft upp. Þegar bróðir kennarans fyrrverandi skilaði fartölvu bróður síns aftur til skólans tók starfsfólk eftir að á henni fundust leiðbeiningar um sprengjuframleiðslu.
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent Á spítala eftir misheppnaða aftöku Erlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Innlent Fleiri fréttir Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Sjá meira