Klopp biðst afsökunar á að hafa misst sig við stuðningsmann Swansea Tómas Þór Þórðarson skrifar 23. janúar 2018 09:30 Jürgen Klopp hafði ástæðu til að svekkja sig í gærkvöldi. vísir/getty
Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, baðst afsökunar á því að hafa misst sig við einn stuðningsmann Swansea í viðtali eftir tap Liverpool á Liberty-vellinum í gærkvöldi. Liverpool var ekki búið að tapa í fimmtán leikjum í röð þar til að mark miðvarðarins Alfie Mawson á 40. mínútu tryggði velska liðinu gríðarlega mikilvæg þrjú stig. Einn stuðningsmaður Swansea sem sat ansi nálægt varamannabekk Liverpool ögraði Klopp nær allan leikinn en á endanum sprakk sá þýski og sneri sér að stuðningsmanninum. Hann segist ekki hafa sagt neitt ljótt við hann. „Hann öskraði á mig allan tímann. Afsakið að ég hafi einu sinni sýnt einhver viðbrögð. Ég minnti sjálfan mig á að ég er mannlegur en ekki bara atvinnustjóri sem verður að sitja undir svona hlutum endalaust,“ sagði Klopp. „Ég bað hann einu sinni um að hætta. Ég var ekki með upptökutæki á mér eins og hann þannig að enginn heyrði það. Þetta er í lagi. Svona er þetta bara. Það kom bara þetta eina augnlablik þar sem mér fannst nóg komið.“ „Stuðningsmanninum leið ansi vel því ekki megum við gera neitt. Hann var í góðri stöðu. Ég er eflaust ekki fyrsti stjórinn sem lendir í þessu. Ég held að þetta hafi verið ársmiðahafi. Þetta er samt mér að kenna líka. Ég átti ekki að bregðast við en ég sagði ekkert slæmt. Ég sýndi bara að ég var ekki ánægður með það sem hann var að segja,“ sagði Jürgen Klopp.
Enski boltinn Mest lesið Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield Enski boltinn Aðeins sautján konur með betri tíma en Elísa í ógnarsterku utanvegahlaupi Sport Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Enski boltinn Sjáðu óverjandi mark Hákons gegn PSG Fótbolti Linda Líf gengur til liðs við nýliðana í enska boltanum Sport Ver umdeilda veggmynd sína af Ronnie O'Sullivan Sport Bjarni ræðir brottförina frá Val: „Erfitt að ná alvöru stöðugleika“ Íslenski boltinn PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Enski boltinn Dagskráin í dag: Enski og Bestu deildirnar í aðalhlutverki Sport Hákon skoraði glæsimark gegn PSG Fótbolti Fleiri fréttir Bournemouth - Everton | Norðanliðið mætir suður Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Savinho til Tottenham frá Manchester City Sjá meira