Tveir slasaðir eftir að flugeldasýning fór úrskeðis Nína Hjördís Þorkelsdóttir skrifar 1. janúar 2018 17:38 Myndin er úr safni og tengist fréttinni ekki beint. Vísir/Pjetur
Tveir slösuðust og þúsundir þurftu að flýja er flugeldasýning í Ástralíu fór úrskeðis vegna bilunar í skotbúnaði. Áhorfendur voru staddir á Terrigal-ströndinni í New South Wales ríki í Ástralíu í gærkvöld. Að sögn lögregluyfirvalda á svæðinu var skotstöðin staðsett á pramma laust undan ströndinni. Pramminn varð alelda og fyrir vikið kviknaði nánast í öllum flugeldum sýningarinnar samtímis. Mikil sprenging varð og í kjölfarið runnu tvær grímur á marga áhorfendur. „Átti þetta að gerast?,“ hrópuðu skelkaðir sjónarvottar á meðan aðrir biðu ekki boðanna og forðuðu sér á stundinni. Samkvæmt fréttaveitu BBC var ströndin rýmd en þúsundir áhorfenda voru þar saman komnir. Tveir menn slösuðust en þeir voru staddir á prammanum sem varð eldi að bráð. Meiðsl þeirra voru þó ekki alvarleg. Nokkrir sjónarvottar náðu atvikinu á myndband en líkt og sjá má er sprengingin gríðarlega öflug.Caught the moment of the explosion and the barge caught on fire. Everyone started screaming and running while evacuating after this. damn terrigal fireworks #NYE pic.twitter.com/VfJGLxYfnh— Jess Winley (@jesswinley) December 31, 2017
Mest lesið Fór af hjólinu skömmu áður en það brann til kaldra kola á þjóðveginum Innlent „Þetta snýst ekki hreinlega um bann heldur ákveðna vernd“ Innlent Hefur áhyggjur af smithættu í fargufum Innlent Nánast farin að reikna með hitabylgjum fyrir austan Innlent Adolf Ingi fékk svar frá Stefáni: „Aumt að skýla sér á bak við Fjölmiðlanefnd“ Innlent Um 7.000 manns taldir smitaðir af svæsinni niðurgangspest Erlent Sögðu mjólkurfernu kosta 380 krónur en eyddu myndskeiðinu Innlent Leigubílstjóri stunginn af farþega Innlent Ólafur hjá Morgunblaðinu kærður til siðanefndar BÍ Innlent Tengivagn valt á Vesturlandsvegi Innlent Fleiri fréttir Tvö þúsund smitaðir og rúmlega sjö hundruð látnir Sex létust í árásum Rússa í nótt Fyrrum forsætisráðherra Noregs vill þjóðaratkvæði um aðildarviðræður Segja gervigreindina hafa valið þá sem sagt var upp og saka Meta um mismunun Carroll fær loksins miskabæturnar frá Trump Þurfa að hafa lokið herskyldu til að fá vernd innan ESB Gus sleginn á 6,3 milljarða króna Eldri unglingum bannað að fara á samfélagsmiðla á nóttunni Um 7.000 manns taldir smitaðir af svæsinni niðurgangspest Trump hótar árásum á orkuver og Íranir að stöðva alla olíuflutninga Sex létust í eldsvoða í Brussel Hættur við innheimtu tolls á Hormússundi Morðið á Ann Widdecombe var „markviss árás“ Vinna ekki með Bandaríkjamönnum af þjóðaröryggisástæðum Telja sjötugan Þjóðverja hafa byrlað og nauðgað fjölda kvenna Forsætisráðherra Úkraínu lætur af embætti Danska leyniþjónustan ræður mörghundruð nethermenn Mette-Marit útskrifuð af sjúkrahúsi Dómari ógildir sátt Trump og skattayfirvalda Hélt um fætur eiginmannsins meðan hann sogaðist úr glugga í háloftunum Þingið samþykkir stjórnarskrárviðauka til að koma forsetanum frá Boðað til þingkosninga í Ísrael þann 27. október Trump boðar gjaldtöku á Hormússundi Blása lífi í glæður Falklandseyjadeilunnar fyrir stórleikinn Rannsaka morð Widdecombe sem hryðjuverk ESB boðar aldurstakmörk á samfélagsmiðlum Segja 2.700 hafa látist vegna hitabylgju Sænskur Evrópuþingmaður kærir danskan kollega til lögreglu McConnell birtir mynd af sér á spítala Íranir og Bandaríkjamenn halda árásunum áfram Sjá meira