Arsene Wenger brjálaður út í vítaspyrnudóminn: Þá áttum við að fá tvær Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. janúar 2018 22:15 Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal. Vísir/EPA
Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, var allt annað en ánægður með vítaspyrnuna sem dæmd var á Arsenal í 2-2 jafntefli á móti Chelsea í kvöld. Eden Hazard fékk þá vítaspyrnu eftir að Hector Bellerin virtist sparka hann niður en franski stjórinn var vægast mjög ósáttur með þann dóm og talaði mikil um það mótlæti sem hans lið þarf að ganga í gegnum þessa daganna vegna mistaka dómara. Þetta er annar leikurinn í röð sem Arsenal fær á sig umdeilda vítaspyrnu í jafnteflisleik og þetta hefur reynt á þolrifin hjá Wenger. „Þetta var stórmerkilegur leikur en einu sinni enn fengum við á kenna á slæmri ákvörðun dómarans. Við verðum að taka það með inn í okkar undirbúning hvað við þurfum að ganga í gegnum. Það sáu allir góðan fótbolta en því miður sáum við líka slæmar ákvarðanir,“ sagði Arsene Wenger við BBC. „Ég vil ekki tala um einstök atvik því þá verð ég bara pirraður og kemst í uppnám,“ sagði Wenger. Blaðamaður BBC gekk á hann með vítaspyrnudóminn. „Við skoðuðum það sem hafði áhrif á leikinn. Ef þetta var víti þá áttum við að fá tvær vítaspyrnur,“ sagði Wenger. „Þetta var frábær fótboltaleikur og við viljum að fólkið tali um það. Fjölmiðlar og samskiptamiðlarnir gera alla ruglaða í dag en það sem er mikilvægast fyrir mig er að þetta var góður fótboltaleikur,“ sagði Wenger. „Við spiluðum þrjá leiki á sex dögum og eins og allir sáu þá gaf liðið mitt allt sitt í þennan leik. Það var mikið álag á liðinu og dómarnir féllu á móti okkur en samt náðum við að sýna mikil gæði í okkar leikjum,“ sagði Wenger.
Enski boltinn Mest lesið Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield Enski boltinn Aðeins sautján konur með betri tíma en Elísa í ógnarsterku utanvegahlaupi Sport Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Enski boltinn Sjáðu óverjandi mark Hákons gegn PSG Fótbolti Linda Líf gengur til liðs við nýliðana í enska boltanum Sport Ver umdeilda veggmynd sína af Ronnie O'Sullivan Sport Bjarni ræðir brottförina frá Val: „Erfitt að ná alvöru stöðugleika“ Íslenski boltinn PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Enski boltinn Dagskráin í dag: Enski og Bestu deildirnar í aðalhlutverki Sport Hákon skoraði glæsimark gegn PSG Fótbolti Fleiri fréttir Bournemouth - Everton | Norðanliðið mætir suður Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Savinho til Tottenham frá Manchester City Sjá meira