Messan: Sjáum við Jóhann Berg í stærra úrvalsdeildarliði á næsta tímabili? Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 27. febrúar 2018 12:30
Jóhann Berg Guðmundsson hefur átt mjög gott tímabil með Burnley og það er gaman að sjá íslenska landsliðsmanninn í HM-formi. Strákarnir í Messunni veltu fyrir sér framtíð Jóhanns og því hvort að hann sé mögulega á leiðinni í stærra lið í ensku úrvalsdeildinni. „Erum við að sjá Jóhann Berg mögulega í stærra úrvalsdeildarliði á næsta tímabili eins og við sáum hjá Gylfa Þór Sigurðssyni þegar hann fór til Everton?, spurði Ríkharð Guðnason þegar hann hóf umræðuna í Messunni um framtíð Jóhanns Berg Guðmundssonar. „Það gæti alveg verið en ég held að hann passi svo rosalega vel inn í þessa hugmyndafræði hjá Sean Dyche. Hann hefur vaxið eftir því sem hefur liðið á tímabilið. Það sem Jói Berg hefur gert eftir að hann fór að spila í Englandi er að hann hefur bætt sig svakalega í þáttum sem menn er oft ekki mikið að vinna í,“ sagði Jóhannes Karl Guðjónsson. „Það er vinnusemi, það er form, það er styrkur, það er hraði og það er svo mikið sem hann hefur bætt sig í. Það er frábært að sjá að hann sé einn af fyrstu nöfnunum á blað þegar verið er að velja byrjunarliðið. Hann er búinn að stimpla sig virkilega vel inn í þetta lið,“ sagði Jóhannes Karl. „Ég hélt að eitt sé klárt hvort sem Jói fari eða ekki er að það þyrfti að vera dálítið öflugt lið ef hann ætti að hreyfa sig. Ég held að hann fái klárlega nýjan samning. Hann er búinn að tryggja sér nýjan og betri samning,“ sagði Reynir Leósson. „Ég held að við megum ekki vanmeta þátt Lars og Heimis í því hvaða framstigum hann tók sem leikmaður hvað varðar taktík og varnarvinnu. Mér finnst þetta Burnley-lið eins og það var að spila í þessum leik vera eins og spegilmynd eins og íslenska landsliðið spilaði oft á tíðum sína leiki,“ sagði Reynir. Það má sjá þessa umfjöllun Messunnar um Jóhann Berg í spilaranum hér fyrir ofan.
Enski boltinn Mest lesið Óvæntar vendingar á elleftu stundu hjá Elísu í einu sterkasta hlaupi í heimi Sport Ólafur fékk rautt spjald eftir sjö sekúndur í endurkomunni Handbolti Uppgjörið: Serbía - Ísland 102-73 | Mættu með læti en máttu sín lítils undir lokin Körfubolti Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Enski boltinn Dregið í Meistaradeild: Hákon mætir Arsenal og Bayern Fótbolti Jón Arnór byrjar að þjálfa Körfubolti Forsetinn tjáir sig um niðurbrotinn Alvarez: „Þykir þetta mjög miður“ Fótbolti Uppgjörið: Borac - Víkingur 3-1 | Evrópuþátttöku Víkinga lokið Fótbolti „Þeir eru að fara í Evrópuleik bara til að halda klúbbnum á floti“ Fótbolti Svali hættur sem formaður en stutt í val á arftaka Körfubolti Fleiri fréttir Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Savinho til Tottenham frá Manchester City Arsenal telur sig geta náð samkomulagi um kaup á Alvarez Sjáðu sögulegt mark João Pedro í sigri Chelsea Cody Gakpo orðaður við Manchester City Harvey Elliott virðist ekki vera hluti af framtíð Liverpool Sjá meira