Morðingi sendi lögregluþjóni skilaboð fyrir mistök Samúel Karl Ólason skrifar 14. febrúar 2018 16:25 Eftir að Romig var handtekinn sagðist hann þjást af minnisleysi og sagðist heyra raddir. Vísir/Getty
Hinn 52 ára gamli David Romig sendi lögregluþjóni skilaboð fyrir mistök. Í skilaboðunum, sem áttu að fara til eiginkonu hans, sagðist hann búast við því að lögreglan myndi handtaka hann fyrir morðið á kærustu sinni. Romig hefur verið ákærður fyrir morð, að meðhöndla sönnunargögn og að gefa falska skýrslu. Lögreglan segir hann hafa breytt vettvangi morðsins til að láta út fyrir að innbrotsþjófur hefði skotið Sally Kaufmann Ruff, 64 ára kærustu hans til bana.Samkvæmt frétt AP töldu rannsakendur að sönnunargögn styddu ekki sögu Romig um innbrotsþjóf. Einn lögregluþjónninn fékk svo tvö skilaboð frá Romig þar sem hann sagðist eiga von á því að hann yrði handtekinn.Við frekari eftirgrennslan komst í ljós að hann hafði einnig sent eiginkonu sinni skilaboð þar sem hann sagðist hræddur um að hafa gert eitthvað sem hann mundi ekki að ef hann hefði myrt kærustu sína myndi hann svipta sig lífi. Eftir að Romig var handtekinn sagðist hann þjást af minnisleysi og sagðist heyra raddir. Hann hélt því fram að hann hefði upplifað sig fyrir utan líkama sinn og reynt að stöðva sig þegar hann skaut kærustu sína. Hann sagði einnig að hann mundi ekki eftir því að hafa skotið kærustu sína. Svo hefði hann reynt að hylma yfir morðið og koma sökinni á innbrotsþjóf. Hann hafði búið með kærustu sinni í tvö og hálft ár og til stóð að hann myndi erfa allar eigur hennar.
Mest lesið Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Innlent Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta Innlent Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Innlent Segir Reykjavík að verða að Mekka vændisiðnaðar Innlent Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Erlent Lést í slysi á Hálsasveitarvegi Innlent „Ég hef verið kölluð þingmaður dauðans“ Innlent Óljós um tilganginn en þekktu hvert egg Innlent „Þetta er kannski dýrasta tækið sem barnið á“ Innlent Klórför eins og þegar fólk „reynir að losa sig úr kyrkingunni“ Innlent Fleiri fréttir Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Fuglaflensan stráfelldi kópa á suðurskautinu Trump undirritaði samkomulag við Írani Spá allt að fjörutíu stiga hita Rex Heuermann fær lífstíðardóm Eins árs gamalt barn skotið til bana af lögreglumanni Rex Heuermann leiddur fyrir dómara í dag Mette-Marit krónprinsessa fékk ný lungu í vel heppnaðri aðgerð Skopmyndateiknari skotinn til bana Rússnesk freigáta skaut varúðarskotum að skútu í Ermarsundi Rússar skipulögðu íkveikjur gegn forsætisráðherra Bretlands Segjast hafa sprengt olíuhreinsistöð nærri Moskvu Stefna á að hafa ný aðildarríki í styttri ól Öll áhöfnin talin af Samkomulag um samkomulag undirritað og klárt Erfiðir tímar fyrir norsku konungsfjölskylduna Sonur krónprinsessunnar áfrýjar dómi Hrapaði til bana eftir að kennari gleymdi að festa reipi Það sem er vitað um samkomulagið við Írani Kallaði Michelle Obama karlmann á afmælishátíð Trump Sjá meira