Barnabarn Manson fær lík hans Samúel Karl Ólason skrifar 13. mars 2018 13:59 Charles Manson í desember 1969. Vísir/Getty
Dómari í Bandaríkjunum hefur ákveðið að Jason Freeman, barnabarn Charles Manson, mun fá líka hans sem hefur verið á ís í fjóra mánuði. Fjórir aðilar sóttust eftir líki Manson sem er einn alræmdasti glæpamaður í sögu Bandaríkjanna, og lést á sjúkrahúsi í Corcoran-fangelsinu í nóvember. Þar hafði hann setið inni í tæp 30 ár.Árið 1969 leiddi Charles Manson hóp fólks sem fylgdi honum í einu og öllu. Í ágúst það ár fóru fylgjendur Manson á kreik og myrtu sjö manns hrottalega á tveimur dögum. Meðal fórnarlamba Manson og fylgjenda hans var leikkonan Sharon Tate, sem þá var komin átta mánuði á leið. Fjórir gestir hennar voru einnig myrtir á heimili hennar og leikstjórans Roman Polanski. Seinna kvöldið myrti hópurinn verslunareigandann Leno LaBianca og eiginkonu hans, Rosemary.Sjá einnig: Hvar eru hinir meðlimir „Manson-fjölskyldunnar“?Einn aðilinn sem sóttist eftir líki Manson var safnarinn Michael Channels. Sá var vinur Manson og skrifuðust þeir reglulega á. Annar var Michael Brunner sem er sonur Manson. Matthew Lentz vildi einnig fá líkið en hann hélt því einnig fram að hann væri sonur Manson. Að endingu var það Jason Freeman, barnabarn Manson, sem fékk líkið. Channels var með erfðaskrá sem skrifað var undir í febrúar 2002. Dómarinn úrskurðaði hana þó ógilda þar sem Channels sjálfur hafði vottað hana og það fjórum dögum áður en að Manson átti að hafa skrifað undir hana. Hann var ósáttur við niðurstöðu dómarans og sagðist einungis hafa viljað dreifa ösku Manson í eyðimörkinni, eins og hann hefði sjálfur viljað.Lentz sagðist hafa verið getinn af Manson í kynsvalli árið 1967 og að móðir hans, Terry Bruegger, hefði gefið hann frá sér viku eftir fæðingu hans. Hann var þó ekki með neinar sannanir fyrir því og hafði ekki tekið DNA-próf. Manson eignaðist Brunner með Mary Brunner sem var meðlimur „fjölskyldu“ hans. Hann var þó ættleiddur af foreldrum móður sinnar og hafði því ekki rétt á því að erfa Manson. Því fór líkið til Freeman.Sjá einnig: Morðinginn sem drap aldrei neinnFreeman er eina barn sonar Manson, Charles Manson yngri. Móðir hans var Rosalie Willis og var hún um tíma gift Manson. Þau skyldu þó árið 1958 og sonur hans breytti nafni sínu í Charles Jay White. Hann framdi sjálfsmorð árið 1993 og skyldi eftir sig Jason Freeman. Í viðtali við Rolling Stone sagði Freeman að hann hefði ávalt vitað hver afi sinn væri. Þeir hittust aldrei en ræddu reglulega saman í síma á undanförnum árum.
Mest lesið Telja Sævar hafa verið tengilið Kastriots við skipverjana Innlent Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Innlent „Þeir sem taka pening frá veðmálafyrirtækjum ættu að líta í eigin barm“ Innlent Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais Innlent Byrjaði skyndilega að taka konuna hálstaki og hélt í 40 sekúndur Innlent „Ég hélt að það erfiðasta yrði að lifa af nauðgunina sjálfa“ Innlent Lokuðu flugbraut vegna dróna Innlent Hafnarfjörður hafði betur gegn Jóni Rúnari Innlent „Stundum koma upp atvik“ Innlent Grobba sig af stolnum trjám Innlent Fleiri fréttir Blása lífi í glæður Falklandseyjadeilunnar fyrir stórleikinn Rannsaka morð Widdecombe sem hryðjuverk ESB boðar aldurstakmörk á samfélagsmiðlum Segja 2.700 hafa látist vegna hitabylgju Sænskur Evrópuþingmaður kærir danskan kollega til lögreglu McConnell birtir mynd af sér á spítala Íranir og Bandaríkjamenn halda árásunum áfram Miklir skógareldar nærri París Minnst 27 létust þegar eldur kviknaði á bar í Taílandi Níu ára stúlka meðal þeirra sem fórust og árásir enn nær daglegt brauð Tveir látnir eftir að tveir hófu skothríð Maður í haldi grunaður um að hafa myrt fyrrverandi ráðherra Íran og Bandaríkin skiptast á árásum Lindsey Graham er látinn Var látin í sólarhring áður en hún fannst Fjórir í haldi eftir árás á blaðamenn á Vesturbakkanum Tuttugu og þriggja enn saknað eftir mannskæða gróðurelda Félag Kushner hafi fengið landið vegna falsaðra afsala Dermot Murnaghan er látinn Manninum sleppt úr haldi Minnst sextíu látin í árásum Rússa í júlímánuði Herinn sé reiðubúinn að tortíma Íran verði Trump ráðinn af dögum Handtekinn grunaður um morðið á fyrrverandi ráðherra Geta fengið sekt vegna ávanabindandi hönnunar Rannsaka andlát fyrrverandi ráðherra sem morð Heimsins frægasti refill fluttur til Bretlands Lést er hún fagnaði sigri Frakka Le Pen hvergi af baki dottin og stefnir ótrauð á forsetahöllina Hefur svo gott sem tryggt sér forsætisráðherrastólinn Tólf látnir í skógareldum í suðurhluta Spánar Sjá meira