Olían úr íranska skipinu gæti hafa náð ströndum Japans Atli Ísleifsson skrifar 2. febrúar 2018 08:10 Skipið Sanchi brann í nokkra daga áður en það sökk. Vísir/AFP
Olía frá einu mesta olíuslysi síðustu áratuga gæti hafa náð að ströndum Japans. Þetta segir japanska strandgæslan en olíubrák sást í flæðarmáli eyjarinnar Amami-Oshima. Nú er verið að kanna hvort olían sé úr íranska tankskipinu Sanchi sem sökk á Austur-Kínahafi í síðasta mánuði. Reuters greinir frá málinu. Öll áhöfn skipsins, þrjátíu og þrír menn, er talin af, en skipið lenti í árekstri við annað skip og við það blossaði upp mikill eldur. Skipið brann síðan í nokkra daga áður en það sökk, með 136 þúsund tonn af þunnfljótandi olíu innanborðs. Eyjan Amami-Oshima er hluti af eyjaklasa þar sem einnig er að finna eyjuna frægu, Okinawa. Eyjaklasinn er mikil náttúruperla, frægur fyrir hreinar strendur og stór kóralrif. Því óttast menn mjög að mikið umhverfisslys geti verið í uppsiglingu. Japanska umverfisráðuneytið hafði gefið það út í síðasta mánuði að lítil hætta væri á því að olían næði að ströndum Japans.
Tengdar fréttir Gríðarleg olíubrák eftir íranska flutningaskipið sem sökk Brákin er sögð þekja um 120 ferkílómetra svæði í Austur-Kínahafi. 15. janúar 2018 14:29 Íranska skipið Sanchi lekur olíu í tonnavís Íranska olíuflutningaskipið Sanchi, sem sökk í gær eftir að hafa staðið í ljósum logum á Austur-Kínahafi undanfarna viku, lekur nú olíu. Skipið var á leið til Kína með 136.000 tonn af hráolíu, alls um 960.000 tunnur, og er mengunin ekki sjáanleg á yfirborðinu að því er BBC greinir frá. 16. janúar 2018 07:00 Mest lesið Tveir leigubílstjórar sviptir ökuréttindum við Keflavíkurflugvöll Innlent Fjórir karlmenn stálu Labubu í tugatali Erlent „Eins og það væri verið að segja mér að ég ætti tvo mánuði eftir ólifað“ Innlent Furðar sig á viðvaningshætti í Washington og segir fundinn óþarfan Erlent Bláa lónið varar ferðamenn við óprúttnum leigubílstjórum Innlent Eiganda Trump Burger verður sparkað úr landi Erlent Sjaldan fleiri mótmælt ríkisstjórninni Erlent Lögreglan tekur leigubílamálin fastari tökum Innlent Íhugar að bjóða Selenskí eftir allt saman Erlent Tveir á sjúkrahús eftir rafskútuslys Innlent Fleiri fréttir Sæti Artúrs logar Fundur Selenskí, Pútíns og Trump á næsta leiti Stór skjálfti reið yfir í Tyrklandi Furðar sig á viðvaningshætti í Washington og segir fundinn óþarfan Fjórir karlmenn stálu Labubu í tugatali Sjaldan fleiri mótmælt ríkisstjórninni Íhugar að bjóða Selenskí eftir allt saman Úkraína og Evrópa óttast meðvirkni Trump Bjartsýn á að Trump nái árangri með Pútín Eiganda Trump Burger verður sparkað úr landi Mexíkó hafnar aftur hermönnum Trumps „Úkraínumenn þurfa örugglega að gefa eftir land“ Skotárás á Times Square Nyrsta olíuvinnslusvæði Noregs formlega opnað Eldur kviknaði í sögufrægri dómkirkju Gefur ekkert landsvæði eftir Aserar og Armenar skrefi nær friði eftir sögulegan fund í Hvíta húsinu Geimfari Apollo 13 látinn Trump og Pútín funda í Alaska næsta föstudag Rekinn eftir tvo mánuði hjá skattinum og samdægurs tilnefndur sendiherra á Íslandi Ákvörðun öryggisráðsins til marks um enn frekari stigmögnun Skipar hernum í hart við glæpasamtök Stefni á tilraun með kjarnorkuknúna eldflaug á norðurslóðum Fann hagtölur sem honum líkar og hélt óvæntan blaðamannafund Skýrasta myndin af halastjörnunni, eða vopninu, hingað til Sakaði „sveppamorðingjann“ um að hafa eitrað fyrir sér í þrígang Rússar enn að fá „samstöðustyrki“ en Úkraínumenn ekki Sektaður fyrir að aka á 321 kílómetra hraða Keppa við Kínverja og Rússa um að koma kjarnakljúfi til tunglsins Öryggisráðið ákveður að taka yfir Gasa-borg Sjá meira
Gríðarleg olíubrák eftir íranska flutningaskipið sem sökk Brákin er sögð þekja um 120 ferkílómetra svæði í Austur-Kínahafi. 15. janúar 2018 14:29
Íranska skipið Sanchi lekur olíu í tonnavís Íranska olíuflutningaskipið Sanchi, sem sökk í gær eftir að hafa staðið í ljósum logum á Austur-Kínahafi undanfarna viku, lekur nú olíu. Skipið var á leið til Kína með 136.000 tonn af hráolíu, alls um 960.000 tunnur, og er mengunin ekki sjáanleg á yfirborðinu að því er BBC greinir frá. 16. janúar 2018 07:00