Aukin morðtíðni í London áhyggjuefni Þórdís Valsdóttir skrifar 1. apríl 2018 21:27 Morðtíðni í borginni hefur aukist á árinu.
Mikil aukning hefur verið á ofbeldisglæpum í höfuðborg Bretlands og í febrúar- og marsmánuðum voru fleiri morð framin í borginni heldur en í New York. Íbúafjöldi borganna er svipaður. BBC greinir frá. Á þessu ári hafa 46 einstaklingar verið stungnir, skotnir eða á annan hátt særðir til ólífis í London, samanborið við 50 í New York. Mánaðarleg morðtíðni í New York hefur þó minnkað á milli mánaða á meðan hún hefur aukist í London. Fyrrverandi lögreglumaður í London líkir aukinni glæpatíðni í London við veiru. Hann segist ekki skilja hvernig hlutirnir hafa farið úr böndunum. „Við höfum séð ofbeldis-veiru breiðast út. Þetta er landlæg sótt í fjölmörgum hlutum samfélagsins,“ segir Leroy Logan, fyrrverandi lögreglumaður. Hann segir að eina leiðin til þess að vinna bug á „veirunni“ sé að lögregluyfirvöld starfi í samstarfi með mismunandi hlutum samfélagsins. Borgaryfirvöld eru sögð hafa áhyggjur af hnífstungum í borginni en staðhæfa þó að London sé „ein öruggasta borg heims“. Talsmaður lögreglu í London segir að lögreglan hafi áhyggjur af aukinni morðtíðni í London. „Eitt morð er einu morði ofaukið og við erum að vinna að því með samstarfsmönnum okkar að því að skilja hvers vegna tíðnin hefur aukist og hvað við getum gert til þess að koma í veg fyrir slíka harmleiki,“ segir talsmaðurinn. Bresk yfirvöld hafa hrint af stað nýrri auglýsingaherferð í þeim tilgangi að fæla ungmenni á aldrinum 10 til 21 árs frá stunguárásum. Í auglýsingunum verða sagðar sögur af unglingum sem orðið hafa fyrir stunguárásum.
Mest lesið „Fólk er bara slegið“ Innlent „Ég er hræddur við þessa menn“ Innlent Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Innlent „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Innlent Þúsundir kalla eftir afsögn Þorgerðar: „Vandræðaleg tilraun“ Innlent Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Innlent Blása á gagnrýni og opna dagatalið Innlent Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu Innlent Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Innlent Bannar innflutning á kanadískum vörum Erlent Fleiri fréttir Leggur stefnu AfD að jöfnu við þjóðernishreinsanir Farage kemur frönskum skoðanabróður í klandur Banna breskum þingmönnum að koma til Ísraels Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Rétta yfir rússneskum skipstjóra sem sleit sæstrengi við Finnland Leita enn að Renoir-þjófunum Bannar innflutning á kanadískum vörum Réðust á fleiri olíuflutningaskip Skutu tugum eldflauga og dróna að borgum Sádi-Arabíu Töluðu saman í klukkutíma Handtaka grunaðan spellvirkja í Þýskalandi Fordæma útförina sem „Slátrarinn“ fékk í Serbíu Grípa saman til aðgerða gegn ísraelskum landtökumönnum Allir þeir látnu í bílum sem flugvélin rann á Dýrmætum listaverkum stolið af safni Renoir Starfsmenn í verkfall eftir heimsókn trúarhóps Kim fjölgar herskipum sínum Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Klerkastjórnin missir tökin Rússar svara fyrir sig Ísland á Ameríkukorti Trumps Stöðnun og dýrtíð að baki stórsigri AfD Kanslarinn segir sigur AfD draga dilk á eftir sér Svíþjóðardemókrati í leyfi vegna Rússaáróðurs og hreinsanir á vinstri vængnum Útlit fyrir fyrstu fjarhægristjórnina frá endalokum nasismans Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Ýmislegt bendi til stjórnarskipta í Svíþjóð Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Útgönguspár benda til stórsigurs AfD Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Sjá meira