Þrenna Aguero sökkti Newcastle Arnar Geir Halldórsson skrifar 20. janúar 2018 19:15 Sergio Aguero hlóð í þrennu Vísir/Getty Topplið Manchester City er aftur komið á sigurbraut í ensku úrvalsdeildinni eftir öruggan tveggja marka sigur á Newcastle á Etihad leikvangnum í kvöld. Leikurinn var markalaus þar til á 34.mínútu þegar Sergio Aguero fann leiðina fram hjá þéttum varnarmúr gestanna. Aguero var svo aftur á ferðinni eftir rúmlega klukkutíma leik þegar hann skoraði úr vítaspyrnu eftir að brotið hafði verið á Raheem Sterling. Gestirnir voru ekki tilbúnir að gefast upp alveg strax því Jacob Murphy minnkaði muninn á 67.mínútu. Aguero var hins vegar ekki hættur og gerði endanlega út um leikinn þegar hann fullkomnaði þrennu sína á 83.mínútu eftir algjörlega stórkostlegan undirbúning Leroy Sane. City er því enn með tólf stiga forystu á toppi deildarinnar en Newcastle er tveimur stigum frá fallsæti eftir 24 leiki. Enski boltinn
Uppgjörið og viðtöl: Breiðablik - KA 3-1| Mikilvægur sigur Blika en vandræði KA halda áfram Íslenski boltinn
Uppgjörið: Víkingur - Fram 5-0 | Elías Már með þrennu í stórsigri Víkings í toppslagnum Íslenski boltinn
Uppgjörið: ÍBV-Stjarnan 2-1| Endurkomusigur Eyjamanna og uppskerubrestur Stjörnunnar Íslenski boltinn
Uppgjörið og viðtöl: FH - Þór Ak. 1-1| Úrslit sem gera lítið fyrir bæði lið í fallbaráttunni Íslenski boltinn