Upphitun: Ná Jóhann Berg og félagar aftur að stríða Manchester United? | Myndband Kristinn Páll Teitsson skrifar 20. janúar 2018 10:00
Alls fara átta leikir fram í ensku úrvalsdeildinni í dag en þar ber hæst að nefna leik Burnley og Manchester United á Turf Moor. Burnley var aðeins nokkrum mínútum frá sigri á Old Trafford þegar liðin mættust á dögunum en Jesse Lingard bjargaði United með marki í uppbótartíma. Síðan þá hefur Burnley aðeins fengið eitt stig í þremur leikjum og aðeins skorað eitt mark en þeir taka á móti Manchester United sem hefur verið á góðu skriði. Í hádeginu tekur Brighton á móti Chelsea en heimamenn hafa aðeins unnið einn af síðustu tólf leikjum. Chelsea hefur gengið bölvanlega fyrir framan markið en Chelsea hefur aðeins skorað eitt í síðustu fjórum. Lærisveinar Antonio Conte sluppu með skrekkinn í vítakeppni gegn Norwich í vikunni en Pedro og Alvaro Morata eru báðir í banni í dag eftir að hafa fengið rauð spjöld í þeim leik. Arsenal tekur á móti Crystal Palace í Lundúnarslag og verða að teljast líklegri aðilinn en líklegt er að Alexis Sanchez taki ekkert þátt í leiknum á meðan gengið er frá félagsskiptum hans til Manchester United. Gylfi Þór Sigurðsson verður væntanlega í eldlínuni er Everton tekur á móti West Brom á heimavelli en líklega fær Theo Walcott fyrstu mínútur sínar í treyju Everton eftir vistaskipti frá Arsenal á dögunum. Þá tekur Leicester á móti Watford, West Ham mætir Bournemouth á heimavelli og Stoke mætir Huddersfield á heimavelli í fyrsta leik sínum undir stjórn Paul Lambert. Í lokaleik dagsins tekur svo Manchester City á móti nýliðum Newcastle á heimavelli eftir fyrsta tap vetrarins á dögunum gegn Liverpool.
Enski boltinn Mest lesið Aðeins sautján konur með betri tíma en Elísa í ógnarsterku utanvegahlaupi Sport Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Enski boltinn Ver umdeilda veggmynd sína af Ronnie O'Sullivan Sport Linda Líf gengur til liðs við nýliðana í enska boltanum Sport Hákon skoraði glæsimark gegn PSG Fótbolti Valsmenn slógu í klárinn undir lokin Handbolti Bjarni ræðir brottförina frá Val: „Erfitt að ná alvöru stöðugleika“ Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Enski og Bestu deildirnar í aðalhlutverki Sport Systurnar báðar með tvö mörk á Ásvöllum og KR upp í annað sætið Íslenski boltinn Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Enski boltinn Fleiri fréttir PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Savinho til Tottenham frá Manchester City Arsenal telur sig geta náð samkomulagi um kaup á Alvarez Sjáðu sögulegt mark João Pedro í sigri Chelsea Cody Gakpo orðaður við Manchester City Sjá meira