Ellen Page sakar Brett Ratner um fordóma og áreitni Ingvar Þór Björnsson skrifar 10. nóvember 2017 21:03 Page kom út úr skápnum árið 2014. Vísir/AFP
Leikkonan Ellen Page segir að Brett Ratner hafi áreitt hana þegar þau unnu saman að gerð myndarinnar „X-Men: The Last Stand“ árið 2006 sökum kynhneigðar hennar. Ellen skrifaði færslu á Facebook síðu sinni í dag þar sem hún talar um hegðun leikstjórans. „Hann leit á konu sem stóð við hliðina á mér og sagði að hún þyrfti að ríða mér til að láta mig átta mig á að ég væri samkynhneigð,“ skrifaði Ellen. Leikkonan var átján ára þegar myndin var tekin upp og segir hún að þetta hafi ekki verið einsdæmi hjá leikstjóranum. Page kom út úr skápnum árið 2014 en vissi þó fyrir það að hún væri samkynhneigð. Segir hún að Brett hafi stöðugt látið hana líða illa sökum kynhneigðar hennar. Þá á hann að hafa sagt niðrandi hluti um konur ítrekað á meðan á gerð myndarinnar stóð.Fyrir viku sökuðu sex konur Brett um kynferðislega áreitni. L.A. Times tók saman sögur sex kvenna, þar á meðal leikkvennanna Olivia Munn og Natasha Henstridge, sem sökuðu leikstjórann um ágenga, hrottalega og óæskilega kynferðislega hegðun. Olivia Munn sagðist til að mynda hafa heimsótt Ratner á tökustað myndarinnar After the Sunset árið 2004 þar sem hann fróaði sér fyrir framan hana á meðan hann hélt á rækjukokteil.
Mest lesið Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Uppsagnir hjá Klettabæ Innlent Fleiri fréttir Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Marco Rubio á leið til Íslands Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Sjá meira