Umsátrið í Sydney: Lögreglan sögð hafa brugðist of seint við Samúel Karl Ólason skrifar 24. maí 2017 11:15 Lögregluþjónar reyna að ná sambandi við gísl og segja honum að hlaupa út. Sem hann svo gerði og slapp gíslinn. Vísir/AFP
Lögreglan í Ástralíu var of lengi að ráðast til atlögu gegn gíslatökumanni sem hélt fólki í gíslingu á kaffihúsi í Sydney árið 2014. Þetta er niðurstaða sérstakar rannsóknar dánardómstjóra á atvikinu en þrír létu lífið að meðtöldum árásarmanninum sem hét Man Haron Monis. Hann hafði lýst yfir hollustu við Íslamska ríkið. Monis tók sautján manns í gíslingu á Lindt Chocolate kaffihúsinu og neyddi þau til þess að lesa upp kröfur hans fyrir myndbandsupptökur. Eftir um sextán klukkustunda umsátur neyddi Monis gíslinn Tori Johnson á hnéin og hleypti af viðvörunarskoti og segir dánardómsstjórinn Michael Barnes að lögreglan hefði átt að ráðast inn á kaffihúsið um leið og það gerðist. Lögreglan gerði það hins vegar ekki fyrr en um tíu mínútum seinna, en þá hafði Monis myrt Tori Johnson. Johnson mun hafa reynt að afvopna Monis þegar hann dó. Katrina Dawson lét einnig lífið í gíslatökunni, en hún varð fyrir brotum úr byssukúlu lögregluþjóns. Eitt brotið lenti í öxl hennar og annað í hjartanu.Þá setur Barnes út á stefnu lögreglunnar í málum sem þessum. Stefnan sú kallast contain and negotiate, eða einangra og semja. Barnes segir þá stefnu hafa verið rétta í byrjun, en að lögreglan hafi ekki áttað sig á ógninni sem stafaði af Monis og að samningaviðræður voru ekki að fara að nást. Hann gagnrýndi einnig að leyniskyttur lögreglunnar hefðu ekki skotið Monis til bana þegar færi gafst. Þrjár leyniskyttur voru umhverfis kaffihúsið. Skytturnar sjálfar og yfirmenn þeirra töldu hins vegar að þeir hefðu ekki lagalegan rétt á því að skjóta Monis án þess að ógnaði lífi gíslanna beint. Dánardómsstjórinn segir það vera óþarfa takmörkun á valdi þeirra og vanmat á þeirri ógn sem stafaði af Monis.Ekki lögreglunni að kenna Barnes tók þá skýrt fram í niðurstöðum sínum, samkvæmt ABC í Ástralíu, að það væri Monis að kenna að fólk hefði dáið. Ekki lögreglunni. Jafnvel þó allar aðgerðir lögreglunnar hefðu farið á besta veg væri ekki hægt að alhæfa að niðurstaðan hefði verið betri. Að fleiri gíslar hefðu yfirgefið kaffihúsið á lífi. Þegar Monis tók fólk í gíslingu, gekk hann laus á tryggingu og beið réttarhalda vegna 46 brota sem hann hafði verið sakaður um. Þar á meðal var hann sakaður um að vera meðsekur í morði fyrrverandi eiginkonu sinnar. Barnes segir saksóknara ekki hafa gert nóg til að tryggja að Monis gengi ekki laus. Þá var Monis ekki á lista yfirvalda yfir mögulega hryðjuverkamenn. Skömmu eftir árásina hét Tony Abbott, þáverandi forsætisráðherra Ástralíu að kannað yrði í þaula af hverju Monis hefði gengið laus.Óttuðust sprengjuhótanirFyrir sitt leyti segir Mick Fuller, yfirmaður lögreglunnar í Nýja Suður-Wales, að Barnes hafi rétt fyrir sér. Þeir hefðu átt að ráðast gegn Monis fyrr og ekki bíða eftir því að Tori Johnson var skotinn til bana. Monis hafði þá sagt lögreglunni að hann væri með sprengju, sem dró úr vilja lögreglunnar til að ráðast til atlögu gegn honum. Leiðtogi sérsveitar lögreglunnar hafði beðið yfirmenn sína um leyfi til að ráðast til atlögu og bjarga gíslunum en yfirmenn lögreglunnar neituðu. Við yfirheyrslur sagði sá sem stjórnaði aðgerðum á vettvangi í lok gíslatökunnar að hann hafi búist við því að þegar hann skipaði mönnum sínum að ráðast til atlögu að enginn þeirra myndi snúa aftur og að allir gíslarnir myndu einnig deyja í sprengingu. Fuller segir að hann muni breyta vinnureglum lögreglunnar og að meira afli verið beytt í framtíðinni.
Mest lesið Segir um að ræða alvarlega aðför að sjálfstæði forseta Íslands Innlent Fífldjarft að fara í formanninn en varaformannsembættið...? Innlent Hýdd 140 sinnum fyrir áfengisneyslu og kynlíf utan hjónabands Erlent Ákæru fyrir manndráp vísað frá Erlent Vísar því á bug að HSÍ fái ekkert fyrir sinn snúð Innlent Nýbirt skjöl varpa ljósi á dánarstund Epstein Erlent Ríkisstjórnin rugli og olíufélögin ekki sökudólgurinn Innlent Forsætisráðherra muni alltaf hafa samráð við forseta Innlent Játaði brot sín og sleppur ekki aftur við fangelsisvist Innlent Afar sérstakt að lækka laun og það á verkalýðsdaginn sjálfan Innlent Fleiri fréttir Nýbirt skjöl varpa ljósi á dánarstund Epstein Ákæru fyrir manndráp vísað frá Trump útnefnir Warsh sem næsta seðlabankastjóra Tíu ákærðir fyrir að drepa friðaða úlfa Trump vill hafa Pútín og Xi út af fyrir sig Hýdd 140 sinnum fyrir áfengisneyslu og kynlíf utan hjónabands Trump segir Pútín hafa samþykkt hlé á árásum á Kænugarð Njósnastjóri Trumps leitar að kosningasvindli Reyndi að frelsa Mangione vopnaður pítsaskera Saksóknarar hóta uppreisn í Minneapolis „Hættulegasti maður Noregs“ fannst látinn í fangaklefa Segir Venesúela munu þurfa að sækja um úthlutun úr eigin olíusjóði í Katar Ellefu meðlimir glæpafjölskyldu teknir af lífi í Kína Fundu fjarlægustu vetrarbrautina hingað til Segir útsendara „mögulega“ ekki hafa fylgt verkreglum Segir Trump ekki reiðan Íslandi Dómsdagsklukkan færð fram Sendir herskipaflota að Íran og hótar „ofbeldi“ Helsta klappstýran sögð slegin yfir sálarástandi Trumps Verða ekki viðstödd réttarhöld stjúpsonarins Vilja veita þúsundum sem dvelja ólölega á Spáni dvalarleyfi Ná saman um myndun minnihlutastjórnar í Hollandi Maður sprautaði illa lyktandi vökva á Ilhan Omar Róa á nýnasistamið í leit að ICE-liðum Dómari stöðvar brottflutning Liam og föður hans Bandaríkin hyggja á heræfingar í Mið-Austurlöndum Svíar líta til kjarnorkuvopna Tónninn breytist með yfirmannaskiptum hjá ICE Tala fallinna og særðra nálgast tvær milljónir Svíar hyggjast lækka sakhæfisaldur Sjá meira