Macron kynnir umdeildar tillögur sínar um aukinn sveigjanleika á vinnumarkaði Atli Ísleifsson skrifar 31. ágúst 2017 10:33 Nokkuð hefur dregið úr vinsældum Emmanuel Macron að undanförnu. Vísir/AFP
Emmanuel Macron Frakklandsforseti kynnir í dag umdeildar tillögur sínar um breytingar á vinnumarkaðslöggjöfinni í landinu. Búist er við miklum mótmælum í landinu í næsta mánuði þegar þingið mun greiða atkvæði um málið. Núgildandi löggjöf er um þrjú þúsund síður og segir til um réttindi launþega. Breytingarnar, sem var eitt af helstu kosningaloforðum Macron síðasta vor, ganga meðal annars út á að auka möguleikann á tímabundnum ráðningum, auðvelda vinnuveitendum að segja upp fólki með því að draga úr starfslokagreiðslum, og auka möguleika vinnuveitenda að semja sjálf við launþega í stað þess að fara að ákvæðum miðlægra samninga. Nokkuð hefur dregið úr vinsældum Macron að undanförnu, en hann vill auka sveigjanleika á vinnumarkaði til að draga úr atvinnuleysi í landinu, sem mælist um 10 prósent. Tillögurnar eru í um sextíu liðum, alls 150 blaðsíðna skjali. „Við erum eina stóra hagkerfið innan ESB sem hefur ekki tekist að draga úr fjöldaatvinnuleysi í rúma þrjá áratugi,“ sagði Macron í samtali við Le Point. Samtök launþega og margir vinstrimenn óttast að með breytingunum verði dregið verulega úr réttindum launþega. Franskir fjölmiðlar segja að stéttarfélagið CGT hafi hótað verkföllum og mótmælum þann 12. september vegna breytinganna. Þá skipuleggur vinstrimaðurinn Jean-Luc Mélenchon fjölmenn mótmæli í París þann 23. september.
Tengdar fréttir Atvinnuleysi minnkar í evrulöndum Atvinnuleysi er þó enn mikið á Grikklandi, 21,7 prósent og á Spáni,17,1 prósent. 2. ágúst 2017 17:00 Mest lesið Boðuð í þingsal á versta tíma: „Brynjar, þú ert nú meiri gaurinn!“ Innlent Róa á nýnasistamið í leit að ICE-liðum Erlent Segir Trump ekki reiðan Íslandi Erlent Helsta klappstýran sögð slegin yfir sálarástandi Trumps Erlent Hættu að fá boð á vísindaráðsfundi almannavarna: „Menning þöggunar og útilokunar“ Innlent Kvaddi hundinn sem bjargaði lífi hennar uppi í rúmi Innlent Afneitun helfararinnar verði gerð refsiverð og fræðsla aukin Innlent Óvissa um framboð bæði Írisar og listans Innlent Innlit á Litla-Hraun í erlendri heimildarmynd Innlent Ákærður fyrir að taka son sinn hálstaki Innlent Fleiri fréttir Segir útsendara „mögulega“ ekki hafa fylgt verkreglum Segir Trump ekki reiðan Íslandi Dómsdagsklukkan færð fram Sendir herskipaflota að Íran og hótar „ofbeldi“ Helsta klappstýran sögð slegin yfir sálarástandi Trumps Verða ekki viðstödd réttarhöld stjúpsonarins Vilja veita þúsundum sem dvelja ólölega á Spáni dvalarleyfi Ná saman um myndun minnihlutastjórnar í Hollandi Maður sprautaði illa lyktandi vökva á Ilhan Omar Róa á nýnasistamið í leit að ICE-liðum Dómari stöðvar brottflutning Liam og föður hans Bandaríkin hyggja á heræfingar í Mið-Austurlöndum Svíar líta til kjarnorkuvopna Tónninn breytist með yfirmannaskiptum hjá ICE Tala fallinna og særðra nálgast tvær milljónir Svíar hyggjast lækka sakhæfisaldur „Móðir allra samninga“ Um þriðjungur Dana fær 50 þúsund króna „matartékka“ beint í vasann frá ríkinu Segja mögulegt að yfir 30.000 hafi verið drepin í mótmælunum Franska þingið samþykkti símabann hjá börnum Evrópusambandið og Indland ganga frá fríverslunarsamningi Bovino sendur til Kaliforníu og Leavitt dregur í land Lét þingmenn heyra það og sagði Evrópu ekki geta varið sig sjálfa Trump sagður hafa lofað óháðum rannsóknum í Minnesota Einn lifði flugslys í Maine af en sjö dóu Hafa fundið lík síðasta gíslsins á Gasa Börnin heima þegar móðir þeirra var stungin til bana Flugferðum aflýst og hvatt til heimavinnu vegna snjókomu Leita að líkamsleifum síðasta gíslsins Morðið á Pretti gagnrýnt úr ólíklegustu áttum Sjá meira
Atvinnuleysi minnkar í evrulöndum Atvinnuleysi er þó enn mikið á Grikklandi, 21,7 prósent og á Spáni,17,1 prósent. 2. ágúst 2017 17:00