Graham Taylor er látinn Tómas Þór Þórðarson skrifar 12. janúar 2017 13:49 Graham Taylor. vísir/getty
Graham Taylor, fyrrverandi þjálfari enska landsliðsins, er látinn, 72 ára að aldri. „Það er með mikilli sorg að við þurfum að tilkynna að Graham féll frá snemma í morgun en grunur leikur á hjartaáfalli. Fjölskyldan er í sárum vegna þessa óvænta og sorglega fráfalls,“ segir í tilkynningu frá fjölskyldu Grahams Taylors sem send var á fjölmiðla í Bretlandi í dag. Taylor spilaði með neðri deildar liðunum Grimbsy og Lincoln á sínum leikmannaferli. Hann þurfti að hætta 28 ára vegna meiðsla og tók þá við Lincoln sem hann gerði að D-deildarmeistara. Eftir það tók hann við Watford en hann er goðsögn hjá stuðningsmönnum félagsins eftir það sem hann gerði fyrir Watford. Hann kom liðinu úr D-deild og upp í efstu deild á fimm árum eftir að hann tók við því árið 1977. Watford hafnaði í öðru sæti í efstu deild árið 1983 og lék til úrslita í bikarnum árið 1984. Taylor tók svo við Aston Villa árið 1987 og kom liðinu upp í efstu deild en það hafði fallið úr efstu deild árið áður. Hann skilaði silfri í efstu deild til Villa árið 1990 þegar Liverpool vann sinn síðasta Englandsmeistaratitil. Sumarið 1990 tók hann við enska landsliðinu eftir HM á Ítalíu og stýrði því í þrjú ár. Hann fór með England á EM í Svíþjóð 1992 en sagði af sér eftir að enska liðinu mistókst að tryggja sér sæti á HM í Bandaríkjunum árið 1994. Taylor átti eftir að stýra Úlfunum, Watford og Aston Villa aftur áður en hann hætti í þjálfun en hann gerðist stjórnarformaður Watford árið 2009 og starfaði þar í þrjú ár. Hann var síðar gerður að heiðursforseta Watford.
Enski boltinn Mest lesið Arnar Daði rekinn frá Stjörnunni en áfram þjálfari kvennaliðsins Handbolti Koepka fyrsta stjarnan sem riftir samningi við LIV Golf Ótrúlegur sigur á HM: „Ég er mjög tregur svo pressan nær ekki til mín“ Sport „Þetta er stærsti klúbbur Íslands“ Íslenski boltinn Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City Enski boltinn Sagan ekki sönn: „Veit ekki hvaðan þetta á að hafa komið“ Íslenski boltinn Öll höllin æpti nafn Gísla í spennutrylli Handbolti Þessi tíu eru tilnefnd sem Íþróttamaður ársins 2025: 23 ára aldursmunur Sport Arsenal í undanúrslit eftir vító Enski boltinn Kaupmannahafnarbúi afgreiddi Úganda Fótbolti Fleiri fréttir Arsenal í undanúrslit eftir vító Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City „Tölfræðilega séð eiga þeir ekkert að vera í þessari stöðu“ Chelsea setur sig í samband við Semenyo Jiménez jafnaði bestu vítaskyttu sögunnar Slot mun sakna Isak í tvo mánuði eftir „glórulausa tæklingu“ Sjáðu „auma“ vítið sem skilaði Fulham sigri Fulham skildi Forest eftir við fallsvæðið Áfallið staðreynd og Isak búinn í aðgerð Fagnaði titli Liverpool sem óður maður um alla borg „Allir virðast elska hann“ „Þetta mun ekki buga okkur“ Guardiola mun vigta leikmenn Man City eftir jólin „Ef þið væruð Antoine Semenyo, hvert mynduð þið fara?“ Sjáðu mörkin: Rogers sá um Manchester United Óttast að Isak hafi fótbrotnað Tvenna frá Rogers tryggði Villa sigur gegn Manchester United Fimmta sinn sem Arsenal er á toppnum um jólin: Unnu ekki titilinn í fyrstu fjögur skiptin „Viljum við að okkar verði minnst fyrir að vera skræfur?“ „Ef dómarinn hefði sinnt sínu starfi almennilega hefði Romero ekki fengið spjald“ Haaland gaf barnabarni Hareide gjöf Sjáðu mörkin úr enska: Sviptingar, sænskt þema og svakalegar tæklingar Calvert-Lewin hættir ekki að skora Gyökeres skaut Arsenal aftur á toppinn Slot fámáll um stöðuna á Isak Gleði og sorg í sigri Liverpool Dramatík er Broja reyndist hetja Burnley Haaland frábær er Manchester City komst á toppinn Andri Lucas skoraði í langþráðum sigri Blackburn Chelsea vann upp tveggja marka forskot á St James' Park Sjá meira