Sagði Íslendingum frá áhrifum fjárframlaga Samúel Karl Ólason skrifar 17. febrúar 2017 12:00 Börn að leik í Maiduguri. Vísir/AFP
Upplýsingafulltrúi hjá UNICEF í Vestur-Afríku, Patrick Rose, var í beinni á Facebook í gær frá næringarmiðstöð í norðausturhluta Nígeríu og sýndi fólki á Íslandi hvernig framlögin í neyðarsöfnun UNICEF á Íslandi fyrir jól höfðu bein áhrif á líf vannærðra barna. Patrick er staddur í flóttamannabúðum nærri Maiduguri í norðausturhluta Nígeríu þar sem ástandið á seinasta ári var einna verst. UNICEF sendi þá út neyðarákall, enda var líf ótal barna í bráðri hættu. Staðan er mun betri núna en hún var samkvæmt tilkynningu frá samtökunum. „Með hjálp UNICEF hafa mörg börn náð bata,“ segir heilbrigðisstarfsmaðurinn Ayisha í vídeóinu, en færri alvarlega vannærð börn koma til hennar nú en áður. Útsendingin fór fram úr næringarmiðstöð sem sett hefur verið upp, þar sem mæður koma með vannærð börn sín og fá meðferð. „Þegar börnin eru alvarlega vannærð verður ónæmiskerfi þeirra svo veikt að þau smitast af alls kyns algengum sjúkdómum, sýkingum í öndunarfærum, niðurgangspestum og malaríu. Ónæmiskerfið þeirra er ekki nógu sterkt til að berjast gegn þessu. Það sem fer fram hér eru því aðgerðir sem bjarga lífi barna. Og þið Íslendingar hafið staðið með okkur til að hjálpa til við að gera þessa hluti mögulega,“ segir Patrick Rose í vídeóinu. Neyðarsöfnun UNICEF á Íslandi fyrir vannærð börn í Nígeríu og nágrannaríkjunum fékk afar sterk viðbrögð og yfir 20 milljónir króna söfnuðust í nóvember og desember á seinasta ári. „Ég er svo þakklátur fyrir alla á Íslandi sem styðja okkur. Ég veit að þið hafið virkilega látið ykkur varða hvað er að gerast hér í Nígeríu,“ segir Patrick. „Ég vildi bara fara með ykkur inn á þessa heilsugæslustöð í dag og gefa ykkur smá tilfinningu fyrir því hvernig er hérna,“ segir hann. Framlög heimsforeldra hafa einnig runnið til neyðaraðgerða UNICEF.
Tengdar fréttir „Ímyndið ykkur hvað hægt er að gera fyrir þúsund krónur“ Starfsmaður UNICEF í Afríku talar við Íslendinga. 18. nóvember 2016 13:49 „Ég veit að ég get gert eitthvað í því“ Árni Vilhjálmsson tekur þátt í nýjasta ákalli UNICEF vegna hrikalegs ástands í Nígeríu og nágrannaríkjum. 17. nóvember 2016 15:25 Átakanlegt myndband UNICEF sýnir viðvarandi vanda sem steðjar að börnum á flótta UNICEF frumsýndi á dögunum áhrifaríkt myndband sem sýnir með sláandi hætti þann viðvarandi vanda sem steðjar að börnum sem þurfa að flýja stríðsátök. 13. febrúar 2017 13:30 Gjafir UNICEF seljast vel eftir jólakveðju Prins Póló Íslendingar hafa verið duglegir við að gefa gjafabréf með hlýjum teppum, sem dreift er í flóttamannabúðir. 6. desember 2016 10:57 Sendu hjálpargögn til barna í nafni 624 íslenskra fyrirtækja Landsbankinn verðlaunar framúrskarandi fyrirtæki með sönnum gjöfum UNICEF. 10. febrúar 2017 11:54 Ýmislegt sem Íslendingar geta gert til að hjálpa íbúum Aleppo Framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi segir að við verðum að halda áfram að hjálpa. 14. desember 2016 21:57 Mest lesið „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Innlent Halla Hrund eigi langt í land með að tryggja sér embættið Innlent Hvernig ætlar ríkið að sækja milljónirnar 360 sem Haraldur gaf? Innlent Hefur ekki áhuga á slúðurfréttum af öðrum frambjóðendum Innlent Ríflega fjörutíu prósent líst illa á Katrínu Innlent „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Innlent Varaforsetaefni í bobba vegna hundsdráps og meints fundar með Kim Erlent Ók á tvö hundruð með lögguna á hælunum Innlent Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin Innlent Flugvél Atlanta á tæpasta vaði í Ríad Erlent Fleiri fréttir Landsmenn ánægðir með frammistöðu Höllu Tómasdóttur í kappræðunum Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Hefur ekki áhuga á slúðurfréttum af öðrum frambjóðendum Tólf tíma tökudagar og svo forsetaframboð Hvernig ætlar ríkið að sækja milljónirnar 360 sem Haraldur gaf? Flottustu Mustang bílarnir landsins til sýnis í dag Halla Hrund eigi langt í land með að tryggja sér embættið Rýnt í forsetakappræður og fylgst með Bakgarðshlaupi „Ég get ekki annað en sagt satt“ Ríflega fjörutíu prósent líst illa á Katrínu „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Sigu niður í Gretti sterka og dældu úr honum sjó Ók á tvö hundruð með lögguna á hælunum Sólríkasta byrjun árs í Reykjavík í 77 ár Hafa rukkað þá sem valda sinubruna um kostnað við útkall Ótrúlegustu aðskotahlutir gera óskunda í dósatalningarvélum Fjöldi verkfallsboðana á Keflavíkurflugvelli áhyggjuefni Kosið um sameiningu Húna- og Skagabyggðar í júní Nýjustu skoðanakannanir, verkfallsaðgerðir á flugvellinum og týndur gaffall Halla Hrund líka vinsæll annar kostur Kolbeinn hafi strokið kynfæri stúlkunnar ítrekað Segja lýðræðis- og mannréttindabakslag staðreynd Ný sendiskrifstofa opnuð í Síerra Leóne Baldur segir niðurstöður nýjustu kannana vonbrigði Halla Hrund mælist með mest fylgi í nýrri könnun Maskínu Tilvísunum vegna skekkju á höfuðkúpu ungbarna fjölgað mikið Fréttaskýring Maríu Sigrúnar kemur út á mánudag Einar segir forsetaembættið um ekki neitt Svona gæti bensínstöðvarreiturinn við Ægisíðu litið út Sjá meira
„Ímyndið ykkur hvað hægt er að gera fyrir þúsund krónur“ Starfsmaður UNICEF í Afríku talar við Íslendinga. 18. nóvember 2016 13:49
„Ég veit að ég get gert eitthvað í því“ Árni Vilhjálmsson tekur þátt í nýjasta ákalli UNICEF vegna hrikalegs ástands í Nígeríu og nágrannaríkjum. 17. nóvember 2016 15:25
Átakanlegt myndband UNICEF sýnir viðvarandi vanda sem steðjar að börnum á flótta UNICEF frumsýndi á dögunum áhrifaríkt myndband sem sýnir með sláandi hætti þann viðvarandi vanda sem steðjar að börnum sem þurfa að flýja stríðsátök. 13. febrúar 2017 13:30
Gjafir UNICEF seljast vel eftir jólakveðju Prins Póló Íslendingar hafa verið duglegir við að gefa gjafabréf með hlýjum teppum, sem dreift er í flóttamannabúðir. 6. desember 2016 10:57
Sendu hjálpargögn til barna í nafni 624 íslenskra fyrirtækja Landsbankinn verðlaunar framúrskarandi fyrirtæki með sönnum gjöfum UNICEF. 10. febrúar 2017 11:54
Ýmislegt sem Íslendingar geta gert til að hjálpa íbúum Aleppo Framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi segir að við verðum að halda áfram að hjálpa. 14. desember 2016 21:57