Pútín sækist eftir endurkjöri Atli Ísleifsson skrifar 6. desember 2017 17:32 Vladimír Pútín greindi frá ákvörðun sinni í ræðu sem hann flutti fyrir starfsmenn bílaverksmiðju í Nizhny Novgorod í dag. Vísir/afp
Vladimír Pútín Rússlandsforseti hyggst sækjast eftir endurkjöri í rússnesku forsetakosningunum sem fram fara á næsta ári. Forsetinn greindi frá ákvörðun sinni í ræðu sem hann flutti fyrir starfsmenn bílaverksmiðju í Nizhny Novgorod í dag. Pútín hefur verið við völd í Rússlandi frá árinu 2000, ýmist sem forseti eða forsætisráðherra. Beri hann sigur úr býtum í kosningunum í mars verður hann við völd til ársins 2024. Rússneska sjónvarpsfréttakonan Ksenia Sobchak hefur þegar tilkynnt að hún gefi kost á sér í kosningunum, en kannanir benda til að Pútín muni landa öruggum sigri. Helsti stjórnarandstæðingur landsins, Alexei Navalny, hefur verið meinað að bjóða sig fram þar sem hann hafi verið fundinn sekur um fjárdrátt. Navalny segir hins vegar að pólitískir andstæðingar hans hafi staðið fyrir ákærum á hendur honum. Pútín nýtur mikils stuðnings meðal Rússa, sem telja hann vera sterkan leiðtoga sem hafi lagfært ímynd og stöðu Rússlands í alþjóðasamfélaginu, meðal annars með hernaðarlegri þátttöku landsins í stríðinu í Sýrlandi og með innlimun Krímskaga. Andstæðingar hans saka forsetann hins vegar um spillingu og að hafa innlimað Krímskaga með ólöglegum hætti. Innlimunin hefur víða verið fordæmd af alþjóðasamfélaginu.
Mest lesið Hinir treystu sér ekki en Íslendingarnir flugu Innlent Snekkju skattsvikarans meinuð hafnarkoma á Akureyri Innlent Fannst ellefu mínútum síðar með stunguvopn og blóðugar hendur Innlent Lést í sprengingunni Innlent Leggja niður 4. bekk vegna plássleysis og kynjahalla Innlent Deila um menningarhús skekur Skagafjörð Innlent Hringveginum lokað, snjóflóð og flughálka Innlent Hundur fékk tafarlausa þjónustu en krabbameinssjúk kona beið mánuðum saman Innlent Trump gefur Írönum tveggja daga niðurtalningu Erlent Sögðu líf Breta í hættu og skutu að breskri herstöð Erlent Fleiri fréttir Trump gefur Írönum tveggja daga niðurtalningu Sögðu líf Breta í hættu og skutu að breskri herstöð Robert Mueller er látinn Telja Musk hafa vísvitandi ýtt undir gerð kynferðislegra djúpfalsana Íhugar að draga úr hernaði í Íran Stöðvuðu annað meint skuggafley Rússa á Miðjarðarhafi Einn helsti samstarfsmaður Berlusconi látinn Stjórnvöld sögð skoða hernám eða umsátur um Kharg-eyju Formaður systurflokks Sjálfstæðisflokksins vill Noreg í ESB Mette-Marit í einkaviðtali við NRK: „Að sjálfsögðu óska ég þess að hafa aldrei hitt hann“ Orbán stendur í vegi fyrir lánveitingunni til Úkraínu Segir Írani ekki lengur geta auðgað úran Bandarískur stjúpsonur El Mencho fékk krúnuna Hittler mætir Zielenski í frönskum bæjarstjóraslag Útskrifuð fyrir fimm mánuðum en neitar að fara Vilja 25 billjónir: „Það þarf peninga til að drepa vonda kalla“ Tilbúnir til að sprengja flugbrautir á Grænlandi Farage í klandri vegna myndbanda fyrir nýnasista og öfgamenn Banksy opinberaður, enn einu sinni Fjárframlög til BBC World Service aukin vegna upplýsingaóreiðu Black Cube sakað um njósnir fyrir kosningar í Slóveníu Viðvörun gefin út á Bretlandseyjum vegna heilahimnubólgu Trump hótar umfangsmiklum árásum á olíuinnviði Íran Olíuvinnslur rýmdar eftir árásir á eitt stærsta gassvæði heims Reyna að rjúfa hljóðmúrinn án láta Sænskur ríkisborgari tekinn af lífi í Íran Säpo varar við aukinni ógn frá Rússlandi Krefjast rúmlega sjö ára fangelsis yfir glæpaprinsinum Felldu enn einn ráðherrann: Reyna að ryðja leiðina fyrir Írani en gætu eflt herinn Tillögu um lögleiðingu dánaraðstoðar hafnað í Skotlandi Sjá meira