Elsti maður heims látinn Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 12. ágúst 2017 21:55 Israel Kristal lést í gær 113 ára gamall. Hann hlaut viðurkenningu frá Guinness World Records fyrir að vera elsti maður heims. Visir/afp
Elsti maður í heimi lést í gær þegar rúman mánuð vantaði upp á að hann yrði 114 ára. Israel Kristal var uppi á tímum heimsstyrjaldarinnar fyrri og síðari en auk þess lifði hann af útrýmingarbúðirnar í Auschwitz. Kristal fæddist árið 1903 nærri bænum Żarnów í Póllandi. Fjölskylda hans voru strangtrúaðir Gyðingar. Oren Kristal, barnabarn Israels, sagði í viðtali við Guardian að afi sinn hafi, í æsku, aðstoðað við að smygla áfengi. “Hann hljóp marga kílómetra, berfættur í snjónum að nóttu til með þyngslin á bakinu, í kringum tólf ára gamall, til að smygla áfengi á milli átakalína í stríðinu,” segir afabarnið. Oren Kristal segir afa sinn hafa vanið sig á að ganga ávallt rösklega. Hann sagði margsinnis frá því að þegar hann var ungur hafi verið nauðsynlegt að hafa hraðann á ellegar frysi hann í sporunum.Israel Kristal var 113 ára þegar hann féll frá. Ástvinir hins látna segja að hann hafi verið harðduglegur.Vísir/afpSá eini innan fjölskyldunnar sem lifði útrýmingarbúðirnar af.Fyrri kona Kristals og börnin þeirra tvö voru drepin í útrýmingarbúðunum í seinni heimsstyrjöldinni. Þau voru á meðal sex milljóna Gyðinga sem voru drepnir í Helförinni. “Hann sagði okkur gjarnan, þegar við syrgðum, að við ættum að hugsa til þess að hinn látni ástvinur væri jarðaður í landi Ísraelsmanna. Flestir þeirra sem hann þekkti fengu ekki þann grafreit sem þeir hefðu kosið,” segir Oren Kristal um lífsspeki afa síns. Israel Kristal lifði, sem áður sagði, af seinni heimsstyrjöldina en slapp engu að síður við illan leik. Hann vó 37 kíló þegar hann slapp úr útrýmingarbúðunum. Hann giftist seinni konunni sinni og flutti með henni til Ísrael árið 1950, hvar þau stofnuðu fjölskyldu og fóru út í verslunarrekstur. Eiginkona hans var einnig á meðal þeirra fáu sem komust lífs af úr Auschwitz.
Mest lesið Yfir hundrað íbúðir gjörskemmdar Erlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Hótar tollum vegna skógareldanna Erlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Segir erfitt að horfa upp á nágranna missa aleiguna Erlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Níræður maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Hæð langt suður í hafi dælir hlýju lofti til landsins Veður Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Fleiri fréttir Hótar tollum vegna skógareldanna Yfir hundrað íbúðir gjörskemmdar Segir erfitt að horfa upp á nágranna missa aleiguna Rúmlega 50 heimili horfin í stórbruna í Drammen Flóka saknað og grunur um þjófnað Skotárás við Álaborg Boðar aukin ríkisafskipti og heitir því að verða áfram „maður fólksins“ Mótmælt í Kænugarði vegna uppsagnar varnarmálaráðherrans Reykur frá skógareldum í Kanada veldur vandræðum víða Gerðu árásir á Íran sjötta daginn í röð Trump sáir efasemdafræjum í aðdraganda þingkosninga Gróðureldar loga stjórnlaust og fólki ráðlagt að halda sig innandyra Fimmtíu og sjö með stöðu sakbornings vegna vanrækslu brúar R. Kelly biðlar til Trump um að milda fangelsisdóminn Testósterónmagn kannað hjá öllum hermönnum 30 ára og eldri Gefa upp dánarorsökina vegna „ónákvæmra og rangra frétta“ af andlátinu Bandaríkjamenn skjóta á skip sem hugðist leggja við bryggju á Kharg-eyju Tvö þúsund smitaðir og rúmlega sjö hundruð látnir Sex létust í árásum Rússa í nótt Fyrrum forsætisráðherra Noregs vill þjóðaratkvæði um aðildarviðræður Segja gervigreindina hafa valið þá sem sagt var upp og saka Meta um mismunun Carroll fær loksins miskabæturnar frá Trump Þurfa að hafa lokið herskyldu til að fá vernd innan ESB Gus sleginn á 6,3 milljarða króna Eldri unglingum bannað að fara á samfélagsmiðla á nóttunni Um 7.000 manns taldir smitaðir af svæsinni niðurgangspest Trump hótar árásum á orkuver og Íranir að stöðva alla olíuflutninga Sex létust í eldsvoða í Brussel Hættur við innheimtu tolls á Hormússundi Morðið á Ann Widdecombe var „markviss árás“ Sjá meira