Hætta að sýna „of kynæsandi“ landkynningu Stefán Ó. Jónsson skrifar 24. ágúst 2017 07:03 Hér má sjá Mitsu Dan og hrísgrjónakallinn svífa um á baki skjaldbaka. SKjáskot
Yfirvöld í Miyagi-héraðinu í Japan hafa tekið umdeilda auglýsingu úr birtingu eftir að hafa borist næstum 400 kvartanir. Mörgum þótti hún gera lítið úr konum, öðrum þótti hún einfaldlega of kynæsandi. Auglýsingin var liður í markaðssetningu héraðsins sem ferðamannastaðar en héraðið er um 300 kílómetrum norður af höfuðborg Japans, Tókíó. Auglýsingin er rúmlega 2 og hálf mínúta að lengd og í henni má sjá leikkonuna Mitsu Dan, íklædda kímónó, strjúka höfði einhvers konar hrísgrjónaveru og fljúga á baki skjaldböku um héraðið. Það sem fór hvað helst fyrir brjóstið á siðvöndum Japönum er tvíræðnin sem er alltumlykjandi í myndbandinu. Þannig segir leikkonan á einum stað í myndbandinu við hrísgrjónaveruna „Miyagi, I-cha-u?“ sem þýða mætti sem „Förum til Miyagi.“ Orðið „ichau“ er þó líka hægt að þýða sem „sáðlát.“ Þá spyr hún skjaldbökuna „hvort hún megi fara ofan á hana,“ sem einhverra hluta vegna þótti fara yfir strikið. Skjaldbakan fer mjög hjá sér við spurninguna, hún roðnar og höfuð hennar stækkar. Á japönsku þýðir orðið „kamegashira“ bæði skjaldbökuhöfuð og reðurhúfa. Þrátt fyrir að yfivöld í héraðinu segist sannfærð um að auglýsingin hafi laðað að fleiri ferðamenn hafa þau nú ákveðið að taka auglýsinguna úr almennri birtingu. Þeim höfðu borist um 400 kvartanir á þeim mánuði sem auglýsingin var til sýningar en hana má sjá hér að neðan.
Mest lesið Operation Raccoon: Krónur urðu að evrum og slóðin leiddi að höfuðpaurum Innlent Hjón á Selfossi vara við svikum í nafni fyrirtækis síns Innlent Fengju ekki að rústa verslunarmiðstöð óáreittir Innlent Byrjuð að laga „frægustu gangstéttina í Grafarvogi“ Innlent Íbúar höfðu betur: Umsókn Samhjálpar felld úr gildi Innlent „Planið“ sé byrjað að virka Innlent Fjölskylduferð í skemmtigarð tók óvænta stefnu í hitabylgjunni Erlent Nafn mannsins sem lést í umferðarslysi austan við Vík Innlent Sjálfstæðisflokkur á flugi og ríkisstjórnin aldrei mælst með minna fylgi Innlent Langreyðarnar komnar á land Innlent Fleiri fréttir Segja móður Guthrie hafa látist fyrir slysni Hægrimaðurinn De la Espriella nýr forseti Kólumbíu Fjölskylduferð í skemmtigarð tók óvænta stefnu í hitabylgjunni Burnham formlega orðinn þingmaður Burnham vill taka við af Starmer Alan Greenspan er látinn Vandræðagangur í breskum stjórnmálum allt frá Brexit Starmer segir af sér Fundu nærri þrjú tonn af kókaíni í neðanjarðarbyrgi í Ástralíu Starmer muni segja af sér í dag Fyrstu lotu friðarviðræðna Bandaríkjanna og Íran lokið Leggja bönn á áfengisneyslu vegna hitabylgjunnar „Konur eru svangari, fátækari og örvæntingarfyllri en nokkru sinni fyrr“ Sagður ætla að tilkynna afsögn á morgun Vance þreifar fyrir sér í Sviss Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Meloni segir Trump skrökva upp á sig Witkoff stefnir til Sviss Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Sjá meira