Þrýst á leiðtoga sænskra hægrimanna að stíga til hliðar Atli Ísleifsson skrifar 24. ágúst 2017 10:55 Anna Kinberg Batra hefur leitt Moderaterna frá árinu 2015. Vísir/EPA
Ungliðahreyfing, sveitarstjórnarmenn og nokkur svæðissambönd sænska Hægriflokksins (Moderaterna) hafa farið fram á að Anna Kinberg Batra láti af formennsku í flokknum. Kinberg Batra hefur leitt flokkinn frá 2015 þegar hún tók við af Fredrik Reinfeldt sem gegndi embætti forsætisráðherra Svíþjóðar á árunum 2006 til 2014. Verulega hefur dregið úr fylgi flokksins í skoðanakönnunum á síðustu mánuði. Kjell Jansson, sveitarstjórnarmaður flokksins í Stokkhólmi og áhrifamaður í flokknum, segir flokkinn hafa misst tengslin við kjósendur og að fylgi í skoðanakönnunum sé komið niður í tölur sem flokksmenn hafi ekki séð í um þrjátíu ár. Svæðissambönd flokksins í Stokkhólmi, Uppsölum, Västerbotten, Gotlandi, Dölunum, Södermanland og Örebro hafa öll samþykkt ályktanir þar sem farið er fram á afsögn Kinberg Batra. SVT greinir frá þessu. Fleiri svæðissambönd munu tilkynna í dag hvort þau styðji Kinberg Batra eða hvort þau vilji að hún segi af sér. Átta svæðissambönd þarf til að atkvæðagreiðsla um stöðu formanns fari fram. Flokkurinn hefur í könnunum mælst með um fimmtán present fylgi að undanförnu, en í kosningunum fyrir þremur árum hlaut flokkurinn 23 prósent atkvæða. Kinberg Batra greindi frá því á blaðamannafundi í gær að hún hafi ekki hug á að segja af sér. Þingkosningar eru næst haldnar í Svíþjóð haustið 2018.
Mest lesið Operation Raccoon: Krónur urðu að evrum og slóðin leiddi að höfuðpaurum Innlent Hjón á Selfossi vara við svikum í nafni fyrirtækis síns Innlent Fengju ekki að rústa verslunarmiðstöð óáreittir Innlent Byrjuð að laga „frægustu gangstéttina í Grafarvogi“ Innlent Íbúar höfðu betur: Umsókn Samhjálpar felld úr gildi Innlent Fjölskylduferð í skemmtigarð tók óvænta stefnu í hitabylgjunni Erlent „Planið“ sé byrjað að virka Innlent Nafn mannsins sem lést í umferðarslysi austan við Vík Innlent Langreyðarnar komnar á land Innlent Segja móður Guthrie hafa látist fyrir slysni Erlent Fleiri fréttir Segja móður Guthrie hafa látist fyrir slysni Hægrimaðurinn De la Espriella nýr forseti Kólumbíu Fjölskylduferð í skemmtigarð tók óvænta stefnu í hitabylgjunni Burnham formlega orðinn þingmaður Burnham vill taka við af Starmer Alan Greenspan er látinn Vandræðagangur í breskum stjórnmálum allt frá Brexit Starmer segir af sér Fundu nærri þrjú tonn af kókaíni í neðanjarðarbyrgi í Ástralíu Starmer muni segja af sér í dag Fyrstu lotu friðarviðræðna Bandaríkjanna og Íran lokið Leggja bönn á áfengisneyslu vegna hitabylgjunnar „Konur eru svangari, fátækari og örvæntingarfyllri en nokkru sinni fyrr“ Sagður ætla að tilkynna afsögn á morgun Vance þreifar fyrir sér í Sviss Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Meloni segir Trump skrökva upp á sig Witkoff stefnir til Sviss Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Sjá meira