Vaxtarræktarkappi lést eftir misheppnað heljarstökk | Myndband Stefán Ó. Jónsson skrifar 11. ágúst 2017 08:18 Sifiso Lungelo Thabete er margverðlaunaður og hefur heillað áhorfendur með ,,gríðarlegri vöðvastærð." Skjáskot
Suðurafrískur vaxtarræktarkappi lét lífið af sárum sem hann hlaut eftir að hafa lent illa eftir heljarstökk um liðna helgi. Hinn margverðlaunaði Sifiso Lungelo Thabete var að hita upp fyrir mót síðastliðinn laugardag fyrir framan margmenni þegar hann reyndi stökkið. Hann náði ekki nógu mikilli hæð, lenti á höfðinu og braut á sér hálsinn. Starfsmenn mótsins og aðrir viðstaddir hlúðu að honum meðan beðið var eftir sjúkraflutningamönnum sem fluttu hann á sjúkrahús. Þar lést hann af sárum sínum. Suður-afríska vaxtarræktarsamfélagið er í sárum vegna málsins og er Thabete sagður hafa átt sér bjarta framtíð í greininni. Hann er fyrrverandi heimsmeistari unglinga í undir 75 kílóa flokki og hafði „heillað áhorfendur og dómara með ótrúlegri vöðvastærð og þroska þrátt fyrir ungan aldur“ eins og það er orðað á vef Muscle Evolution. Hér að neðan má sjá myndband af heljarstökkinu. Rétt er að taka fram að myndbandið kann að vekja óhug áhorfenda.
Mest lesið Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Innlent Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Innlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent „Við búum í brjáluðum heimi“ Erlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Innlent Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Innlent Fleiri fréttir Vara við aukinni ógn vegna sjórána við strendur Sómalíu „Við búum í brjáluðum heimi“ Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Talinn ætla að ráðast á Trump og fleiri háttsetta Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Fjörutíu ár frá slysinu í Tsjernobyl: „Eins og heimurinn gæti snúið aftur til ársins 1986“ Trump segir komið að Írönum að hringja Sjö felldir í Úkraínu Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Orbán hættir á þingi Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Vinasamtök al-Qaeda sögð reyna að steypa ríkisstjórninni af stóli Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Segja engan fund á dagskrá Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Netanjahú greindist með krabbamein Sendimenn Trump fara á fund utanríkisráðherra Írans á morgun Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Ræða ekki loftslagsmál á umhverfisfundi til að friðþægja Bandaríkjastjórn Sækir aftur um reynslulausn Handtaka hermann sem veðjaði á að Maduro yrði tekinn Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Segir vopnahlé framlengt um þrjár vikur Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Skjóta á alla báta sem leggja tundurdufl Með lista yfir góða og slæma bandamenn Sjá meira