Með nema í kennsluflug þótt hreyfillinn hefði ítrekað drepið á sér Garðar Örn Úlfarsson skrifar 1. nóvember 2017 06:00 Kennsluflugvélinni TF-FGC var nauðlent afllausri á Sandskeiði eftir ítrekaða fyrirboða um gangtruflanir. Mynd/RNSA
Málmagnir í eldsneytistanki urðu til þess að það drapst á hreyfli kennsluflugvélar sem í kjölfarið var nauðlent á flugvellinum við Sandskeið. Kennari og nemandi voru um borð í kennsluflugvélinni TF-FGC þegar hreyfill hennar byrjaði að hökta og drap á sér 13. september 2014. Kennarinn nauðlenti vélinni og sakaði mennina ekki. Rannsóknarnefnd flugslysa (RNSA) segir í skýrslu um málið að hreyfill TF-FGC hafi verið í grannskoðun rúmum sjö vikum áður, þann 1. ágúst. „Þann 6. ágúst 2014 stöðvaðist hreyfillinn skyndilega við prófun á jörðu en þá hafði hann gengið í 5,3 stundir frá grannskoðun. Þann 20. ágúst 2014 var tilkynnt um atvik TF-FGC til RNSA þar sem hreyfillinn stöðvaðist í einkaflugi þegar flugmaður var að æfa snertilendingar á Reykjavíkurflugvelli. Það atvik var tekið til rannsóknar og fundust þá óhreinindi í eldsneyti og eldsneytissíu.“ Fram kemur að eldsneytiskerfi vélarinnar, sem er af gerðinni Diamond DA-20, hafi verið sent til skoðunar hjá framleiðandanum. Við rannsókn á svokölluðu mælistykki hafi fundust agnir í eldsneytishólfi þess. „Agnirnar voru nægilega stórar til þess að loka fyrir eldsneytisflæði um stund. Líklega hefur það gerst af og til,“ segir í skýrslunni. Málmagnirnar voru sendar til greiningar hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands. „Við rannsóknina kom í ljós að agnirnar voru oftast spænir og voru þær ekki úr stykkinu sjálfu eða íhlutum þess,“ segir rannsóknarnefndin. Ekki hafi fundist skýring á því hvernig agnirnar komust í eldneytiskerfið en nefndin telji líklegast að það hafi gerst hjá framleiðanda þess. „Það er mat RNSA að agnirnar sem fundust í eldsneytiskerfinu hafi líklega verið þar frá samsetningu og stíflað eldsneytisflæði af og til. Það hafi verið orsök þess að hreyfillinn hafi starfað óeðlilega, það er, að þegar hreyfillinn missti afl hafi agnirnar stíflað eldsneytisflæðið og stöðvað hreyfilinn.“
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Innlent Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Erlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Fleiri fréttir Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Sjá meira