Svona var lífið síðast þegar Tottenham endaði fyrir ofan Arsenal Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 1. maí 2017 23:15 vísir/getty
Tottenham vann 2-0 sigur á Arsenal í ensku úrvalsdeildinni í gær. Þar með er öruggt að Tottenham endar fyrir ofan Arsenal í fyrsta sinn síðan 1995. Þá endaði Spurs í 7. sæti ensku úrvalsdeildarinnar en Arsenal í því tólfta. Tuttuguogtvö ár eru langur tími og til gamans tók ESPN saman 22 hluti sem sýna hvernig lífið var síðast þegar Tottenham endaði fyrir ofan Arsenal. Árið 1995 var Blackburn Rovers Englandsmeistari en í dag á liðið það á hættu að falla niður í C-deild. Fyrir 22 árum vissu fáir hver Arsene Wenger var enda var Frakkinn að þjálfa í Japan þá. Wenger tók við Arsenal haustið 1996 og er enn við stjórnvölinn hjá félaginu. Arsenal hefur aldrei endað fyrir neðan Tottenham í hans stjórnartíð, fyrr en núna. Dele Alli, sem skoraði fyrra mark Tottenham í Norður-Lundúnaslagnum í gær, var ekki fæddur síðast þegar Tottenham endaði fyrir ofan Arsenal. Þá var Sepp Blatter ekki orðinn forseti FIFA og MLS-deildinni hafði ekki enn verið komið á laggirnar. Fyrir 22 árum var Bill Clinton forseti Bandaríkjanna og John Major var maðurinn í Downingsstræti 10. Oasis var ein heitasta hljómsveit heims og gaf út plötuna What's The Story, Morning Glory sem seldist í bílförmum. Árið 1995 voru fyrstu farsímarnir ekki komnir á markað en PlayStation leikjatölvan var hins vegar kynnt fyrir Evrópubúum þetta sama ár.Samantekt ESPN má lesa með því að smella hér.
Enski boltinn Tengdar fréttir Alli og Kane sáu til að Tottenham endar fyrir ofan Arsenal í fyrsta sinn í 22 ár | Sjáðu mörkin Tottenham minnkaði forskot Chelsea á toppi ensku úrvalsdeildarinnar niður í fjögur stig með 2-0 sigri á Arsenal í dag. 30. apríl 2017 17:15 Mest lesið Fótboltamaður skotinn til bana Fótbolti Kári og Logi vilja henda Ými út úr landsliðinu Handbolti Óttast að besti leikmaður Liverpool verði frá Enski boltinn Úr Bestu deild yfir í að slá í gegn í Meistaradeild: „Ég elska pressuna“ Fótbolti Snýr aftur á æfingar eftir 100 daga í burtu Fótbolti Sagður utan hóps fyrir Bjarka og Orra Handbolti Snéri aftur í fótbolta eftir 35 ára hlé: „Kalla mig Jackie Grealish“ Enski boltinn Alcaraz sjokkerar tennisheiminn Sport Spilar áfram með Messi í Miami Fótbolti Gat ekki komið í veg fyrir að City færi áfram Enski boltinn Fleiri fréttir Snéri aftur í fótbolta eftir 35 ára hlé: „Kalla mig Jackie Grealish“ Óttast að besti leikmaður Liverpool verði frá Ungstirnið skallaði meistarana áfram Gat ekki komið í veg fyrir að City færi áfram City sagt ætla að keppa við Liverpool og United um Semenyo Man United ósátt við Marokkó og FIFA Sápan trolluð: „Þetta er þessi klikkhaus með röddina“ Stjarnan fór í dulargervi: Setti stuðningsmann United á óþekka listann Garnacho skaut Chelsea áfram í undanúrslit Vísa á bug fullyrðingum Bruno sem hafa valdið fjaðrafoki Hlaut 21 árs dóm fyrir að aka inn í skrúðgönguna í Liverpool Bjarni segir Newcastle stærra félag en Tottenham Moyes ældi alla leiðina til Eyja Bróðirinn sendir Amorim skilaboð: „Frelsið Kobbie Mainoo“ „Besta frammistaða United undir stjórn Amorim“ Segir að Salah muni sjá eftir því að fara í janúar Sjáðu mörkin úr ótrúlegu átta marka jafntefli á Old Trafford Skemmtilegt fyrir fólkið heima og United verðskuldaði sigur Jafnt í ótrúlegum átta marka leik á Old Trafford Vildi ekki skýra ummælin um verstu 48 klukkutímana frekar Maresca hafi tekið blaðsíðu úr bók Salah og gert sér óleik Guardiola gagnrýndi Foden þrátt fyrir markið „Finnst þér ekki eins og hann sé þjakaður af pressu yfir því hvað hann sé lélegur?“ Fyrirliði Newcastle eftir tapið fyrir Sunderland: „Þetta er svo vandræðalegt“ Sjáðu klaufalegt sjálfsmark Woltemade í grannaslagnum og öll hin úr enska Amorim verður ánægður ef Mainoo ræðir við hann um lán „Sé ekkert annað en að dýrasti leikmaður deildarinnar verði áfram á bekknum“ „Í dag er dagurinn sem þú fæddist, í dag er dagurinn sem þú munt deyja“ Henderson heiðraði minningu Jota eftir fyrsta markið sitt í fjögur ár Calvert-Lewin jafnaði fyrir Leeds í lokin Sjá meira
Alli og Kane sáu til að Tottenham endar fyrir ofan Arsenal í fyrsta sinn í 22 ár | Sjáðu mörkin Tottenham minnkaði forskot Chelsea á toppi ensku úrvalsdeildarinnar niður í fjögur stig með 2-0 sigri á Arsenal í dag. 30. apríl 2017 17:15