Breitbart taldi Lukas Podolski stórhættulegan flóttamann Stefán Ó. Jónsson skrifar 20. ágúst 2017 15:38 Lukas Podolski sést hér með sólgleraugu og appelsínugult björgunarvesti. Myndin er tekin á HM í knattspyrnu árið 2014. Skjáskot
Hægrisinnaða fréttaveitan Breitbart baðst í dag afsökunar á því að hafa talið knattspyrnumanninn Lukas Podolski vera flóttamann sem ferðast hefði milli Marokkó og Spánar í grein sem birtist á vefnum. Greinin, sem heitir „Spænska lögreglan sker upp herör gegn gengi sem flytur flóttamenn á sjóköttum,“ rataði á vefinn á föstudag . Fréttin var myndskreytt með ljósmynd af tveimur mönnum á sjóketti. Annar þeirra er fyrrnefndur Podolski sem almennt er talinn einn besti knattspyrnumaður sinnar kynslóðar í Þýskalandi en hann hefur leikið með stórliðum á borð við Arsenal, Bayern München, Internazionale og Köln. Myndin af Podolski er sögð hafa verið tekin á milli leikja þýska landsliðsins á heimsmeistaramótinu í knattspyrnu í Brasilíu árið 2014 - en ekki út af ströndum Spánar. Eftir að Breitbart var úthúðað á samfélagsmiðlum fyrir myndbirtinguna var henni skipt út og smávægilegar breytingar gerðar á greininni.Búið er að bæta við leiðréttingu neðst í fréttina þar sem mistökin eru viðurkennd og Podolski beðinn afsökunar. „Það eru engar sannanir fyrir því að Hr. Podolski sé glæpahneigður flóttamaður, né að hann hafi verið seldur mansali. Við óskum honum velfarnaðar á eftirlaunaárunum,“ segir í leiðréttingunni en Podolski lagði nýverið landsliðsskóna á hilluna.
Mest lesið Spyr hvort ekki sé tími á að Palestínumenn snúi aftur í friðinn heima Innlent Hátt í sjötíu ár síðan það snjóaði eins lítið Innlent Hvort myndu þau hringja fyrst til baka í Pétur eða Hildi? Innlent Fundu fjarlægustu vetrarbrautina hingað til Erlent Segir útsendara „mögulega“ ekki hafa fylgt verkreglum Erlent Boðuð í þingsal á versta tíma: „Brynjar, þú ert nú meiri gaurinn!“ Innlent Erlendir aðilar reyni að hafa vit fyrir Íslendingum Innlent 28 prósent Selfyssingar: „Eitthvað í mjólkinni eða smjörinu“ Innlent Segir Trump ekki reiðan Íslandi Erlent Kvaddi hundinn sem bjargaði lífi hennar uppi í rúmi Innlent Fleiri fréttir Fundu fjarlægustu vetrarbrautina hingað til Segir útsendara „mögulega“ ekki hafa fylgt verkreglum Segir Trump ekki reiðan Íslandi Dómsdagsklukkan færð fram Sendir herskipaflota að Íran og hótar „ofbeldi“ Helsta klappstýran sögð slegin yfir sálarástandi Trumps Verða ekki viðstödd réttarhöld stjúpsonarins Vilja veita þúsundum sem dvelja ólölega á Spáni dvalarleyfi Ná saman um myndun minnihlutastjórnar í Hollandi Maður sprautaði illa lyktandi vökva á Ilhan Omar Róa á nýnasistamið í leit að ICE-liðum Dómari stöðvar brottflutning Liam og föður hans Bandaríkin hyggja á heræfingar í Mið-Austurlöndum Svíar líta til kjarnorkuvopna Tónninn breytist með yfirmannaskiptum hjá ICE Tala fallinna og særðra nálgast tvær milljónir Svíar hyggjast lækka sakhæfisaldur „Móðir allra samninga“ Um þriðjungur Dana fær 50 þúsund króna „matartékka“ beint í vasann frá ríkinu Segja mögulegt að yfir 30.000 hafi verið drepin í mótmælunum Franska þingið samþykkti símabann hjá börnum Evrópusambandið og Indland ganga frá fríverslunarsamningi Bovino sendur til Kaliforníu og Leavitt dregur í land Lét þingmenn heyra það og sagði Evrópu ekki geta varið sig sjálfa Trump sagður hafa lofað óháðum rannsóknum í Minnesota Einn lifði flugslys í Maine af en sjö dóu Hafa fundið lík síðasta gíslsins á Gasa Börnin heima þegar móðir þeirra var stungin til bana Flugferðum aflýst og hvatt til heimavinnu vegna snjókomu Leita að líkamsleifum síðasta gíslsins Sjá meira