Conte: Erum að sýna að við eigum skilið að verða meistarar | Sjáið mörkin Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. maí 2017 09:00
Chelsea-liðið steig í gærkvöldi stórt skref í átt að Englandsmeistaratitlinum eftir 3-0 sigur á Middlesbrough á Brúnni. Chelsea vantar nú bara einn sigur til að tryggja sér endanlega sinn sjötta Englandsmeistaratitil og þann fimmta frá 2005. Það er hægt að sjá mörkin sem Chelsea skoraði í gær í spilaranum hér fyrir ofan en mörkin í gær skoruðu þeir Diego Costa, Marcos Alonso og Nemanja Matic. Cesc Fabregas kom inn í byrjunarliðið eftir að N'Golo Kante gat ekki spilað vegna meiðsla og Fabregas átti stoðsendinguna á bæði Costa og Matic. Ítalski knattspyrnustjórinn Antonio Conte er svo gott sem búinn að gera Chelsea að Englandsmeisturum á sínu fyrsta tímabilið með liðið og þessi 47 ára gamli stjóri var kátur með sitt lið í leikslok. „Þetta er fyrsta árið mitt á Englandi og í mjög erfiðri deild. Núna erum við búnir að taka eitt skref í viðbót í átt að titlinum. Ég er ánægður fyrir hönd minna leikmanna. Þeir eiga þetta skilið. Við erum að sýna það að við eigum skilið að vinna deildina,“ sagði Antonio Conte við BBC. Chelsea er með sjö stiga forystu á Tottenham og getur tryggt sér titilinn með sigri á West Bromwich á föstudagskvöldið eða ef Tottenham tapar á móti Manchester United á sunnudaginn. Antonio Conte getur orðið fjórði ítalski stjórinn til að vinna ensku úrvalsdeildina. Hinir eru Claudio Ranieri (Leicester City 2016) , Roberto Mancini (Manchester City 2012) og Carlo Ancelotti (Chelsea 2010). Ítalskir knattspyrnustjórar hafa unnið tvo þá síðustu og fjóra af síðustu átta.
Enski boltinn Tengdar fréttir Kante bestur hjá blaðamönnum N'Golo Kante, miðjumaður Chelsea, var í dag valinn besti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar af blaðamönnum. 8. maí 2017 09:44 Chelsea einum sigri frá titlinum | Boro fallið Chelsea steig risaskref í átt að sjötta Englandsmeistaratitlinum í sögu félagsins með öruggum 3-0 sigri á Middlesbrough í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. 8. maí 2017 20:45 Mest lesið Viðurkenna að VAR hafi bilað Fótbolti Arnar Daði rekinn frá Stjörnunni en áfram þjálfari kvennaliðsins Handbolti Koepka fyrsta stjarnan sem riftir samningi við LIV Golf Úr Bestu heim í Hauka Íslenski boltinn Stefndi á ÓL en fannst látinn á hótelherbergi Sport Jólagjöf í Keflavík: Remy Martin snýr aftur Körfubolti Ótrúlegur sigur á HM: „Ég er mjög tregur svo pressan nær ekki til mín“ Sport Þessi tíu eru tilnefnd sem Íþróttamaður ársins 2025: 23 ára aldursmunur Sport „Þetta er stærsti klúbbur Íslands“ Íslenski boltinn Ekkert spilað í vetur en gæti mætt Íslandi í fyrsta leik á EM Handbolti Fleiri fréttir Vill ekki segja hversu lengi Bruno er frá Spyr hvort Guardiola stígi á vigtina Arsenal í undanúrslit eftir vító Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City „Tölfræðilega séð eiga þeir ekkert að vera í þessari stöðu“ Chelsea setur sig í samband við Semenyo Jiménez jafnaði bestu vítaskyttu sögunnar Slot mun sakna Isak í tvo mánuði eftir „glórulausa tæklingu“ Sjáðu „auma“ vítið sem skilaði Fulham sigri Fulham skildi Forest eftir við fallsvæðið Áfallið staðreynd og Isak búinn í aðgerð Fagnaði titli Liverpool sem óður maður um alla borg „Allir virðast elska hann“ „Þetta mun ekki buga okkur“ Guardiola mun vigta leikmenn Man City eftir jólin „Ef þið væruð Antoine Semenyo, hvert mynduð þið fara?“ Sjáðu mörkin: Rogers sá um Manchester United Óttast að Isak hafi fótbrotnað Tvenna frá Rogers tryggði Villa sigur gegn Manchester United Fimmta sinn sem Arsenal er á toppnum um jólin: Unnu ekki titilinn í fyrstu fjögur skiptin „Viljum við að okkar verði minnst fyrir að vera skræfur?“ „Ef dómarinn hefði sinnt sínu starfi almennilega hefði Romero ekki fengið spjald“ Haaland gaf barnabarni Hareide gjöf Sjáðu mörkin úr enska: Sviptingar, sænskt þema og svakalegar tæklingar Calvert-Lewin hættir ekki að skora Gyökeres skaut Arsenal aftur á toppinn Slot fámáll um stöðuna á Isak Gleði og sorg í sigri Liverpool Dramatík er Broja reyndist hetja Burnley Haaland frábær er Manchester City komst á toppinn Sjá meira
Kante bestur hjá blaðamönnum N'Golo Kante, miðjumaður Chelsea, var í dag valinn besti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar af blaðamönnum. 8. maí 2017 09:44
Chelsea einum sigri frá titlinum | Boro fallið Chelsea steig risaskref í átt að sjötta Englandsmeistaratitlinum í sögu félagsins með öruggum 3-0 sigri á Middlesbrough í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. 8. maí 2017 20:45