Spilaframleiðandi reynir að tefja uppbyggingu landamæraveggs Trump Daníel Freyr Birkisson skrifar 15. nóvember 2017 11:51 Trump hyggst láta reisa vegg á landamærum Mexíkó og Bandaríkjanna. Mynd/AFP
Spilaframleiðandinn Cards Against Humanity hefur keypt lóð á landamærum Mexíkó og Bandaríkjanna í þeim tilgangi að tefja uppbyggingu landamæraveggs Donald Trump. Þetta kemur fram í tilkynningu fyrirtækisins sem sett er fram á gamansömum nótum. Framleiðandinn hefur fengið til liðs við sig lögfræðinga sem eiga að sjá til þess að tefja fyrirhugaða uppbyggingu á landamæraveggnum sem forsetinn vill láta reisa. Fyrirtækið býður fólki upp á að eignast hlut í landinu á fimmtán dollara og mun það í kjölfarið fá upplýsingar um staðsetningu landsvæðisins. Enn hefur ekki verið gefið út hvar það er staðsett. Cards Against Humanity hefur notið mikilla vinsælda víða um heim og eru framleiðendur þess þekktir fyrir uppátækjasöm athæfi. Til að mynda hafa þeir boðið fólki að borga fyrirtækinu fimm dollara til þess eins að fá ekkert í staðinn. Auk þess hafa þeir safnað 100 þúsund dollurum til þess að grafa holu ofan í jörðina, í engum sérstökum tilgangi. Furðulegasta fjáröflun spilaframleiðandans var þó vafalaust þegar hann bauð viðskiptavinum sínum að kaupa kassa af kúaskít, en um það bil 30 þúsund kassar seldust. Hér má sjá myndbandstilkynningu frá Cards Against Humanity í kjölfar kaupanna á landsvæðinu í Mexíkó og Bandaríkjunum. Einnig er hægt að lesa tilkynninguna í heild á vefsíðu spilaframleiðandans.
Mest lesið Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Uppsagnir hjá Klettabæ Innlent Fleiri fréttir Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Marco Rubio á leið til Íslands Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Sjá meira