Dæmdur í 20 ára fangelsi fyrir að hafa brennt mann á báli Erna Agnes Sigurgeirsdóttir skrifar 18. júlí 2017 11:14 Bakken var sóttur af árásarmönnunum og sakaður um að hafa brotið gegn ættingja þeirra. Nils Olav Bakken sést á myndinni til hægri. Skjáskot/VG
Búið er að dæma Odd Raymond Olsen í 20 ára fangelsi í Noregi fyrir að hafa myrt Nils Olav Bakke og brennt hann á báli. Ein kona, sem kölluð er sjöbarnamóðirin, og sonur hennar hafa einnig verið dæmd til 19 ára fangelsisvistar fyrir að hafa átt hlut að máli. Rétturinn taldi ólíklegt að þau hafi ekki vitað hvert stefndi. Talið er að Olsen hafi stungið Bakken nokkrum sinnum með hníf. Olsen hafi síðan kveikt í Bakken og er hann talinn vera höfuðpaurinn í málinu. Samkvæmt Olsen sóttu tvítugi maðurinn bensínið og eldspýturnar sem notaðar voru til að kveikja í Bakken. Sá viðurkenndi einnig að hafa sparkað í Bakken en að hann hafi ekki vitað að búið væri að stingja hann með hníf.Olsen játaði Dómurinn tók fram að morðið hafi ekki komið til af hvatvísi. Olsen viðurkenndi sök en sjöbarnamóðirin og sonur hennar neituðu. Allir sakborningar neituðu því að um skipulagt morð hafi verið að ræða. „Olsen er sá sem talinn er hafa borið ábyrgð á þeim atburðum sem leiddu til dauða hans. Samkvæmt niðurstöðu dómsins er talið að Olsen hafi ákveðið að hann skyldi deyja. Þrátt fyrir að dómurinn geti ekki staðfest að morðið hafi verið planað eru ýmis atriði sem varpa ljósi á að svo hafi verið. Dómurinn komst að því að þessi atriði leiði samanlagt til þess að hann fá þyngri dóm en hinir tveir sakborningar,“ segir í dómsúrskurði sem vitnað er í á fréttamiðlinum VG.Hefndarmorð Talið er að um hefndarmorð hafiverið að ræða. Sakborningar viðurkenndu að þau hefðu náð í Bakken og ætlað sér að ræða við hann um alvarlegt málefni sem tengdist Bakken og nákomnum ættingja þeirra. Þau vildu öll að hann myndi viðurkenna mistök sín gagnvart ættingja þeirra. Sjöbarnamóðirin keyrði síðan að Veståsen þar sem morðið var framið.
Mest lesið Tveir risaskjálftar í Venesúela: Óttast að manntjónið sé gríðarlegt Erlent Hnakkrifust á bak við luktar dyr Innlent Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð í Hafnarfirði Innlent „Þetta er sama fólkið og skilar ekki innkaupakerrunni“ Innlent Mikill reykur frá brennandi bíl í Fossvogi Innlent Laugin lokuð vegna flögnunar og lokað enn lengur næsta sumar Innlent Ekki séð dóttur sína í tvö ár og lá í sínu eigin þvagi í alla nótt Innlent Sér ekki eftir framsetningu á sleggjunni Innlent Hús hrundu þegar skjálfti upp á 7,1 reið yfir Erlent „Í fyrsta skipti sá ég fólk grátandi á götum Lundúna“ Erlent Fleiri fréttir Ók inn í hús og varð konu á sjötugsaldri að bana Tveir risaskjálftar í Venesúela: Óttast að manntjónið sé gríðarlegt Hús hrundu þegar skjálfti upp á 7,1 reið yfir Fyrsta ebólutilfellið í Evrópu staðfest „Í fyrsta skipti sá ég fólk grátandi á götum Lundúna“ Áfram viðvaranir vegna hitasvækju víða um Evrópu Nýir bandamenn Miðflokksins sakaðir um rasisma gegn þingkonu Fundu vefnaðarmiðstöð frá víkingaöld við Árósa Slegið á fingur Trumps vegna stríðsreksturs í Íran Fyrrverandi eiginmaður Sturgeon í fimm ára fangelsi Segja móður Guthrie hafa látist fyrir slysni Hægrimaðurinn De la Espriella nýr forseti Kólumbíu Fjölskylduferð í skemmtigarð tók óvænta stefnu í hitabylgjunni Burnham formlega orðinn þingmaður Burnham vill taka við af Starmer Alan Greenspan er látinn Vandræðagangur í breskum stjórnmálum allt frá Brexit Starmer segir af sér Fundu nærri þrjú tonn af kókaíni í neðanjarðarbyrgi í Ástralíu Starmer muni segja af sér í dag Fyrstu lotu friðarviðræðna Bandaríkjanna og Íran lokið Leggja bönn á áfengisneyslu vegna hitabylgjunnar „Konur eru svangari, fátækari og örvæntingarfyllri en nokkru sinni fyrr“ Sagður ætla að tilkynna afsögn á morgun Vance þreifar fyrir sér í Sviss Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Meloni segir Trump skrökva upp á sig Witkoff stefnir til Sviss Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Sjá meira