Tveir sóttir með þyrlu eftir að skyndiflóð varð í Cornwall Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 18. júlí 2017 22:58 Í kringum fimmtíu eignir urðu fyrir tjóni. vísir/getty
Sækja þurfti tvo menn með þyrlu eftir að þrumuveður í Cornwall-sýslu á Englandi leiddi til meiriháttar flóða. Á samskiptamiðlinum Twitter hefur slökkviliðið í Cornwall beðið fólk vinsamlegast um að halda sig frá svæðinu. Frá þessu er greint á Sky News.Zoe Holmes, framkvæmdastjóri strandhótels í Coverack sagði í viðtali við Sky News þetta hefði allt saman verið stórfurðulegt. Fyrst hafi komið haglél og það næsta sem hún vissi var sem himnarnir hefðu opnast og stöðugur vatnsflaumur dundi yfir. Holmes sagðist eiga hús í þorpinu og að yfirborð vatnsflatarins, í námunda við húsið, næði henni upp að hnjám. Hún sagðist þá einnig hafa séð vatn flæða út um gluggana á nokkrum húsum. „Þetta er eins og eitthvað úr kvikmynd.“ Sveitastjórnin í Cornwall hefur tilkynnt um að í kringum fimmtíu eignir hefðu orðið fyrir tjóni og þá hefði vegurinn til Coverack auk þess orðið fyrir talsverðum skemmdum. Enginn hefði aftur á móti slasast í skyndiflóðinu. Samkvæmt nýjustu fréttum af svæðinu, þar sem mesta vatnsveðrið var, er ástandið að batna.Impressive amounts of #rain @adamvtpowers shares this image from #Coverack #Cornwall this afternoon. 6/30 #eustorm https://t.co/Yze89nXbnF pic.twitter.com/6vweju7c6j— #eustorm (@EUStormMap) July 18, 2017
Mest lesið Tveir risaskjálftar í Venesúela: Óttast að manntjónið sé gríðarlegt Erlent Hnakkrifust á bak við luktar dyr Innlent Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð í Hafnarfirði Innlent „Þetta er sama fólkið og skilar ekki innkaupakerrunni“ Innlent Mikill reykur frá brennandi bíl í Fossvogi Innlent Laugin lokuð vegna flögnunar og lokað enn lengur næsta sumar Innlent Sér ekki eftir framsetningu á sleggjunni Innlent Ekki séð dóttur sína í tvö ár og lá í sínu eigin þvagi í alla nótt Innlent Tveir neita sök en hinn þriðji er í Jórdaníu Innlent „Í fyrsta skipti sá ég fólk grátandi á götum Lundúna“ Erlent Fleiri fréttir Ók inn í hús og varð konu á sjötugsaldri að bana Tveir risaskjálftar í Venesúela: Óttast að manntjónið sé gríðarlegt Hús hrundu þegar skjálfti upp á 7,1 reið yfir Fyrsta ebólutilfellið í Evrópu staðfest „Í fyrsta skipti sá ég fólk grátandi á götum Lundúna“ Áfram viðvaranir vegna hitasvækju víða um Evrópu Nýir bandamenn Miðflokksins sakaðir um rasisma gegn þingkonu Fundu vefnaðarmiðstöð frá víkingaöld við Árósa Slegið á fingur Trumps vegna stríðsreksturs í Íran Fyrrverandi eiginmaður Sturgeon í fimm ára fangelsi Segja móður Guthrie hafa látist fyrir slysni Hægrimaðurinn De la Espriella nýr forseti Kólumbíu Fjölskylduferð í skemmtigarð tók óvænta stefnu í hitabylgjunni Burnham formlega orðinn þingmaður Burnham vill taka við af Starmer Alan Greenspan er látinn Vandræðagangur í breskum stjórnmálum allt frá Brexit Starmer segir af sér Fundu nærri þrjú tonn af kókaíni í neðanjarðarbyrgi í Ástralíu Starmer muni segja af sér í dag Fyrstu lotu friðarviðræðna Bandaríkjanna og Íran lokið Leggja bönn á áfengisneyslu vegna hitabylgjunnar „Konur eru svangari, fátækari og örvæntingarfyllri en nokkru sinni fyrr“ Sagður ætla að tilkynna afsögn á morgun Vance þreifar fyrir sér í Sviss Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Meloni segir Trump skrökva upp á sig Witkoff stefnir til Sviss Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Sjá meira