Benteke hetja Palace á gamla heimavellinum Kristinn Páll Teitsson skrifar 23. apríl 2017 17:23 Tveir fyrrum Liverpool-menn, Benteke og Sakho, fagna marki þess fyrrnefnda. Vísir/getty
Christian Benteke var hetja Crystal Palace í 2-1 sigri á Liverpool í dag en Benteke sem var seldur frá Liverpool til Palace fyrr á tímabilinu skoraði bæði mörk leiksins fyrir framan gömlu stuðningsmennina. Liverpool gat með sigri sett pressu á liðin fyrir neðan sig í baráttunni um sæti í Meistaradeild Evrópu á næsta ári og byrjuðu heimamenn vel því eftir tuttugu mínútur skoraði Philippe Coutinho fyrsta mark leiksins. Skrúfaði hann boltann yfir varnarvegginn og í fjærhornið úr aukaspyrnu af 25 metra færi, óverjandi fyrir Wayne Hennesey í marki Crystal Palace og virtist Liverpool vera með góða stjórn á leiknum á þessum tímapunkti. En líkt og oft áður áttu varnarmenn Liverpool í bölvuðum vandræðum með stóra og sterka framherja og Benteke refsaði gömlu félögum sínum með jöfnunarmarki rétt fyrir lok fyrri hálfleiks eftir sendingu frá Yohan Cabaye. Benteke var aftur á ferðinni korteri fyrir leikslok þegar hann skallaði hornspyrnu Jason Puncheon í netið af stuttu færi, óverjandi fyrir landa hans Simon Mignolet í marki Liverpool og var Crystal Palace skyndilega komið yfir. Þrátt fyrir að hafa korter til að laga stöðuna var Liverpool aldrei nálægt því að jafna metin en strákarnir hans Stóra Sam sigldu sigrinum örugglega heim á lokameturunum. Var þetta fyrsti sigur Sam Allardyce sem knattspyrnustjóri á Anfield en þetta var fjórtándi leikur hans sem knattspyrnustjóri á heimavelli Liverpool.
Enski boltinn Mest lesið Eiður Smári með eldræðu um Chelsea: „Ég hefði ekki sofið í fjóra daga“ Enski boltinn Fyrrum markmaður Arsenal og Juventus lést í bílslysi Fótbolti Oddaleikurinn færður vegna árshátíðar Körfubolti „Þú ert farinn að verða þybbinn“ Fótbolti Gervigreindin gaf Alberti engan séns hjá Bayern Fótbolti LIV heldur sínu striki í miðjum stormi Golf „Ég get ekki breytt þessu“ Íslenski boltinn „Hverjum er ekki sama hvað fólki finnst?“ Enski boltinn Hálfíslensk knattspyrnukona valin í norska landsliðið Sport Freyr fær fríspil á meðan hörð átök geysa utan vallar hjá Brann Fótbolti Fleiri fréttir Fagnað titli á 24 leikja fresti en segir nú bless Eiður Smári með eldræðu um Chelsea: „Ég hefði ekki sofið í fjóra daga“ „Hverjum er ekki sama hvað fólki finnst?“ Manchester United stjarna í bann fyrir að blóta Dómarinn í leik Man. City og Arsenal fæddur í Manchester Iraola yfirgefur Bournemouth Sjáðu tíu United-menn tapa fyrir Leeds „Við verðum að muna að við erum Liverpool“ Rooney segir að Man City hafi sálfræðilegt tak á Arsenal „Ein af verstu ákvörðunum sem ég hef séð“ „Ég sagði dómaranum frá því að hann togaði í hárið á mér“ Hártog og hörmungar heimamanna þegar Leeds fagnaði á Old Trafford Sjáðu miðvörð Man. United fá rautt spjald fyrir hártog Útskýrir hegðun sína: „Meinti ekkert illt með því“ Styttist í að Mainoo skrifi undir nýjan samning Áfall fyrir Tottenham: Fyrirliðinn frá út tímabilið Tottenham að landa Robertson en það er einn stór hængur á Telur að Tottenham falli: „Þeir eru afleitir“ Sjáðu hvernig City rúllaði yfir Chelsea og vandræði Spurs jukust Öruggt hjá City sem eykur á skjálfta Skyttanna Spurs áfram í fallsæti og fyrirliðinn grátandi af velli Sjáðu unglinginn og Salah skora og mörkin sem komu Arsenal í klípu Táningurinn í stuði í dýrmætum sigri Liverpool Dramatík og Meistaradeildarvon lifir góðu lífi „Þetta er högg í andlitið“ Skjálfti í Skyttunum Kemst að munnlegu samkomulagi við Tottenham Sjáðu Hamrana skora fjögur og senda Tottenham í fallsæti Sendu Tottenham niður í fallsæti með stórsigri Segist hafa fullt traust stjórnar og stuðningsmanna Sjá meira