Eyjaskeggjar í Púertó Ríkó ganga til kosninga Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 11. júní 2017 12:51 Ricardo Rosselló Landstjóri Púertó Ríkó talar fyrir ríkisstöðu. Vísir/getty
Kosningadagur er runninn upp í Púerto Ríkó en eyjaskeggjar kjósa í dag um samband sitt við Bandaríkin. Kosið verður um það hvort íbúar vilji gera Púertó Ríkó að 51. fylki Bandaríkjanna, með þeim réttindum og skyldum sem slík staða felur í sér. Annar valkostur sem boðið er upp á er óbreytt ástand sem felur í sér að vera sérstakt sambandssvæði Bandaríkjanna. Þriðji og síðasti valmöguleikinn er algert sjálfstæði. Stjórnvöld í Púertó Ríkó kölluðu eftir þjóðaratkvæðagreiðslunni í ljósi efnahagsvandræða eyjunnar. Er þetta í fimmta skipti sem íbúarnir kjósa um sama efni á fimmtíu ára skeiði og var síðast kosið árið 2012. Atkvæðagreiðslan í dag er ekki bindandi því ákvörðunin er ekki í höndum Púertó Ríkó. Bandaríkjaþing hefur lokaorðið en afar ólíklegt þykir að Bandríkin veiti Púertó Ríkó ríkisstöðu.Landstjóri berst fyrir ríkisstöðuÍ samtali við The Guardian segir Ricardo Rosselló, landstjóri Púertó Ríkó, það vera vansæmandi fyrir Bandaríkin að eiga yfir að ráða eins konar nýlendusvæði á 21. öldinni. Þá sé núverandi staða líka skammarleg fyrir íbúa Púertó Ríkó. Rosselló er eindreginn stuðningsmaður þess að Bandaríkin fullgildi Púertó Ríkó sem 51. fylkið. Landstjórinn hefur farið mikinn á samskiptaforritinu Twitter og birtir hann tíst undir myllumerkinu „Estadidad“ eða „ríkisstaða“ á íslensku. Spurður að því hvort honum þyki raunhæft að Bandaríkin, með Donald Trump í broddi fylkingar, veiti þeim ríkisstöðu segist Rosselló ekki vita til þess að Bandaríkjaforseti sé andvígur fólki frá Rómönsku Ameríku þó svo að hann hafi að sjálfsögðu heyrt lítillækkandi ummæli. Segist hann ekki þekkja forsetann persónulega og að ummæli hans aftri sér ekki í baráttunni. „Ef við sýnum fram á það að íbúar Púertó Ríkó vilji verða fylki Bandaríkjanna og að þeir hafni nýlendustöðu sinni verður þjóðin, sem segist tala fyrir lýðræði, að gera eitthvað í málunum,“ segir Rosselló.The Democrats want to shut government if we don't bail out Puerto Rico and give billions to their insurance companies for OCare failure. NO!— Donald J. Trump (@realDonaldTrump) April 27, 2017 Greiðsluþrot Púertó Ríkó Kosningarnar eru haldnar í skugga efnahagserfiðleika eyjunnar en 3. maí, síðastliðinn, var tilkynnt um sögulega enduskipulagningu á skuldum ríkisins. Um er að ræða stærsta gjaldþrot í sögu bandaríska markaðarins með bréf ríkja og sveitarfélaga en sá markaður telur 3800 milljarða bandaríkjadala. Enn er óljóst hve mikið af um 72 milljarða dala skuldum Púertó Ríkó eru inni í greiðsluþrotinu en ljóst er að greiðsluþrot Detroit-borgar árið 2013 er smátt í samanburði. Tilkynningin barst eftir að nokkrir aðalkröfuhafar Púertó Ríkó stefndu eyríkinu vegna vanskila á skuldabréfum þess. Óhætt er að segja að mikil óvissa ríki um framtíð eyjarinnar en greiðsluþrotið gæti leitt til skerðingar á lífeyrisgreiðslum og atvinnutryggingum íbúanna sem og samdráttar til heilsugæslu og menntakerfis. Samdráttur hefur verið í efnahag eyjarinnar í nærri áratug og um 45 prósent íbúa lifa í fátækt.
Mest lesið „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Segir erfitt að horfa upp á nágranna missa aleiguna Erlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Rúmlega 50 heimili horfin í stórbruna í Drammen Erlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Maðurinn sem sóttur var í Glerárdal er látinn Innlent Halldór Árni Sveinsson er látinn Innlent Bongóblíða um nánast allt land og rofar til í borginni um stund Veður „Galið að komast að þessari niðurstöðu“ Innlent Fleiri fréttir Segir erfitt að horfa upp á nágranna missa aleiguna Rúmlega 50 heimili horfin í stórbruna í Drammen Flóka saknað og grunur um þjófnað Skotárás við Álaborg Boðar aukin ríkisafskipti og heitir því að verða áfram „maður fólksins“ Mótmælt í Kænugarði vegna uppsagnar varnarmálaráðherrans Reykur frá skógareldum í Kanada veldur vandræðum víða Gerðu árásir á Íran sjötta daginn í röð Trump sáir efasemdafræjum í aðdraganda þingkosninga Gróðureldar loga stjórnlaust og fólki ráðlagt að halda sig innandyra Fimmtíu og sjö með stöðu sakbornings vegna vanrækslu brúar R. Kelly biðlar til Trump um að milda fangelsisdóminn Testósterónmagn kannað hjá öllum hermönnum 30 ára og eldri Gefa upp dánarorsökina vegna „ónákvæmra og rangra frétta“ af andlátinu Bandaríkjamenn skjóta á skip sem hugðist leggja við bryggju á Kharg-eyju Tvö þúsund smitaðir og rúmlega sjö hundruð látnir Sex létust í árásum Rússa í nótt Fyrrum forsætisráðherra Noregs vill þjóðaratkvæði um aðildarviðræður Segja gervigreindina hafa valið þá sem sagt var upp og saka Meta um mismunun Carroll fær loksins miskabæturnar frá Trump Þurfa að hafa lokið herskyldu til að fá vernd innan ESB Gus sleginn á 6,3 milljarða króna Eldri unglingum bannað að fara á samfélagsmiðla á nóttunni Um 7.000 manns taldir smitaðir af svæsinni niðurgangspest Trump hótar árásum á orkuver og Íranir að stöðva alla olíuflutninga Sex létust í eldsvoða í Brussel Hættur við innheimtu tolls á Hormússundi Morðið á Ann Widdecombe var „markviss árás“ Vinna ekki með Bandaríkjamönnum af þjóðaröryggisástæðum Telja sjötugan Þjóðverja hafa byrlað og nauðgað fjölda kvenna Sjá meira