Stöðvuðu vopnað rán | Myndband Stefán Ó. Jónsson skrifar 10. ágúst 2017 06:31 Hamagangurinn var mikill þegar verslunareigendurnir reyndu að ýta öðröm ræningjanna út úr versluninni. Á meðan beindi hinn byssu að þremenningunum. Skjáskot
Tveir verslunareigendur í bandarísku borginni Arlington í Texasfylki gerðu sér lítið fyrir og lögðu tvo vopnaða ræningja. Lögreglan í borginni birti upptöku úr öryggismyndavél verslunarinnar, sem sjá má hér að neðan, og óskaði aðstoðar almennings við að bera kennsl á mennina. Í myndbandinu sést hvernig annar mannanna, vopnaður byssu, stekkur yfir afgreiðsluborðið. Hefst þá mikill hamagangur milli ræningjans og verslunareigendanna og falla allir í eina kös á bakvið afgreiðsluborðið. Á meðan stendur hinn ræninginn álengdar áður en hann dregur sjálfur upp byssu og miðar að þremenningunum. Annar eigendanna reynir þá að rífa byssuna af honum meðan hinn er í óðaönn við að ýta ræningjanum á bak við búðarborðið út úr versluninni. Þegar hinn vopnaði sér í hvað stefnir ákveður hann að taka á rás og skilur félaga sinn eftir með verslunareigendunum sem reyna að varna því að hann geti fylgt á eftir. Þegar eigendunum virðist ætla að takast ætlunarverk sitt kallar ræninginn á félaga sinn sem hleypur til baka og slær í átt að eigendunum. Eftir töluverðan atgang og handalögmál komast báðir ræningjarnir undan. Lögreglan í Arlington hvetur áhorfendur til að hafa samband við sig þekki þeir mennina. Hún minnir jafnframt á að það sé ekki sniðugt að lenda í handalögmálum við vopnaða ræningja. Myndbandið úr versluninni má sjá hér að neðan.
Mest lesið Hljóp inn í brennandi byggingu til að bjarga nágrannanum Innlent Sveitarstjóra ekki heimilt að banna hundahald Innlent Ellefu meðlimir glæpafjölskyldu teknir af lífi í Kína Erlent Spyr hvort ekki sé tími á að Palestínumenn snúi aftur í friðinn heima Innlent Hátt í sjötíu ár síðan það snjóaði eins lítið Innlent Hvort myndu þau hringja fyrst til baka í Pétur eða Hildi? Innlent Vísar ásökunum um óeðlileg afskipti í kosningabaráttu á bug Innlent Segir Venesúela munu þurfa að sækja um úthlutun úr eigin olíusjóði í Katar Erlent Fundu fjarlægustu vetrarbrautina hingað til Erlent 28 prósent Selfyssingar: „Eitthvað í mjólkinni eða smjörinu“ Innlent Fleiri fréttir Segir Venesúela munu þurfa að sækja um úthlutun úr eigin olíusjóði í Katar Ellefu meðlimir glæpafjölskyldu teknir af lífi í Kína Fundu fjarlægustu vetrarbrautina hingað til Segir útsendara „mögulega“ ekki hafa fylgt verkreglum Segir Trump ekki reiðan Íslandi Dómsdagsklukkan færð fram Sendir herskipaflota að Íran og hótar „ofbeldi“ Helsta klappstýran sögð slegin yfir sálarástandi Trumps Verða ekki viðstödd réttarhöld stjúpsonarins Vilja veita þúsundum sem dvelja ólölega á Spáni dvalarleyfi Ná saman um myndun minnihlutastjórnar í Hollandi Maður sprautaði illa lyktandi vökva á Ilhan Omar Róa á nýnasistamið í leit að ICE-liðum Dómari stöðvar brottflutning Liam og föður hans Bandaríkin hyggja á heræfingar í Mið-Austurlöndum Svíar líta til kjarnorkuvopna Tónninn breytist með yfirmannaskiptum hjá ICE Tala fallinna og særðra nálgast tvær milljónir Svíar hyggjast lækka sakhæfisaldur „Móðir allra samninga“ Um þriðjungur Dana fær 50 þúsund króna „matartékka“ beint í vasann frá ríkinu Segja mögulegt að yfir 30.000 hafi verið drepin í mótmælunum Franska þingið samþykkti símabann hjá börnum Evrópusambandið og Indland ganga frá fríverslunarsamningi Bovino sendur til Kaliforníu og Leavitt dregur í land Lét þingmenn heyra það og sagði Evrópu ekki geta varið sig sjálfa Trump sagður hafa lofað óháðum rannsóknum í Minnesota Einn lifði flugslys í Maine af en sjö dóu Hafa fundið lík síðasta gíslsins á Gasa Börnin heima þegar móðir þeirra var stungin til bana Sjá meira