Kris Kristofferson ákærður fyrir fíkniefnasmygl í Færeyjum Stefán Ó. Jónsson skrifar 10. ágúst 2017 11:48 Kris Kristofferson hafði leikið á tónleikum í Hörpu skömmu áður en hann var handtekinn í Færeyjum. Vísir/Getty
Bandaríski kántrýsöngvarinn og Íslandsvinurinn Kris Kristofferson hefur verið ákærður fyrir að smygla fíkniefnum til Færeyja. Kristofferson, sem er meðal þekktustu listamanna heims á sínu sviði, var handtekinn við komuna til Þórshafnar í fyrra þar sem hann hugðist leika á tónleikum þann 1. september. Við leit á honum fundust kannabisefni sem tekin voru af söngvaranum á flugvellinum. Að sögn Kringvarpsins verður mál hans tekið fyrir í færeyskum dómstólum eftir helgi. Í stuttu samtali við Kringvarpið segir umboðsmaður söngvarans, Tamara Saviano, að um maríjúana í lækningaskyni hafi verið að ræða. „Kris Kristofferson var með nokkrar dósir af marijúana á sér sem hann hafði fengið uppáskrifað frá lækni en það er löglegt í Kaliforníu. Efnin voru tekin af honum á flugvellinum í Færeyjum og hann fékk sekt upp á 160 dali,“ segir Saviano en 160 dalir eru rúmlega 16 þúsund íslenskar krónur. Hann lét ekki handtökuna í fyrra á sig fá og hélt aðra tónleika í Færeyjum á G!-festival í sumar. Söngvarinn, sem varð áttræður á síðasta ári, hefur talað opinskátt um grasreykingar sínar í gegnum árin. Þannig afskrifaði hann það í samtali við tímaritið Rolling Stone í fyrra að minnisleysi sitt mætti rekja til reykinganna. „Ég mun ekki hætta að reykja. Ég er handviss um að þær hægi á mér og geri mig ekki að sneggsta manninum í herberginu en ég mun eflaust reykja þangað til að ég fer yfir móðuna miklu,“ sagði Kristofferson.
Tengdar fréttir Kris Kristofferson með tónleika í Hörpu Goðsögnin- kántrístjarnan – leikarinn- söngvarinn- lagahöfundurinn og söngvaskáldið Kris Kristofferson heldur tónleika í Eldborgarsal Hörpu, þann 26. september í haus. 8. júní 2016 11:30 Mest lesið „Fyrir mér ert þú óheiðarlegt úrhrak“ Innlent Nýr íþróttavöllur vekur athygli í fámennri sveit Innlent Vilja að konur uppfylli sinn æðsta tilgang: að verða mæður Innlent Þurfi að finna Kaffistofunni nýjan og góðan stað Innlent „Svona getur þetta ekki gengið lengur“ Innlent Tónleikasvæðið á Þingvöllum fyrir og eftir: Eins og „góð mosatæting“ Innlent Gera alvarlega athugasemd við niðurrif á Sæbraut Innlent Slegið á fingur Trumps vegna stríðsreksturs í Íran Erlent Kosti um tvo milljarða að laga verstu gangstéttirnar í borginni Innlent Nýir bandamenn Miðflokksins sakaðir um rasisma gegn þingkonu Erlent Fleiri fréttir „Í fyrsta skipti sá ég fólk grátandi á götum Lundúna“ Áfram viðvaranir vegna hitasvækju víða um Evrópu Nýir bandamenn Miðflokksins sakaðir um rasisma gegn þingkonu Fundu vefnaðarmiðstöð frá víkingaöld við Árósa Slegið á fingur Trumps vegna stríðsreksturs í Íran Fyrrverandi eiginmaður Sturgeon í fimm ára fangelsi Segja móður Guthrie hafa látist fyrir slysni Hægrimaðurinn De la Espriella nýr forseti Kólumbíu Fjölskylduferð í skemmtigarð tók óvænta stefnu í hitabylgjunni Burnham formlega orðinn þingmaður Burnham vill taka við af Starmer Alan Greenspan er látinn Vandræðagangur í breskum stjórnmálum allt frá Brexit Starmer segir af sér Fundu nærri þrjú tonn af kókaíni í neðanjarðarbyrgi í Ástralíu Starmer muni segja af sér í dag Fyrstu lotu friðarviðræðna Bandaríkjanna og Íran lokið Leggja bönn á áfengisneyslu vegna hitabylgjunnar „Konur eru svangari, fátækari og örvæntingarfyllri en nokkru sinni fyrr“ Sagður ætla að tilkynna afsögn á morgun Vance þreifar fyrir sér í Sviss Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Meloni segir Trump skrökva upp á sig Witkoff stefnir til Sviss Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Sjá meira
Kris Kristofferson með tónleika í Hörpu Goðsögnin- kántrístjarnan – leikarinn- söngvarinn- lagahöfundurinn og söngvaskáldið Kris Kristofferson heldur tónleika í Eldborgarsal Hörpu, þann 26. september í haus. 8. júní 2016 11:30