Sifjaspell setti deiliskipulagið í uppnám Stefán Ó. Jónsson skrifar 25. ágúst 2017 08:58 Systkinin Jaime og Cersei Lannister eiga í nánari sambandi en skipulagsfulltrúar geta sætt sig við. HBO
Hér að neðan má finna í það minnsta tvo spennuspilla úr GOT. Lesendur sem ekki hafa séð einn einasta þátt, en hafa hugsanlega áhuga á því, ættu ekki að lesa lengra. Hinn óútreiknanlegi söguþráður Game of Thrones hefur valdið skipulagsfulltrúum í borginni Geelong í Ástralíu töluverðu hugarangri eftir að ákveðið var að nefna götur nýs hverfis eftir persónum og stöðum í þessum geysivinsælu þáttum. Upphaflega hafði staðið til að ein gatan fengi nafnið Lannaster Road en það var blásið af á seinni stigum. Það þótti ekki við hæfi að bendla götuna við sifjaspellið sem systkinin Cersei og Jamie Lannister stunda í þáttunum. Bæjarverkfræðingurinn segir í samtali við Guardian að sambandið þeirra hafi einfaldlega þótt of eldfimt. „Ég breytti meira að segja stafsetningunni svo þetta yrði ekki jafn augljóst.“ Lannaster Road fær þess í stað nafnið Precinct Road. Aðrar götur í hverfinu munu þó heita nöfnum úr Game of Thrones-ævintýraheiminum. Þar verður meðal annars að finna göturnar Stannis, Winerfell, Greyjoy, Balish og Tywin - sem er faðir þeirra Cersei og Jamie. Stærstu mistökin sem gerð voru við hönnun hverfisins segir bæjarverkfræðingurinn hafi verið að hafa Snow-götuna ekki stærri. Vinsældir Jon Snow í þáttunum virðast hafa smitað út frá sér því eftirspurnin eftir húsum við hina stuttu Snow-götu er margfalt meiri en framboðið. „Við héldum að Jon Snow myndi deyja en svo lifnaði hann bara aftur til lífsins í næstu þáttaröð. Hann er uppáhald allra, við hefðum átt að gefa honum breiðgötu.“
Mest lesið Enn þykknar upp hjá SÁÁ Innlent Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Erlent „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Lokuðu einni mikilvægustu olíuleiðslunni Erlent Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Fleiri fréttir Lokuðu einni mikilvægustu olíuleiðslunni „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Þingkosningar í Svíþjóð: Stjórnin riðar til falls en að mynda nýja gæti reynst erfitt Minnst 44 slasast og ein í lífshættu eftir lestarslys í Frakklandi Systir Haraldar er látin Dönsk kona ákærð fyrir að verða nýfæddum börnum sínum að bana Stefna kanslaranum fyrir meiðyrði um Valkost fyrir Þýskaland Gerðu drónaárásir á verslunarmiðstöð Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Kanna hvort Kim eigi son Biður dómara um að hlífa Clancy við öðrum réttarhöldum Miklar hækkanir á olíumörkuðum í dag Reyndi að vara við að flugvélin færi of hratt Tugir látnir í eldsvoða í flutningaskipi í Kína Boðar til skyndikosninga til að lægja öldurnar í Serbíu Ætli að gefa öllum þúsundir dollara ef repúblikanar sigra Játar aðild að einu stærsta Bitcoin-þjófnaðarmáli sögunnar Heitasta sumarið í Vestur-Evrópu Pakistanar sögðu klerkastjórninni að koma böndum á Húta Viðurkenndi efasemdir: „Ég ætla samt ekki að sýkna hana“ Selenskí kíkti á klakann Gaf Harp og tveimur öðrum ráðgjöfum milljónir í jólagjöf Leggur stefnu AfD að jöfnu við þjóðernishreinsanir Farage kemur frönskum skoðanabróður í klandur Banna breskum þingmönnum að koma til Ísraels Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Rétta yfir rússneskum skipstjóra sem sleit sæstrengi við Finnland Sjá meira