Tryllt tölfræði úr enska: Norðmenn skora meira en Brassar og Rodgers er betri en Klopp Tómas Þór Þórðarson skrifar 8. maí 2017 12:30 Jürgen Klopp er með slakari árangur en Brendan Rodgers eftir 66 leiki. vísir/getty
Vefsíða breska ríkisútvarpsins, BBC, er með afar skemmtilega tölfræðiúttekt eftir helgina í enska boltanum þar sem kemur meðal annars fram að Norðmenn hafa skorað meira en Brassar í ensku úrvalsdeildinni í gegnum tíðina og að Brendan Rodgers var með betri árangur en Jürgen Klopp eftir 66 leiki hjá Liverpool. Markið sem Nicolas Otamendi skoraði fyrir Manchester City í 5-0 sigri liðsins á Crystal Palace um helgina var 400. markið sem argentínskur leikmaður skorar í ensku úrvalsdeildinni. Argentínumenn hafa skorað meira en erkifjendur sínir frá Brasilíu í gegnum tíðina en brasilískir leikmenn eiga að baki 322 mörk í úrvalsdeildinni. Hvorug þjóðin kemst inn á topp fimm listann en þar eru Norðmenn aftur móti í fjórða sæti á undan Nígeríu. Norskir leikmenn hafa skorað 507 mörk í ensku úrvalsdeildinni en það eru fleiri mörk heldur en leikmenn frá Argentínu, Brasilíu, Ítalíu og Belgíu hafa skorað frá stofnun úrvalsdeildarinnar. Franskir leikmenn hafa skorað flest mörk erlendra leikmanna í úrvalsdeildinni en þar á eftir koma Hollendingar og svo Spánverjar. Frakkar eru langefstir með ríflega 1.400 mörk en engin önnur þjóð kemst yfir þúsund marka múrinn. Í þessari úttekt BBC kemur einnig fram að árangur Brendans Rodgers sem knattspyrnustjóri Liverpool í fyrstu 66 leikjunum með liðið var betri en núverandi árangur Jürgens Klopps. Fyrir leik Liverpool og Southampton um helgina var Klopp með nákvæmlega sama árangur og Rodgers í fyrstu 65 leikjunum; 33 sigra, 18 jafntefli og 14 töp sem gerir 117 stig. Liverpool gerði markalaust jafntefli við Southampton í gær en Brendan Rodgers vann 66. leikinn sinn sem knattspyrnustjóri Liverpool.
Enski boltinn Mest lesið Arnar Daði rekinn frá Stjörnunni en áfram þjálfari kvennaliðsins Handbolti Koepka fyrsta stjarnan sem riftir samningi við LIV Golf Ótrúlegur sigur á HM: „Ég er mjög tregur svo pressan nær ekki til mín“ Sport „Þetta er stærsti klúbbur Íslands“ Íslenski boltinn Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City Enski boltinn Sagan ekki sönn: „Veit ekki hvaðan þetta á að hafa komið“ Íslenski boltinn Öll höllin æpti nafn Gísla í spennutrylli Handbolti Þessi tíu eru tilnefnd sem Íþróttamaður ársins 2025: 23 ára aldursmunur Sport Arsenal í undanúrslit eftir vító Enski boltinn Stefndi á ÓL en fannst látinn á hótelherbergi Sport Fleiri fréttir Arsenal í undanúrslit eftir vító Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City „Tölfræðilega séð eiga þeir ekkert að vera í þessari stöðu“ Chelsea setur sig í samband við Semenyo Jiménez jafnaði bestu vítaskyttu sögunnar Slot mun sakna Isak í tvo mánuði eftir „glórulausa tæklingu“ Sjáðu „auma“ vítið sem skilaði Fulham sigri Fulham skildi Forest eftir við fallsvæðið Áfallið staðreynd og Isak búinn í aðgerð Fagnaði titli Liverpool sem óður maður um alla borg „Allir virðast elska hann“ „Þetta mun ekki buga okkur“ Guardiola mun vigta leikmenn Man City eftir jólin „Ef þið væruð Antoine Semenyo, hvert mynduð þið fara?“ Sjáðu mörkin: Rogers sá um Manchester United Óttast að Isak hafi fótbrotnað Tvenna frá Rogers tryggði Villa sigur gegn Manchester United Fimmta sinn sem Arsenal er á toppnum um jólin: Unnu ekki titilinn í fyrstu fjögur skiptin „Viljum við að okkar verði minnst fyrir að vera skræfur?“ „Ef dómarinn hefði sinnt sínu starfi almennilega hefði Romero ekki fengið spjald“ Haaland gaf barnabarni Hareide gjöf Sjáðu mörkin úr enska: Sviptingar, sænskt þema og svakalegar tæklingar Calvert-Lewin hættir ekki að skora Gyökeres skaut Arsenal aftur á toppinn Slot fámáll um stöðuna á Isak Gleði og sorg í sigri Liverpool Dramatík er Broja reyndist hetja Burnley Haaland frábær er Manchester City komst á toppinn Andri Lucas skoraði í langþráðum sigri Blackburn Chelsea vann upp tveggja marka forskot á St James' Park Sjá meira