Myrt af nýnasískum kærasta dóttur sinnar Atli Ísleifsson skrifar 27. desember 2017 10:36 Scott Fricker, 48 ára, og Buckley Kuhn-Fricker, 43 ára, voru myrt á heimili sínu í Virginíu. facebook
Hjón í Bandaríkjunum voru myrt af kærasta dóttur sinnar á heimili sínu í Reston í Virginíu þremur dögum fyrir jól. Bandarískir fjölmiðlar greina nú frá því að á síðustu vikum hafi þau beðið dóttur sína um að halda sig fjarri sautján ára manni sem þau töldu vera nasista. Hann hefur nú verið ákærður fyrir morðin.Washington Post segir frá því að hjónin, hinn 48 ára Scott Fricker og hin 43 ára Buckley Kuhn-Fricker, hafi óttast að maðurinn myndi reyna að deila nýnasískum skoðunum sínum með dóttur þeirra. Janet Kuhn, móðir Kuhn-Fricker, segir við bandaríska blaðið að Fricker og Kuhn-Fricker hafi komið að drengnum í svefnherbergi dóttur sinnar og að það hafi leitt til rifrildis sem lauk með að þau voru drepin. Maðurinn, sem ekki hefur verið nafngreindur, á svo að hafa reynt að svipta sig lífi, en lifað af. Washington Post greinir enn fremur frá því að Kuhn-Fricker hafi sent stjórnendum við skóla dótturinnar skjáskot af samfélagsmiðlum sautján ára mannsins. Þar var að finna ýmiss konar hatursáróður í garð samkynhneigðra, gyðinga og vísanir í bókabrennur Adolfs Hitler og fleira. Í umræddum tölvupósti ritaði Kuhn-Fricker að hún myndi ekki vara við drengnum ef hann hefði hagað sér eins og venjulegur táningur en að hann hefði sýnt fram á að hann væri „skrímsli“. „Þetta var hans val. Hann dreifir hatri,“ á hún að hafa skrifað í bréfinu.
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Á spítala eftir misheppnaða aftöku Erlent Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Fleiri fréttir Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Sjá meira