Bærinn Erie á kafi í snjó Samúel Karl Ólason skrifar 28. desember 2017 12:15 Þó dregið hafi úr snjókomunni er von á meiri snjókomu, allt að 30 sentímetrum, á næstu dögum.
Bærinn Erie í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum er á kafi í snjó þar sem snjókoman hefur mælst meiri en einn og hálfur metri á nokkrum dögum. Þó dregið hafi úr snjókomunni er ekkert lát á henni. Von er á allt að 30 sentímetrum til viðbótar næstu daga. „Þetta er lamandi snjókoma,“ sagði veðurfræðingurinn Zach Sefcovic við Reuters. „Fólkið í þessum hluta ríkisins er ekki óvant snjókomu en svo mikil snjókoma á jafn skömmum tíma hefur ekki sést áður.“Hér má sjá svokallað timelapse-myndband, sem sýnir snjókomuna á einum sólarhring.A storm dumps more than 65 inches of snow in just 24 hours in this timelapse video from Pennsylvania pic.twitter.com/b6mRSLwQXf— Sky News (@SkyNews) December 28, 2017 59 ára gamalt met hefur nú verið slegið. Mesta snjókoman sem mælst hafði var 111 sentímetrar árið 1958. Meðalsnjókoma yfir heilan vetur í Erie er um tveir og hálfur metri, samkvæmt frétt Washington Post. Það sem af er desember hefur snjókoman mælst um 233 sentímetrar. Ríkisstjóri Pennsylvaníu, Tom Wolf, sendi þjóðvarðsliða á vettvang til að hjálpa heimamönnum við mokstur og sjúkraflutninga í nokkra daga. Snjókoman er til komin vegna þess að kalt loft kom yfir Erie-vatn úr norðri og tók í sig mikinn raka úr vatninu, sem var tiltölulega hlýtt.Hér er snjókoman útskýrð af blaðamanni Washington Post.
Bandaríkin Mest lesið Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum Innlent Hafði fé af mótsgesti Innlent Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Erlent Slysið austan við Vík var alvarlegt Innlent Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Innlent Rútum ekið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina Innlent HR útskrifaði rúmlega sjö hundruð í dag Innlent „Þetta er stórmerkilegur áfangi“ Innlent Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Innlent Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Innlent Fleiri fréttir Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Meloni segir Trump skrökva upp á sig Witkoff stefnir til Sviss Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Fuglaflensan stráfelldi kópa á suðurskautinu Trump undirritaði samkomulag við Írani Spá allt að fjörutíu stiga hita Rex Heuermann fær lífstíðardóm Eins árs gamalt barn skotið til bana af lögreglumanni Rex Heuermann leiddur fyrir dómara í dag Mette-Marit krónprinsessa fékk ný lungu í vel heppnaðri aðgerð Skopmyndateiknari skotinn til bana Rússnesk freigáta skaut varúðarskotum að skútu í Ermarsundi Rússar skipulögðu íkveikjur gegn forsætisráðherra Bretlands Segjast hafa sprengt olíuhreinsistöð nærri Moskvu Stefna á að hafa ný aðildarríki í styttri ól Öll áhöfnin talin af Samkomulag um samkomulag undirritað og klárt Erfiðir tímar fyrir norsku konungsfjölskylduna Sonur krónprinsessunnar áfrýjar dómi Sjá meira