Upphitun: City-menn geta bætt met í kvöld Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 13. desember 2017 11:30
Manchester City getur sett met þegar liðið mætir botnliði Swansea City á útivelli í 17. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í kvöld. Strákarnir hans Peps Guardiola hafa unnið 14 leiki í röð og með sigri í kvöld bæta þeir met Arsenal frá 2002 yfir flesta sigurleiki í efstu deild á Englandi í röð. City er miklu sigurstranglegri en liðið hefur unnið níu af 12 leikjum sínum gegn Swansea í ensku úrvalsdeildinni. Liðið í 2. sæti, Manchester United, fær Bournemouth í heimsókn. Romelu Lukaku, sem hefur verið ískaldur að undanförnu, hefur skorað fimm mörk í síðustu fjórum leikjum sínum gegn Bournemouth. Liverpool tekur á móti kaldasta liði deildarinnar, West Brom, sem hefur ekki unnið í 14 leikjum í röð og gæti setið í fallsæti eftir umferðina. West Ham, sem vann frábæran sigur á Chelsea í síðustu umferð, tekur á móti Arsenal í Lundúnaslag. Sam Allardyce, knattspyrnustjóri Everton, mætir með sína menn á St. James' Park þar sem þeir etja kappi við Newcastle United. Everton hefur unnið sex af síðustu sjö leikjum sínum gegn Newcastle. Gylfi Þór Sigurðsson verður væntanlega á sínum stað í byrjunarliði Everton. Tottenham fær Brighton í heimsókn. Spurs rústaði Stoke City í síðustu umferð á meðan Brighton tapaði fyrir Huddersfield í nýliðaslag. Þá fer Claude Puel með sína menn í Leicester City á St. Mary's völlinn þar sem þeir mæta Southampton, sem Puel stýrði á síðasta tímabili.Leikir dagsins: 19:45 Swansea - Man City 19:45 Newcastle - Everton 19:45 Southampton - Leicester 20:00 Liverpool - West Brom (beint á Stöð 2 Sport) 20:00 Man Utd - Bournemouth (beint á Stöð 2 Sport 2) 20:00 West Ham - Arsenal (beint á Stöð 2 Sport 3) 20:00 Tottenham - Brighton
Enski boltinn Mest lesið Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield Enski boltinn Aðeins sautján konur með betri tíma en Elísa í ógnarsterku utanvegahlaupi Sport Sjáðu óverjandi mark Hákons gegn PSG Fótbolti Linda Líf gengur til liðs við nýliðana í enska boltanum Sport Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Enski boltinn Ver umdeilda veggmynd sína af Ronnie O'Sullivan Sport Bjarni ræðir brottförina frá Val: „Erfitt að ná alvöru stöðugleika“ Íslenski boltinn PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Enski boltinn Hákon skoraði glæsimark gegn PSG Fótbolti Dagskráin í dag: Enski og Bestu deildirnar í aðalhlutverki Sport Fleiri fréttir Bournemouth - Everton | Norðanliðið mætir suður Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Savinho til Tottenham frá Manchester City Sjá meira