Stöngin inn og stöngin út hjá Gylfa og Jóhanni Berg á sömu mínútunni í gær | Myndbönd Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 27. nóvember 2017 12:30 Gylfi Þór Sigurðsson og Jóhann Berg Guðmundsson. Mynd/Samsett/Getty
Landliðsmennirnir Gylfi Þór Sigurðsson og Jóhann Berg Guðmundsson voru báðir í sviðsljósinu í ensku úrvalsdeildinni í gær en lið þeirra beggja urðu þó að sætta sig við tap. Litlu munaði að íslensku strákarnir opnuðu markareikning sinn á tímabilinu á sömu mínútunni. Everton tapaði 4-1 á útivelli á móti Southampton en Burnley tapaði 1-0 á heimavelli á móti Arsenal þar sem sigurmarkið kom úr vítaspyrnu í uppbótatíma. Gylfi Þór Sigurðsson skoraði eina mark Everton leiksins með frábæru langskoti undir lok fyrri hálfleiks. Litlu munaði þó að Gylfi og Jóhann Berg hefðu skorað á sömu mínútunni í gær. Rétt áður en Gylfi skoraði markið sitt þá átti Jóhann Berg skot sem Petr Cech varði í stöngina. Atvikið með Jóhanni kom á á fimmtándu mínútu í leik Burnley og Arsenal en sá leikur hófst hálftíma á eftir Everton-leiknum. Skot Gylfa fór tvisvar í slána og einu sinni í stöngina áður en hann fór í markið. Það var því stöngin inn hjá Gylfa og stöngin út hjá Jóhanni þegar klukkan var rúmlega korter gengin í þrjú í gær. Það hefði verið magnað ef tveir íslenskir landsliðsmenn hefðu skorað á sömu mínútunni í ensku úrvalsdeildinni en markið hans Gylfa var fyrsta markið sem Íslendingur skorar í ensku úrvalsdeildinni á þessari leiktíð. Hér fyrir neðan má sjá myndbönd frá leikjum íslensku strákanna þar sem einmitt má sjá þessi tvö skot þeirra. Mark Gylfa og hin mörkin í leik Southampton og EvertonStangarskot Jóhanns Berg og sigurmark Arsenal á móti Burnley
Enski boltinn Mest lesið Guardiola sá langþráða endurkomu Benonýs Breka Enski boltinn Neuer eignaðist niðurlægjandi met Fótbolti Baldvin og Andrea fögnuðu sigri í fyrsta míluhlaupinu Sport Bjartsýnn á að spila aftur eftir þriggja hæða fall Golf Metfjöldi marka í undanúrslitum: Sjáðu veisluna sem fór fram í París Fótbolti Beint rautt spjald fyrir að hylja munninn á HM Fótbolti Þórsarar gætu hætt: „Fyrir hvern erum við að standa í þessu starfi?“ Körfubolti Gremja í City-mönnum sem spila þrjá leiki á sjö dögum Enski boltinn Fékk ekki umbeðna bílalest á við páfann Fótbolti Dagskráin í dag: Stjarnan með sóp á Króknum og Arsenal slæst við Atlético Sport Fleiri fréttir Sú sigursælasta setur skóna á hilluna Guardiola sá langþráða endurkomu Benonýs Breka Gremja í City-mönnum sem spila þrjá leiki á sjö dögum Ipswich sigri frá sæti í ensku úrvalsdeildinni Stones rifar seglin hjá City Knattspyrnukona missti fóstur á æfingu: „Þeir björguðu líklega lífi mínu“ Fernandes nálgast stoðsendingametið eftir sigur United Fá leyfi til að leika sér í fríinu Fékk sér tebolla með Ratcliffe Frá út leiktíðina og missir af HM Fernández kom Chelsea í bikarúrslit Vill skrúfa fyrir lekann eftir að rakarinn birti byrjunarliðið Mörkin úr enska: Skaut Arsenal á toppinn og dramatíkin allsráðandi á botninum Salah gæti hafa spilað sinn síðasta leik fyrir Liverpool Eze skaut Arsenal aftur á toppinn Manchester City tryggði sér farmiða í úrslitaleikinn Þriðji sigur Liverpool í röð Tottenham vann loksins en er enn í fallsæti Fulham vann og Liverpool getur komist upp fyrir Villa Andlát Jota notað sem barefli á leikmenn Liverpool Allt slökkt á Leikvangi ljóssins Hákon hefur bætt sig á öllum sviðum og framlengir við Brentford Segir Fabregas að halda sig fjarri „martröðinni“ hjá Chelsea Kallar eftir þjónustu: „Hver er annars tilgangurinn?“ Valtar yfir eigendur Chelsea og segir stuðningsmenn fyllast viðbjóði Sjáðu Haaland skjóta Manchester City á toppinn Furðaði sig á spurningu í viðtali eftir leik: „Fullkomlega ósammála“ Haaland skaut Manchester City á toppinn Rosenior rekinn frá Chelsea Hársnyrtir Cucurella lak upplýsingum úr herbúðum Chelsea Sjá meira