800 þúsund lítrar láku úr umdeildri olíuleiðslu í Bandaríkjunum Samúel Karl Ólason skrifar 16. nóvember 2017 23:44 Fyrirtækið TransCanada hefur ekki gefið út hvað olli lekanum. Vísir/AFP
Um 800 þúsund lítrar af olíu láku úr hinni umdeildu Keystone olíuleiðslu í Suður-Dakota í Bandaríkjunum í dag. Leiðslan liggur frá Alberta í Kanada til Nebraska en deilt hefur verið um hana í nokkur ár. Barack Obama, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, stöðvaði byggingu viðbótarinnar Keystone XL árið 2015 vegna ótta um að leiðslan gæti valdið gríðarlegu umhverfistjóni og indjánar vilja ekki að leiðslan liggi í gegnum land þeirra. Donald Trump, núverandi forseti Bandaríkjanna, kom verkefninu aftur af stað skömmu eftir að hann tók við embætti í byrjun árs. Náttúruverndarsamtök segja að lekinn sé til marks um það að endurskoða þurfi ákvörðun Donald Trump. Til stendur að taka lokaákvörðun um byggingu nýju leiðslunnar eftir helgi. Fyrirtækið TransCanada hefur ekki gefið út hvað olli lekanum. Forsvarsmenn fyrirtækisins segja þá vinna með yfirvöldum á svæðinu og ætla að gera allt til að draga úr mengun vegna lekans. Þá segir talsmaður umhverfisráðuneytis Suður-Dakóta við CNN að engar fregnir hafi borist um að olían hafi haft áhrif á ár eða dýralíf.Starfsmenn TransCanada urðu varir við lekann eftir að þrýstingur lækkaði verulega í hluta leiðslunnar og slökktu þeir á þeim hluta. Þetta er stærsti lekinn úr leiðslunni í Suður-Dakóta hingað til en í apríl í fyrra láku rúmlega 70 þúsund lítrar af olíu úr leiðslunni. Þá tók hreinsunarstarf um tvo mánuði.
Tengdar fréttir Obama hafnar Keystone XL olíuleiðslunni Barack Obama Bandaríkjaforseti tilkynnti í gær að hann myndi hafna beiðni um lagningu Keystone XL olíuleiðslunnar frá Alberta í Kanada til Nebraska. 7. nóvember 2015 07:00 Trump vill flýta fyrir byggingu umdeildra olíuleiðslna Mikið hefur verið deilt um leiðslurnar um árabil. 24. janúar 2017 16:53 Mest lesið Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Uppsagnir hjá Klettabæ Innlent Fleiri fréttir Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Marco Rubio á leið til Íslands Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Sjá meira
Obama hafnar Keystone XL olíuleiðslunni Barack Obama Bandaríkjaforseti tilkynnti í gær að hann myndi hafna beiðni um lagningu Keystone XL olíuleiðslunnar frá Alberta í Kanada til Nebraska. 7. nóvember 2015 07:00
Trump vill flýta fyrir byggingu umdeildra olíuleiðslna Mikið hefur verið deilt um leiðslurnar um árabil. 24. janúar 2017 16:53