Fjórtán sekúndur skiptu öllu máli fyrir FIFA og endalega svarið var nei Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. október 2017 13:00 Adrien Silva sagði bless við stuðningsmenn Sporting Lissabon um helgina. Vísir/Getty
Alþjóðaknattspyrnusambandið, FIFA, hefur hafnað beiðni enska úrvalsdeildarliðsins Leicester City um keppnisleyfi fyrir miðjumanninn Adrien Silva. Leicester City gekk frá kaupunum á Adrien Silva frá Sporting Lissabon á síðasta degi félagsskiptagluggans, 31. ágúst síðastliðinn, en forráðamenn enska félagsins voru fjórtán sekúndum of seinir að skila öllum pappírunum inn. Sporting Lissabon átti að fá 22 milljónir punda fyrir portúgalska landsliðsmiðjumanninn. Fjórtán sekúndur skiptu öllu máli fyrir FIFA og Leicester City þarf nú að bíða þar til glugginn opnar aftur í janúar til að klára félagsskiptin. BBC segir frá. Adrien Silva hefur verið í einskismannslandi síðan að þetta gerðist og hefur þurft að vera í stúkunni að þegar Leicester liðið er að spila. Hann hefur samt fengið leyfi til að nýta sér æfingaaðstöðuna hjá Leicester til að halda sér í formi en má hinsvegar ekki æfa með liðinu. Adrien Silva fór heim til Portúgals í síðasta mánuði til að vera með fjölskyldu sinni og hann kvaddi liðsfélagana og stuðningsmenn Sporting Lissabon um síðustu helgi á tilfinningaríkri stundu. Adrien Silva fær nú ekki að spila með Leicester City fyrr en eftir þrjá mánuði og hann hefur misst sæti sitt í portúgalska landsliðinu. Þetta mál gæti því orðið til þess að hann verði ekki með á HM í Rússlandi næsta sumar en spili hann vel með Leicester City eftir áramót þá gæti það verið fljótt að breytast.
Enski boltinn Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Öskjuhlíð Sport Annað dauðsfall í CrossFit keppni Sport Bakgarður 101: „Ætla að níðast á þessum líkama og sjá hvað hann getur“ Sport Vill að Arsenal neiti að standa heiðursvörð fyrir Liverpool Enski boltinn Uppgjörið: Porrino - Valur 29-29 | Jafnt í fyrri leiknum Handbolti Uppgjörið: Njarðvík - Haukar 94-78 | Njarðvíkingar settu í fimmta gír í seinni Körfubolti Dreymir um að fá að heiðra dóttur sína heitna í úrslitaleiknum Fótbolti „Heyrðu, það þarf einhver að skutla syni okkar á leikskólann“ Sport Leik lokið: KR - ÍBV 4-1 | KR-ingar enn eina taplausa liðið Íslenski boltinn Uppgjörið: Vestri-Afturelding 2-0 | Vestramenn aftur á toppinn Íslenski boltinn Fleiri fréttir Watkins hélt Meistaradeildardraum Villa á lífi „Vörðust og vörðust meira ásamt því að tefja tímann“ Man. City tapaði mjög óvænt stigum á móti botnliðinu Haaland hreinskilinn: Ég hef ekki verið nægilega góður Vill að Arsenal neiti að standa heiðursvörð fyrir Liverpool Arteta varar Arsenal fólk við: Erfiðasta staðan að fylla Arne Slot vonsvikinn með Trent Alexander-Arnold Mac Allister besti leikmaðurinn í fyrsta sinn Salah valinn bestur af blaðamönnum Fótboltaparið eignaðist son og skírði hann Jagger Tilbúinn að gefa nýrun sín en ekki að leigja bílaleigubíl „Hverjum er ekki sama þó við séum í veseni í deildinni“ „Liðið ætti að vera betra en það er en við erum að reyna“ Sheffield United með gott forskot í umspili Championship Rio Ferdinand lagður inn á sjúkrahús Fagnaði í bol með fullt af myndum af sjálfum sér Gætu þurft að bíða í sautján ár eftir nýjum leikvangi Arteta skaut á Liverpool á fundi fyrir PSG leikinn Ráðherra bað stuðningsmenn Liverpool afsökunar Brasilíudvöl í kortunum hjá Jorginho Real Madrid vill fara í viðræður við Liverpool um Trent Mac Allister: Liverpool er bara rétt að byrja Aftur tapar Forest stigum í baráttunni um Meistaradeildarsæti „Gengur aldrei einn í Liverpool en kannski gerir þú það i Madrid“ María fagnaði sigri á Arsenal á sama degi og tilkynnt var um brottför hennar Amorim: Liðið ekki nógu gott til að vera í Meistaradeildinni Staðfestir brottför frá Liverpool Meistaraþynnka hjá Liverpool og Chelsea græddi mikilvæg stig Isak tryggði Skjórunum stig gegn Mávunum Sjö marka leikur í Lundúnum og enn eitt tap United Sjá meira