Þurfti engan aðlögunartíma Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 25. september 2017 07:00 Álvaro Morata hefur skorað sex mörk í fyrstu sex deildarleikjum Chelsea á tímabilinu. vísir/getty
Álvaro Morata skoraði þrennu þegar Chelsea vann öruggan 0-4 útisigur á Stoke City á laugardaginn. Það var spænsk stemmning á bet365 vellinum því landarnir Morata og Pedro skoruðu öll fjögur mörk Chelsea sem er í 3. sæti ensku úrvalsdeildarinnar. Morata hefur ekki þurft neinn aðlögunartíma á Englandi. Í sex deildarleikjum með Chelsea hefur spænski landsliðsframherjinn skorað sex mörk og gefið tvær stoðsendingar. Morata var keyptur frá Real Madrid til að fylla skarð Diegos Costa sem er farinn aftur til Atlético Madrid. Þeir eru gjörólíkir leikmenn en Morata hefur sýnt að hann er enginn eftirbátur hins geðstirða Costa.Stóru málin eftir helgina í enska boltanumStærstu úrslitin Everton vann afar kærkominn og mikilvægan sigur á Bournemouth á Goodison Park. Everton var komið í öngstræti og staða Ronalds Koeman orðin ótrygg. Senegalski framherjinn Oumar Niasse skoraði bæði mörkin og kom Everton til bjargar.Hvað kom á óvart? Í fyrstu tveimur heimaleikjum sínum á tímabilinu vann Stoke Arsenal og gerði jafntefli við Manchester United. Strákarnir hans Marks Hughes fengu hins vegar á baukinn gegn Englandsmeisturum Chelsea á laugardaginn. Stoke er aðeins með fimm stig eftir fyrstu sex umferðirnar.Mestu vonbrigðin Það var kannski ekki líklegt að Crystal Palace fengi mikið út úr leiknum gegn Manchester City en 5-0 tap var samt áfall. Palace er í skelfilegri stöðu; án stiga og ekki enn búið að skora mark. Palace er eina liðið í bestu fimm deildum Evrópu sem á enn eftir að skora á tímabilinu.
Enski boltinn Tengdar fréttir Kominn úr frystikistunni Gylfi Þór Sigurðsson og félagar í Everton unnu afar kærkominn sigur á Bournemouth um helgina. Hetja Everton var senegalski framherjinn Oumar Niasse sem virtist ekki eiga sér neina framtíð hjá félaginu. 25. september 2017 06:30 Mest lesið Elísa fór kílómetrana 80 á undir níu klukkustundum Sport Ný lið bætast við Körfubolti Spurður út í Adam Ægi: „Getur vel verið að við spjöllum við hann“ Íslenski boltinn Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Enski boltinn Argentína datt í lukkupottinn: Greið leið í undanúrslitin Fótbolti Mikil tilþrif í mótorkrossinu á Akranesi Sport Uppgjörið: Breiðablik - Víkingur 3-0 | Blikar í bikarúrslit Íslenski boltinn „Við þurfum bara að horfa á björtu hliðarnar“ Fótbolti Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Enski boltinn Forseti Suður-Kóreu húðskammar „vanhæfan“ landsliðsþjálfara Fótbolti Fleiri fréttir Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Xabi Alonso vill fá Xhaka til Chelsea Fullviss að möguleg félagaskipti Anderson trufli hann ekki Tilboði Arsenal í lykilmann Newcastle United hafnað Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Fær himinhá laun hjá ungu félagi sem stefnir hátt Onana aftur að láni frá Man. Utd Manchester City þarf að slá met til að klófesta Anderson Real Madrid græddi milljarða á kaupum Liverpool Liverpool hafnaði tilboði í Curtis Jones Sonur Mark Hughes lést aðeins 38 ára gamall Hefja viðræður um kaup á Tonali Segir að Liverpool verði að berjast um titilinn á fyrsta ári Iraola Dagatalið í enska boltanum: Titilvörn Arsenal hefst gegn nýliðum Tottenham borgar háa upphæð fyrir varnarmann Brighton Tekur við Crystal Palace eftir frábært tímabil í Frakklandi Elta Manchester United allt næsta tímabil Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Sonur Djibril Cissé samdi við Liverpool Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna McKenna hættir óvænt sem stjóri Ipswich Everton gert að greiða Burnley næstum því sex milljarða króna Sorgarsaga Sancho á enda en Rashford snýr aftur Keane og Fernandes grafa stríðsöxina Rio Ngumoha á heimleið þrátt fyrir flotta frammistöðu Fyrrum Liverpool-stjarna hættur aðeins 31 árs gamall Ein meidd Arsenal-stjarna nær HM en önnur missir af HM Eigandi West Ham sakaður um að notfæra sér ungar konur kynferðislega „Ég verð að spila“ Sjá meira
Kominn úr frystikistunni Gylfi Þór Sigurðsson og félagar í Everton unnu afar kærkominn sigur á Bournemouth um helgina. Hetja Everton var senegalski framherjinn Oumar Niasse sem virtist ekki eiga sér neina framtíð hjá félaginu. 25. september 2017 06:30