Vilja ferðamennina burt Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 11. ágúst 2017 00:00 Spánverjar eru búnir að fá sig fullsadda á ferðamönnum. Vísir/afp
Vaxandi óánægja er á meðal íbúa á Spáni með ört stækkandi ferðamannaiðnað. Íbúar Spánar, á mest sóttu áfangastöðunum eins og Barcelona, Mallorca og San Sebastián, hafa gripið til sinna ráða og gengið fylktu liði í mótmælagöngu gegn túrisma. Þetta kemur fram á vef Guardian. Aðsóknarmet var slegið á Spáni á síðasta ári en Spánverjar tóku á móti 75,6 milljón gestum. Íbúarnir segja að iðnaðurinn og ágangur ferðamanna valdi náttúrunni skaða og þá hafi aukinn gestagangur slæm áhrif á húsnæðismarkað. Ferðamannaiðnaðurinn, í þeirri mynd sem hann er í dag, sé þess valdandi að íbúar hrekist úr hverfum sínum.Íbúarnir vilja eyjuna sína aftur. Mótmæli á Mallorca, Spáni.Vísir/afpFjölmenn mótmæli voru haldin í Feneyjum í síðasta mánuði. Í yfir tvö þúsund manna mótmælagöngu brýndu íbúar Feneyja raustina og beindu spjótum sínum að háu leiguverði og mengandi skemmtiferðaskipum. Mótmælendur linna ekki látum fyrr en stjórnvöld aðhafast og koma til móts við kröfur íbúanna. Taleb Rifai, framkvæmdastjóri Alþjóðaferðamálastofnunar (UNWTO), heldur uppi vörnum fyrir iðnaðinn og segir vandamálin spretta af rótum aðgerðarleysis stjórnvalda. Það þurfi einfaldlega að standa rétt að málum og móta skýra stefnu í ört vaxandi iðnaði. „Til þess að ferðaþjónustan skili sér í ánægjulegri reynslu, bæði fyrir gesti og íbúa, þarf öfluga stefnumótun, að henni sé framfylgt og stjórnvöld þurfa að koma að málum, bæði á vettvangi ríkis- og sveitarstjórna,“ segir Rifai.
Mest lesið Hljóp inn í brennandi byggingu til að bjarga nágrannanum Innlent Sveitarstjóra ekki heimilt að banna hundahald Innlent Spyr hvort ekki sé tími á að Palestínumenn snúi aftur í friðinn heima Innlent Ellefu meðlimir glæpafjölskyldu teknir af lífi í Kína Erlent Hátt í sjötíu ár síðan það snjóaði eins lítið Innlent Hvort myndu þau hringja fyrst til baka í Pétur eða Hildi? Innlent Fundu fjarlægustu vetrarbrautina hingað til Erlent Erlendir aðilar reyni að hafa vit fyrir Íslendingum Innlent 28 prósent Selfyssingar: „Eitthvað í mjólkinni eða smjörinu“ Innlent Segir útsendara „mögulega“ ekki hafa fylgt verkreglum Erlent Fleiri fréttir Ellefu meðlimir glæpafjölskyldu teknir af lífi í Kína Fundu fjarlægustu vetrarbrautina hingað til Segir útsendara „mögulega“ ekki hafa fylgt verkreglum Segir Trump ekki reiðan Íslandi Dómsdagsklukkan færð fram Sendir herskipaflota að Íran og hótar „ofbeldi“ Helsta klappstýran sögð slegin yfir sálarástandi Trumps Verða ekki viðstödd réttarhöld stjúpsonarins Vilja veita þúsundum sem dvelja ólölega á Spáni dvalarleyfi Ná saman um myndun minnihlutastjórnar í Hollandi Maður sprautaði illa lyktandi vökva á Ilhan Omar Róa á nýnasistamið í leit að ICE-liðum Dómari stöðvar brottflutning Liam og föður hans Bandaríkin hyggja á heræfingar í Mið-Austurlöndum Svíar líta til kjarnorkuvopna Tónninn breytist með yfirmannaskiptum hjá ICE Tala fallinna og særðra nálgast tvær milljónir Svíar hyggjast lækka sakhæfisaldur „Móðir allra samninga“ Um þriðjungur Dana fær 50 þúsund króna „matartékka“ beint í vasann frá ríkinu Segja mögulegt að yfir 30.000 hafi verið drepin í mótmælunum Franska þingið samþykkti símabann hjá börnum Evrópusambandið og Indland ganga frá fríverslunarsamningi Bovino sendur til Kaliforníu og Leavitt dregur í land Lét þingmenn heyra það og sagði Evrópu ekki geta varið sig sjálfa Trump sagður hafa lofað óháðum rannsóknum í Minnesota Einn lifði flugslys í Maine af en sjö dóu Hafa fundið lík síðasta gíslsins á Gasa Börnin heima þegar móðir þeirra var stungin til bana Flugferðum aflýst og hvatt til heimavinnu vegna snjókomu Sjá meira