Forseti Nígeríu snýr aftur eftir hundrað daga fjarveru Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 19. ágúst 2017 10:50 Það hvílir leynd yfir veikindum forseta Nígeríu. Heimamenn segja að veikindin séu ekki hans einkamál. Vísir/afp
Forseti Nígeríu, Muhammadu Buhari snýr aftur heim í dag eftir að hafa varið meira hundrað dögum í höfuðborg Bretlands þar sem hann sótti aðhlynningar vegna ótilgreinds kvilla. Forsetinn neitar staðfastlega að gefa upp við hverju læknismeðferðin sé að því er fram kemur á vef fréttastofu AFP. Buhari er sjötíu og fjögurra ára og fór til Lundúna þann 7. maí. Fjarvera hans hefur valdið mikilli spennu meðal heimamanna þar sem kallað er eftir því að hann annað hvort snúi aftur þegar í stað ellegar segi af sér. Í yfirlýsingu frá embætti forseta segir að hann snúi aftur seinna í dag eftir að hafa hlotið læknismeðferð í Lundúnum. Þá er landsmönnum tilkynnt um það að forsetinn ávarpi þjóðina í sjónvarpsútsendingu á mánudag. Forsetinn færir þeim þakkir sem sýndu honum stuðning. Segir hann marga hafa beðið fyrir skjótum bata. Fyrr á þessu ári varði Buhari auk þess nærri tveimur mánuðum í Lundúnum og þegar heim var komið, í mars, sagðist hann aldrei hafa verið eins veikur.Þess er krafist að forsetinn snúi annað hvort aftur til starfa eða segi af sér. Landsmönnum er mjög í mun að komast að því hvað það er sem hrjáir forsetann.Visir/afpFjölsóttir mótmælafundir hafa verið haldnir í Abuja síðan í byrjun ágúst og er þess krafist, sem áður sagði, að Buhari snúi aftur til starfa eða segi af sér, sé hann óstarfhæfur. Muhammadu Buhari hefur gegnt embætti forseta Nígeríu frá 2015. Hann hafði betur gegn sitjandi forseta landsins, Goodluck Jonathan með 15,5 milljónum atkvæða gegn 13,3 milljónum.
Mest lesið Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent „Við búum í brjáluðum heimi“ Erlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Innlent Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Erlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Innlent Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Innlent Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Lífið Fleiri fréttir Vara við aukinni ógn vegna sjórána við strendur Sómalíu „Við búum í brjáluðum heimi“ Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Talinn ætla að ráðast á Trump og fleiri háttsetta Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Fjörutíu ár frá slysinu í Tsjernobyl: „Eins og heimurinn gæti snúið aftur til ársins 1986“ Trump segir komið að Írönum að hringja Sjö felldir í Úkraínu Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Orbán hættir á þingi Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Vinasamtök al-Qaeda sögð reyna að steypa ríkisstjórninni af stóli Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Segja engan fund á dagskrá Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Netanjahú greindist með krabbamein Sendimenn Trump fara á fund utanríkisráðherra Írans á morgun Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Ræða ekki loftslagsmál á umhverfisfundi til að friðþægja Bandaríkjastjórn Sækir aftur um reynslulausn Handtaka hermann sem veðjaði á að Maduro yrði tekinn Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Segir vopnahlé framlengt um þrjár vikur Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Skjóta á alla báta sem leggja tundurdufl Með lista yfir góða og slæma bandamenn Sjá meira